Vera - 01.04.1991, Blaðsíða 24

Vera - 01.04.1991, Blaðsíða 24
OPINBER YFIRRAÐ YFIR LIKAMA KVENNA hennar. „Miklð gleður það mig að þú gast leyst vandamálið”, segi ég. Hún horfir beint framan í mig, augnaráð hennar er kuldalegt. „Ég veit ekki hvað þú ert að tala um“, segir hún. Við förum hvor í sína áttina. Sjúkrahús borgarinnar rekur fjölskylduráðgjöf. Læknirinn sem stjórnar henni er eiginkona for- ingja í ieynilögreglunni. Að sýna henni trúnaðartraust er að sýna leynilögreglunni trúnaðartraust. Læknanemi á síðasta ári í námi er ófrísk. Hún reynir fóstur- eyðingu á sjálfri sér. Meðan það stendur yfir fær hún háan hita. Hún verður að komast á spítala en af ótta við ofsóknir og fangels- un hengir hún sig í herbergi sínu á stúdentagarðinum. Yfirmenn læknaskólans boða til opins fund- ar. Að henni látinni er hún rekin úr flokknum og skólanum. í setustofu stúdentagarðsins hang- ir mynd af henni sem á er rituð yfirlýsing um að hún sé „vont fordæmi“. „Sérfræðingar í yfirheyrslum“, tilnefndir af leynilögreglunni, eru ráðnir til starfa á kvennadeildir. Þeir eru dulbúnir sem læknar, eru í hvítum sloppum og bera lækna- titla. Kona sem lögð er inn á kvennadeild í tengslum við fóst- ureyðingu sem hún sjálf hefur framkvæmt er yfirheyrð. Þess er krafist að hver sá sem hefur aðstoðað hana eða orðið vitni að atburðinum gefi sig fram. Konan er ekki meðhöndluð fyrr en að þessu loknu jafnvel þó að hún sé með miklar blæðingar. Það kemur ekki ósjaldan fýrir að konur deyja þegar þær neita að láta í té þá játningu sem krafist er. Verkakonur eru sóttar á vinnutíma og látnar gangast undir læknisskoðun. Skoðunin er gerð undir þvi yfirskini að verið sé að fýrirbyggja leghálskrabba. Þessar „í'yrirbyggjandi" skoðanir voru ekki til áður en lögin um fóstureyðingar voru hert. Barns- hafandi konur eru skráðar. Öll læknismeðferð upp frá þessu má aðeins eiga sér stað gegn fram- vísun þungunarskýrslu. Hennar er jafnvel krafist þegar um tann- viðgerðir er að ræða. Stefna stjórnvalda varðandi barneignir hefur aðeins verið sjálfri sér samkvæm í einu atriði - í því að hún lítilsvirðir gersamlega þjáningar kvenna. Yfirmenn menntaskóla krefjast þess að Verkakonur eru sóttar á vinnutíma og látnar gangast undir lœknisskoðun. Skoðunin er gerð undir því yfirskini að verið sé að fyrir- byggja legháls- krabba. Þessar „fyrirbyggjandi“ skoðanir voru ekki til áður en lögin um fóstureyðingar voru hert. í kjölfar misheppn- aðra fóstureyðinga fœðast mörg andlega og líkam- lega vanheil börn í heiminn. Meöferð á sjúkrahúsum er œvinlega viö það miðuð aö viðhalda þunguninni jafnvel þegar augljóst er að gróf tilraun til fósfureyöingar hefur þegar skaðað fóstrið. stúlka sé rekin úr skóla fyrir það að vera barnshafandi. Tillaga þar að lútandi er lögð fram af um- sjónarkennara stúlkunnar. Stúlkan er ekki viðstödd. Fyrir fundinn hefur verið skipulagt hverjir taki til máls og í hvaða röð þeir geri það. Fundarritarinn er úr innsta kjarna; ef óundirbúnar eða nýjar athugasemdir koma fram sér hann til þess að þær fari ekki í fundargerðina. Ég tek til máls og segi að við séum skóli og að við hljótum að líta á það sem skyldu okkar að bjóða líka þeim nemendum, sem eiga við einhver vandamál að stríða, upp á mennt- un. Ég reyni að vekja athygli á þvi að þessi nemandi muni enda á götunni og kynfræðslu vanti gjör- samlega í námsefnið. Að barns- faðirinn vilji hvorki af stúlkunni né barninu vita. Að foreldrunum finnist stúlkan hafa gert þeim skömm til og hafi af þeim sökum rekið hana að heiman. Ég vek aðeins upp reiði yfirmannanna og hinum skipulögðu ræðumönnum finnst á þá ráðist. En meirihluta fundarmanna virðist leiðast og segir ekki neitt. Tillagan er borin undir atkvæði og allir eru sam- þykkir henni. Einn er á móti. „Þetta er grundvallaratriði," segir umsjónarkennarinn. „Við erum þrátt íyrir allt menntaskóli en ekki félagsmálastofnun." í frímínútunum er hæðst að hinni barnshafandi stúlku á göngum skólans og hún út- skúfuð. Þessi atburður gerðist árið 1984. Síðan hafa reglugerðir og farvegur mála breyst. Kennurum er nú uppálagt að dásama móður- hlutverkið. Ef um þungun er að ræða mega nemendur halda áfram námi sínu strax að loknum barnsburði og þurfa engar áhyggjur að hafa af barninu. Það er engin ástæða til að eignast ekki börn. Það eru mörg munaðar- leysingjahæli þar sem hægt er að koma börnunum fyrir. Að elilífu. Smánin er ekki lengur á dagskrá. Ástæðan er sú að munaðar- leysingjar eru íjárfesting fyrir ríkisstjórnina, og það klók fjár- festing. Það hefur verið sannað að munaðarleysingjar eru seldir til útlanda fyrir gjaldeyri. Eða þeir eru þjálfaðir í leynilögreglunni og vegna „uppeldis" síns eru þeir trúir sínu staríi. Ég er að vinna í verksmiðju. Ég heyri símtal á næsta borði: „Góð- an daginn. Seljið þið ennþá prjónavörur? Málin eru 29x2. Hvað á ég að borga mikið fyrir það? Já. Ég kem klukkan 10.“ Sú sem talar er samstarfskona mín. Hún á barn. Hún er 29 ára og er komin tvo mánuði á leið. Þetta eru málin á prjónavörunni. Sím- talið var til skottulæknis. Fóstur- eyðingin kostar 5.000 lei (u.þ.b. tveggja mánaða laun). Hún er heppin. Fóstureyðingin hafði eng- ar aukaverkanir í för með sér. Seinna framkallar hún fóstur- lát á sjálfri sér með plaströri utan af pijónum. Þetta gerir hún líka fyrir mig, hún setur rörið upp inni á klósetti í verksmiðjunni. Ég geng um í þijá daga og þrjár nætur með rörið í leginu. Annar endinn er festur með límbandi við innanvert lærið. Meðan á þessu stendur verð ég að vera í pilsi en engum sokkarbuxum til að tryggja óhindrað loftstreymi inn í legið. Við seinni fóstureyðingu mína lætur hún mig bara hafa rörið. Ég sit alein heima bak við læstar baðherbergisdyr. Spegill- inn er íýrir neðan mig. Ég set rörið sjálf upp. Kunningi minn segir: „Þetta er ekkert vandamál. Þegar konan mín er ófrisk keyrum við eina helgi upp í sveit til tengda- mömmu. Svo er bara að lyfta kjallarahurðinni þannig að hún opnist tuttugu sinnum og það er yfirstaðið. Maður verðu bara að vita hvað gera skal.“ Ég þekki ekki konuna hans. Getur verið að henni finnist þetta jafn lítilíjör- legt? Magatöflur smyglaðar frá Sovétrikjunum og seldar á svörtu, eru teknar inn í of stórum skömmtum á tveggja tíma fresti i einn sólarhring. Hiti, krampar í kviðarholi og mikil uppköst ættu að bera tilætlaðan árangur. Töfl- urnar eru almennt þekktar sem „rússnesku pillurnar". Aðrar að- ferðir eru t.d. þær að skola sig með iðnaðarsýru, sítrónusafa eða sítrussýru. Allar þær aðferðir sem hér eru nefndar eru notaðar. Konur byija á þeirri sem veldur minnstum skaða og með vaxandi örvæntingu gripa þær til aðgerða sem eru talsvert áhættusamari. Eftirleikur hertra laga um fóstureyðingar er sá að uppskriftum að fóstur- eyðingum er fylgt daglega út um allt land. Aíleiðingin er hundruð dauðsfalla. Enginn veit hversu mörg því engar tölur eru tiltækar.

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.