Vera - 01.04.1991, Page 27

Vera - 01.04.1991, Page 27
ALÞINGISKOSNINGAR 1991 HVERJU VILJUM VIÐ KOMA TIL LEIÐAR? Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Kristín Einarsdóttir, Kristín Ástgeirsdóttir og Guörún Halldórsdóttir skipa fjögur efstu sœtin í Reykjavík. Þannig hljóðar þeirra svar: Nú í vor ganga Kvennalistakonur í Reykjavik til Alþingis- kosninga í þriðja sinn. Enn sem fyrr er það meginmarkmið okkar að láta rödd kvenna heyrast jafnt í sölum Alþingis sem annars staðar, koma kvennapólitískri sýn á þjóðfélagið á framfæri og beita okkur fyrir bættri stöðu kvenna og barna. Þetta síðasttalda hefur verið tilgangur okkar og takmark frá upphafi og er hið raunverulega erindi okkar inn i valdastofnanir þjóðfélagsins. Við Kvennalistakonur í Reykjavík erum býsna uppteknar af stjórn landsins og vanda landsbyggðarinnar, en okkur ber þó að horfa sérstaklega á stöðu kvenna hér í höfuð- borginni, enda erum við að bjóða okkur fram sem fulltrúar þeirra. Það er margt sem brennur á meirihlutanum hér í Reykjavík, (þ.e. konum), hvort sem um er að ræða ungar konur eða gamlar, giftar eða ógiftar, barnlausar eða með börn. Þegar við stöndum upp eftir kjörtímabilið 1991-1995 viljum við sjá eftirfarandi umbætur: 1 Launakjör kvenna verði stórbætt og konum jafnt sem körlum tryggð mannsæmandi laun fyrir dagvinnu. Fjöl- breytt vinna standi til boða og brugðist verði við vaxandi atvinnuleysi með endurmenntun og atvinnuleysisbótum sem duga til framfærslu. Horfið verði frá þeirri láglauna- stefnu sem rikt hefur um árabil, ríkisvald gangi ekki á gerða samninga og samningsrétturinn verði virtur. Skattleysis- mörk verði hækkuð. Lífeyrismál eldri kvenna verði skoðuð sérstaklega, þannig að þær sitji við sama borð og karlar. 2 Staða fjölskyldna verði bætt, sérstaklega þeirra sem hafa lítil börn innan sinna vébanda, með nægu framboði á leikskólum, einsetnum skóla, samfelldum og lengri skóla- degi. Tekið verði tillit til þess við álagningu skatta hvað það kostar að framfleyta börnum. Vinnutími verði styttri og sveigjanlegri til að fjölga samverustundum ljölskyldnanna. Það er löngu tímabært að íslenskt samfélag viðurkenni breyttar aðstæður, taki mið af þeim og bæti aðstöðu barna, framtíðinni til heilla. 3 Öllu gömlu fólki og fötluðu verði tryggð viðunandi þjón- usta, lífeyrir, vinna sem hentar þeim og aðstaða til tóm- stundastarfs og líkamsræktar. 4 ísland er hlekkur i lífs- og þjóðakeðjunni og þvi.ber okk- ur að taka þátt í vemdun jarðarinnar og lífríkisins. Það vilj- um við gera með því að endurskoða ríkjandi mat á lífsgæð- um (hagvaxtardýrkunina) sem ræður rikjum með endalausri eyðslu og rányrkju, svo og með því að stórbæta umgengnina um okkar eigið land. Mennimir (einkum Vestulandabúar) hafa öldum saman gengið á gæði Móður Jarðar og má ekki lengur við svo búið standa eigi ekki illa að fara. Þvi þarf að koma aftur til vegs og virðingar lífsháttum sem ganga út frá nýtni, endurnýtingu, sparnaði og virðingu við jarðargæðin. 5 Við viljum sjá heiminn allan stíga fleiri skref í átt til friðar og afvopnunar, með banni á kjarnorkuvopnum og öllu þvi sem þeim fylgir. Þær gífurlegu fjárhæðir sem varið er til vígbúnaðar ber að nota til að draga úr fátækt, sjúkdómum, misrétti og barnadauða í fátækum löndum heims. Við teljum komið að þeirri stund að íslendingar taki aftur upp þá hlutleysisstefnu sem lýst var yfir árið 1918. 6 Markmið Kvennalistans hefur frá upphafi verið að hrinda af stað hugarfarsbyltingu hvað varðar stöðu kvenna, barna og þess hvernig samfélagið hér á að vera. Allt er þetta spurning um vilja og lýðræðishugsun. Það er ekki nema eðlilegt að konur hafi mikil og margvisleg áhrif á mótun samfélags okkar, við eigum að vera alls staðar þar sem ráðum er ráðið. Það kostar hugrekki að breyta og reyndar peninga líka. Við Kvennalistakonur viljum nota sameigin- lega sjóði okkar til uppbyggingar atvinnulífs, félagslegrar þjónustu og velferðar einstaklinganna. Konur góðar, ef þið viljið vera með í að bæta stöðu kvenna og búa börnum betri veröld, þá eigið þið samleið með Kvennalistanum. Er sigur Kvennalistans ekki besta leiðin til að stiga eitt skref enn í kvennabaráttunni? 27

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.