Okkar á milli - 01.12.1988, Side 4
Gleðileg jól, félagsmenn!
Starfsfólk Veraldar talið frá vinstri:
Gisli Hrafnsson, Ásta Hjartardóttir,
Bryndís Hreinsdóttir, Jóna R.
Gunnarsdóttir, Kristín Björnsdóttir
og Grétar Ásmundsson.
Við óskum félagsmönnum Veraldar gleðilegra jóla og þökk-
um þeim ánægjulegt samstarf á liðnu ári. Aldrei hefur Veröld
boðið jafn mikið úrval góðra bóka og nú í desember og því
vonum við að allirfélagsmenn finni jólagjafir við hæfi.
Síðasti pöntunardagur 9. des.
Allar pantanir verða að berast klúbbnum fyrir tíunda desem-
ber til þess að við getum komið þeim til þín fyrir jól, því
hvetjum við þig til þess að panta upp úr jólablaðinu sem fyrst
og gera jafnframt upp hug þinn gagnvart bók mánaðarins.
Breyttur opnunartími
Við munum lengja opnunartímann síðustu vikuna fyrir jól
(19. - 23. des.), en þá verður opið frá átta til sjö á kvöldin, en
venjulegur opnunartími er frá átta til fjögur á daginn. Eins og
flestir félagsmenn okkar vita er lítil verslun hjá okkur að
Bræðraborgarstíg 7, þriðju hæð. Þar eru til sölu allar þær
vörur sem á boðstólum eru hverju sinni og einnig ýmsar
aðrar bækur og vörur.
Góðan jólamánuð,
starfsfólk Veraldar.
Taktu bók mánaðarins
og sparaðu 1600 krónur
Bónusverð: 590 kr.
Bónusnr. 5015
Verð: 2.190 kr.
Nr.: 5016
Vandaður dúkur á jólaborðið
Bónustilboð Veraldar að
þessu sinni er vandaður
matardúkur. Jóladúkur-
inn, sem er úr 50% bómull
og 50% polýester, er með
sérstakri áferð þannig að
hann hrindir frá sér. Dúk-
urinn er frá breska fyrir-
tækinu Dorma, sem þekkt
er fyrir vandaðar og góðar
vörur, og er í stæröinni
132x228 cm. Hann má
þvo í 50 gráðu heitu vatni.
10.000 kr. úttekt hjá Koggu
Sigrún Halldórsdóttir frá Neskaupsstað vann 10.000 kr. út-
tektina hjá versluninni Koggu að Vesturgötu 5 í Reykjavík.
Eins og margir vita er listakonan Kolbrún Björgúlfsdóttir, eða
Kogga eins og hún er oftast kölluö, löngu orðin þekkt fyrir
sína einstöku og fallegu leirmunasmíð og því erum við viss
um að Sigrún á eftir að finna fallegan listmun hjá henni
Koggu. Til hamingju Sigrún!
4
OKKAR Á MILLI