Vera - 01.04.1991, Blaðsíða 38

Vera - 01.04.1991, Blaðsíða 38
 ÚR LISTALÍFINU Þjáning og tjáning. Málverk Kristínar Andrésdóttur tjá þjáningu. Mynd: Anna Fjóla Gísladóttir þessu, en kennararnir ekki, svo að það var ekkert gert í þessu. Þegar ég eltlst og var farin að keyra bíl vaknaði ég oft uppi á umferðareyjum. Seinna fór ég til svefnsérfræð- ings og það kom upp úr dúrn- um að ég þjáðist af svefnsýki. Ég hef lagast mikið af þessu, en morgnarnir eru ennþá rosalega erfiðir. Stuttu eftir að Kristín byrjaði í Myndlistarskólanum fóru að hijá hana fleiri sjúk- dómar, sem hún vill ekki nafngreina vegna þeirra for- dóma sem ríkja í garð geð- sjúklinga. - Ég er nú samt orðin vön þessum fordómum. En það eru ekki margir sem tala um sjúkdóminn við mig og spyrja hvernig mér líði. Fólk heldur að þetta sé viðkvæmt mál. En það er ekkert viðkvæmt mál. Einu sinni hætti ég að taka lyfin mín. Mér fannst ég vera orðin svo góð og ég hugsaði „andsk...ekki er ég að gleypa allt þetta drasl, ég hætti þessu“. Eftir þijá daga var ég komin á spítala. í íyrstu skipt- in sem ég lagðist inn á geð- deild reyndi ég að fela það og þóttist hafa verið einhvers staðar annars staðar. Núna er ég löngu hætt að fela þetta. Síðustu árin hefur Kristín af geysilegri þrautseigju reynt að vinna bug á sjúkdómum sín- um. - Ég sá að ég varð að gera eitthvað í mínum málum sjálf. Læknavísindin geta hjálpað - þau hafa lyfln. En það þarf svo miklu meira, það þarf svo mikinn viljastyrk til að ná sér upp úr þessu, segir hún. Myndlistaráhuginn hefur verið henni nytsamt vopn í baráttunni. Hún er svo heppin að vera fædd með penslana í höndunum og myndræna hugsun í höfðinu. - Afl minn Kristinn Andrés- son, sem ég heiti í höfuðið á, var listamaður. Hann dó áður en ég fæddist, en ég hafði alltaf mikinn áhuga á því sem hann hafði verið að gera, skoðaði myndirnar hans og áhöld þegar ég heimsótti ömmu og svo fór að hún gaf mér penslana hans. Fyrir um það bil þremur árum þegar ég var inni á spítala birtist afl mér. Hann var hjá mér jafn skýr og raunverulegur og þú ert hér í sófanum núna. Hann hvatti mig til að byrja að mála. „Þú getur þetta“ sagði hann og taldi upp ýmis verk sem ég hafði gert. Ég byijaði að mála af fullum krafti og hef haldið þvi áfram síðan. Ég mála þegar ég er upplögð til þess, en oft liða löng tímabil þegar ég get ekkert málað. Ég verð að taka töluvert langar pásur þegar ég er inni á sjúkrahús- um og svo er ég lengi að jafna mig á eftir. Kristín málar með akiýl á léreft. Litir hennar eru skærir og hún notar andstæðuliti af mikilli dirfsku. Pensilförin eru stutt, þétt og kröftug og stíll- inn expressionískur, minnir dálítið á Edvard Munch. Það sem máli skiptir í myndunum er fólkið - manneskjur í bönd- um, manneskjur að bijótast úr viðjum og aðrar að hjálpa þeim. Líkamar eru naktir, andlit óskýr og fólk lítur gjarn- an undan, rekur upp óp, tjáir þjáningu. Það er þröngt um þetta fólk á myndfletinum, það er eins og það ætli að sprengja rammann, ætli hreinlega út úr myndinni. - Þegar ég byija á málverki leggst ég hér í sófann, loka augunum, bíð og hugsa og þá birtast mér myndirnar. Svo skissa ég upp þessar myndir sem ég sé og mála þær síðan. Stundum er ég ekki nema tvo daga að mála eina mynd, stundum margar vikur. Það fer eftir þvi hversu upplögð ég er og hversu erflðar myndirn- ar eru. Sumar myndir liggja beint fyrir, öðrum er erfiðara að ná. Ég mála ýmis atvik sem fyrir mig koma. Ég mála þau eins og ég upplifi þau. Ég skynja líðan mína í myndum og á auðveldara með að tjá hugsanir mínar með myndum en orðum. Mér þykir mjög vænt um myndina sem ég setti á boðskortið. Hún er af mann- eskju að detta fram af bjargi. Mér líður stundum svona þegar ég er að koma frá lækn- inum. Mér flnnst ég vera í böndum að hrapa og tunna að velta yflr mig. Ég mála oft batavonina. Ein myndin sýnir t.d. konu sem reisir sig smám saman upp. Á meðan hún liggur niðri er hún í köldum litum, en þegar hún er orðin upprétt eru litirnir heitir. Önnur mynd er af manneskju á hnjánum og öðrum tveim sem eru að toga hana upp. Hún er af bata- voninni. Ég er sjálf búin að fá svo mikla aðstoð. Það eru svo margir sem hafa reynt að toga mig upp. Ég mála fýrst og fremst fyrir sjálfa mig til að komast út úr þessum vita- hring. Það er góð þerapía að mála. Ég geri mér vonir um að komast í gegnum sjúkdóminn með hjálp myndanna. Ég er þegar komin vel áleiðis. Samt veit ég að ég er ekki að læknast, heldur er ég bara að ná betri tökum á sjúkdóm- unum. En þeir halda áfram að vera innan í mér. Myndlistin hefur mörg andlit og margs konar hlutverk. Eitt hlutverkanna er að hug- hreysta og hjálpa - ekki aðeins þeim sem heldur á penslinum heldur líka þeim sem skoða myndirnar. - Mér finnst gaman að hafa myndirnar mínar nafnlausar, svo að hver og einn geti túlkað þær á sinn hátt. Á opnuninni kom til mín kona, sem ég veit að hefur átt erfitt. Hún var með tárin í augunum og sagði „Þetta er sterk sýning“. Þá fannst mér það hafa tilgang að sýna verkin mín, segir Kristín Andrésdóttir. VERA óskar henni velgengni í framtíðinni. BA VERA TÍMARIT UM KONUR OG KVENFRELSI VERULEGA TIMARIT 38

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.