Okkar á milli - 01.03.1988, Side 10
Nr.: 1698
Fullt verð: 2.250 kr.
Okkar verð: 1.890 kr.
SKIPABÓKIN
Siglingasaga
með lýsingum á
þúsund skipum
Skipabók Fjölva er mjög handhæg og þó
nærfellt tæmandi upplýsingarit um skip og
siglingar. Hún er mikil aö vöxtum, á fjóröa
hundrað blaðsíður í stóru broti og rækilega
myndskreytt. Rakin er saga siglinga frá
upphafi vega til okkar daga og birtar myndir
og lýsingar á þúsund skipum allra tíma og
allra landa, herskipum og kaupskipum,
bæði gömlum og nýjum. Sérstakur kafli er
um íslenska skipasögu, tæknilegar upplýs-
ingar um herskip og registur yfir skipanöfn.
Sagatækniþróunar
Saga siglinganna er jafnframt saga tækni-
þróunar. Hér er því jafnframt reynt að gefa
nokkra innsýn í tækniþróun skipanna, hvort
sem er í stríði eða friði. Hinum ólíku skips-
gerðum eru gerð góð skil, allt frá papýrus-
bátum Egypta, þríræðingum Grikkja, slétt-
byrðingum Rómverja, að ógleymdum vík-
ingaskipunum. Á eftir fylgdu margsegla
línuskip, freigátur, briggskip, barkskip og
skonnortur, þangað til gufuvélar og síðan
dísilvélar leystu seglin af hólmi.
Sjórinn varð örasta og besta samgönguleiö
mannsins og útbreiðsluleið menningarinn-
ar. í Skipabókinni er reynt að drepa á allt
sem skiptir máli í þessari þróun, allt upp í
nútíma kjarnorkuskip. Hér á lesandinn að
geta haft auðveldan aðgang að þessari
þekkingu í formi efnismikillar og vandaðrar
handbókar.
ISLANDS ELDAR StÓTVÍrki í
íslenskri bókaútgáfu
Bókin íslandseldar hefur hlotið einróma lof
bæði almennings og gagnrýnenda, enda
um að ræða stórvirki í íslenskri bókaútgáfu.
Vegna fjölda áskorana býður Veröld fé-
lagsmönnum sínum þessa bók aftur á afar
hagstæðum kjörum.
Stórar litmyndir
íslandseldar eru tæplega tvö hundruð síður
að stærð í mjög stóru broti, prýdd ótal lit-
myndum og skýringamyndum, og ná sumar
myndanna yfir heilar opnur í bókinni. Höf-
undur er Ari T rausti Guðmundsson jarðeðl-
isfræðingur, en helstu aðstoðarmenn hans
við lokafrágang efnis í bókina voru Gunnar
H. Ingimundarson landfræðingur, sem
gerði 50 kort í bókina, og Eggert Pálsson
Kemur á tveimur gíróseðlum, sem
greiða má með mánaðarmillibili
Nr.: 1699
Fullt verð: 4.860 kr.
Okkarverð: 4.135 kr.
myndlistarmaður, en hann teiknaði 20 skýr-
ingarmyndir. Vaka-Helgafell gaf bókina út í
tilefni af fimm ára afmæli fyrirtækisins.
Fögur og aðgengileg
í bókinni er gerð grein fyrir eldvirkni á ís-
landi undanfarin tíu þúsund ár eða á því
tímabili sem nefnt er nútími í jarðsögunni.
Ekkert var til sparað til að gera þessu
áhugaverða efni sem best skil í máli og
myndum, enda tók vinnsla bókarinnar hátt
á fjórða ár. Að mati gagnrýnenda hefur tek-
ist einstaklega vel um árangur þessa mikla
verks og hafa sumir þeirra fullyrt, að ekki sé
hægt að hugsa sér aðgengilegri og fegurri
bók um jarðelda á íslandi, sem er eitt mesta
eldfjallaland heims.
10 • Menntin er löng, mannsævin stutt (íslenskur málsháttur)