Okkar á milli - 01.03.1988, Síða 8
Nr.: 1694
Fullt verð: 2.250 kr.
Okkar verð: 1.890 kr.
BYGGINGAR-
LISTASAGA
Frá pýramídum
faraós til
straumlínu
nútímans
Byggingarlistasaga Fjölva er sannkallaöur
kjörgripur í íslenskri bókagerö, sem mun
veröa æ verömætari eftir því sem tímar
líöa. Bókin er fyrsta rit sinnar tegundar á
íslensku og því einstök í sinni röö. Hún er
nær tæmandi handbók meö meira en 800
skýringamyndum og mikill hluti þeirra er í
sérlega vandaðri litprentun. Þetta er vegleg
bók, sem Veröld mælir sérstaklega meö.
Fjöldi sérfræðinga
Byggingarlistasaga Fjölva er ávöxtur ára-
langs skipulags og samstarfs fjölda sér-
fræöinga á vegum Mitchell Beazley bóka-
útgáfunnar í London, sem þekkt er fyrir út-
gáfu á vönduöum ritverkum. Fjórtán af
fremstu fræðimönnum Breta í bygginga-
listasögu skráðu þessa bók, hver á sínu
sérfræðisviði, en síðan var þaö verk aðal-
ritstjórans, John Julius Nonwich, meö fjöl-
mennu aðstoðarliði, að samhæfa verkið og
fella inn í það Ijósmyndir og margs kyns
skýringamyndir, sem gera flókin tækniatriði
augljós og lifandi.
Vinsæll höfundur
Aðalritstjórinn John Julius Nonwich er sonur
hins kunna stjórnmálamanns Duff Coop-
ers, sem að loknum löngum ferli var aðlað-
ur sem Norwich lávarður. Hann er nú viður-
kenndur sem einn fremsti listasöguhöfund-
ur Breta og hefur m.a. skrifað stór verk um
Feneyjar, Egyptaland og listgerð Norður-
Afríku. Auk þess er hann vinsæll höfundur
og flytjandi listasöguþátta í breska sjón-
varpinu BBC.
Brautryðjandaverk
Þorsteinn Thorarensen, rithöfundur og út-
gefandi, hefur þýtt bókina og umsamið
hana eins og hans er háttur, eftir íslensku
áhugasviði og áherslum í nánu samráöi við
frumhöfundana. Hér er um brautryðjanda-
verk að ræða, því að ekki hefurfyrr komið út
á íslensku byggingarlistasaga. Með þess-
ari glæsilegu bók er því plægður akur í
fyrsta skipti varðandi alls kyns hugtök og
heiti á tækniatriðum, stíleinkennum og hug-
myndafræði byggingarlistar á öllum tímum.
Mest seldi stríðsbókahöfundurinn
Bókin Kommisarinn eftir Sven Hassel er
ósvikin spennusaga, sem fær lesandann til
að gleyma stund og stað gersamlega, þartil
hann kemurað síöustu blaðsíðunni.
Öllu fórnað
Kommisarinn vissi um stærsta leyndarmál
stríðsins í Rússlandi. Hann hafði falið 30
milljón dollara verðmæti í gulli bak við rúss-
nesku víglínuna og Porta var ákveðinn í að
vinir hans í „Hersveit hinna fordæmdu"
næðu hluta af þeim feng. Fyrir Rússagullið
voru þeir reiðubúnir til að fórna öllu; tilbúnir
að fórna lífi sínu; tilbúnir að drepa þá sem
reyndu að koma í veg fyrir að þeir næðu
gullinu; tilbúnir að berjast eins og villidýr
sem þeim var einum lagið. Þeir sem alltaf
voru í fremstu víglínu, létu ekkert stööva
sig. Enginn kærði sig um hvort þeir voru lífs
eða liðnir.
Skrifar af reynslu
Sven Hassel er mest seldi stríðsbókahöf-
undur allra tíma. Hann barðist með þýska
hernum í heimstyrjöldinni síðari og skrifar
því af reynslu. Kommisarinn er fjórtánda
bók hans, og allar fyrri bækurnar hafa náð
metsölu hér á landi sem annars staðar.
Nr.: 1695
Fullt verð: 838 kr.
Okkar verð: 745 kr.
8 9 Betra er berfættum en bókarlausum að vera (íslenskur málsháttur)