Vera - 01.04.1991, Blaðsíða 10
MEÐ HEIMINN í HÖNDUM OKKAR
Ætli þetta hús hafi verið með húsasótt?
Mynd: Anna Fjóla Gísladóttir
ER NANASTA UMHVERFI ÞITT
Stórhættulegt?
mammmmamammmmmmmmmmmumam
mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm
Færðu oft höfuðverk, ertu
þreytt, með ofnæmi, exem,
útbrot, asma, ógleði, sífellt
kvef eða ertingu og óþæg-
indi i augum og öndunarvegi?
Ástæðan getur verið sú að ibúðin
þín eða vinnustaður þjáist af
húsasótt og að þú hafir smitast.
Húsasótt hefur verið rannsök-
uð mikið á hinum Norðurlönd-
unum og nú er einnig farið að
rannsaka hana hér. í desember sl.
stóð Arkitektafélag íslands fyrir
námstefnu um málið og þann
3. mars sl. var viðtal í Morgun-
blaðinu við deildarstjóra hjá
Vinnueftirliti rikisins þar sem
hann segir meðal annars: „Húsa-
Hús er sagt vera
meö húsasótt þegar
byggingarefni eöa
byggingaraöferöir
hafa neikvœö óhrif
á líöan fólks.
sótt er staðreynd, sem við verðum
að horfast í augu við“. Vinnu-
hópur er starfandi á vegum Nor-
rænu ráðherranefndarinnar til að
aíla gagna sem eiga að auðvelda
lagasetningu til að hindra að
húsasótt komi upp.
í Noregi er talið að um 30%
nýrra skrifstofubygginga og opin-
berra stofnana séu sýktar og að
hlutfall íbúðarhúsnæðis sé svip-
að. í sumum tilvikum er ástandið
svo slæmt að það hefur orðið að
loka byggingunum. í upphafi var
málið afgreitt sem móðursýki
enda komu kvartanir oft frá fóstr-
um og börnum á dagheimilum!
Stundum finnst skýringin en oft
finnast engar ástæður íýrir óþæg-
indunum sem eru þó staðreynd.
Líkami okkar hefur fjórar „húðir“
sér til varnar, skinn, föt, hús og
lofthjúp jarðar. Þó svo að hin þrjú
síðarnefndu hafi ekki bein tengsl
við líkamann verðum við að
meðhöndla þau sem slík. Til-
gangur þeirra er hinn sami, að
skýla okkur fyrir veðrum og vind-
um og verja okkur gegn hættu-
legum eða óþægifegum áhrifum
umhverfisins. Reykjavik nútím-
ans hlýtur að koma aldamóta-
kynslóðinni fýrir sjónir sem sann-
kölluð lúxusborg. Amma mín sem
fæddist í torfbæ í Borgarfirði árið