Vera - 01.04.1991, Page 29

Vera - 01.04.1991, Page 29
ÞETTA ER MITT LIF Ég er fædd í Ási við Sólvallagötu í Reykjavík, þann 14. nóvember 1940. Mamma mín heitir Kirstín Lára Sigurbjörnsdóttir en kallar sig alltaf Láru. Pabbi minn er Ásgeir Ó. Einarsson dýralæknir. Þau eru bæði í starfl ennþá þó að þau séu orðin fullorðin enda ákaflega dugleg. Pabbi passar bókasafnið á Elliheimilinu Grund, sem afl minn stofnaði, og mamma kennir alltaf handavinnu í félagsstarfl aldraðra. Mamma lærði handavinnu í Danmörku og þó hún hafl ekki réttindi sem handavinnukennari hefur hún kennt lengi. Þau pabbi kynntust þegar hún kenndi við Hús- mæðraskólann á Hallormsstað en hann var héraðsdýralæknir fyrir austan. Það var alltaf mikið að gera hjá honum enda voru bara sex dýralæknar á landinu þegar hann kom frá námi og mamma hjálpaði honum alltaf mikið, blandaði lyf, svaraði í síma og fleira. Mamma er líka fædd í Ási. Afl minn séra Sigurbjörn Ástvaldur Gíslason og kona hans, Guðrún Lárusdóttir alþingismaður, byggðu Ás 1906 og bróðir ömmu, Pétur, byggði Hof, húsið við hlið- ina á. Afl minn bjó alltaf hjá okkur í Ási. Eftir lát ömmu minnar fluttu foreldrar mínir til hans og hafa búið þar síðan. Amma drukknaði ásamt tveimur dætrum sínum í Tungufljóti árið 1938. Önnur dóttir hennar var nýgift og barns- hafandi svo að það má eiginlega segja að Qórir hafi farist. Afl, sem sat frammí hjá bílstjóranum komst út úr bílnum. Þetta var hræðilegt slys. Þau eignuðust tíu börn en aðeins flmm náðu fullorðinsaldri. Ég fæddist tveim- ur árum eftir slysið og var geflð nafn ömmu minnar. Ég kom að vissu leyti í stað ömmu og ólst upp í skugga þessa hræðilega slyss. Við erum flmm systkinin, fjórar systur og einn bróðir. Systur mínar búa allar i sömu götu í Mosfellsbæ en líklega mun ég aldrei búa við sömu götu og þær þvi ég vil alltaf vera aðeins öðru- vísi. Síðan ég flutti úr Reykjavik hef ég verið alveg einlægur dreif- býlingur. Við erum mjög samhent systkinin og börn systra minna alast mikið upp saman. Ás hefur alltaf verið miðpunktur fyrir alla fjölskylduna, það er fjölskyldu Einar Hildibrandsson hefur þarna leyft mér aö sitja á hestinum sínum og Guöbjörg Pálsdóttir barnfóstra mín horfir á. Einar var meö síöustu kerrumönnum í bœnum. Ég er tveggja ára. Mamma meö okkur þrjú elstu börnin, öll í heimasaumuöum kápum. mömmu. Reyndar kom líka fjölskylda pabba mikið þangað þegar ég var barn, en það er nú stundum svo að fjölskylda föðurins fjarlægist meira en fjölskylda móðurinnar. Alveg frá því að ég man eftir mér hefur verið haldið uppá afmæli afa Sigurbjarnar með þvi að allir afkomendurnir safnast saman. Við höfum því haldið ættarmót árlega í um hálfa öld. Mig hefur oft vantað, líka í hinn árlega laufabrauðsskurð, en þau eru orðin svo vön þvi. Ég reyni þó alltaf að koma þegar ég get. IVIamma var lengi formaður KRFÍ og amma var önnur konan sem tók sæti á alþingi. Ég er þvi alin upp við umræður um kven- réttindi og það hefur eflaust haft mikil áhrif á mig. Ég hef aldrei haft neina minnimáttarkennd gagnvart karlmönnum. Mér hefur alltaf þótt svo sjálfsagt að allir væru jafnir eða jafnvel að litið væri á stúlkur sem hæfari til svo margra hluta. Það var ekki bara í bernsku og æsku sem það var alið upp i mér heldur líka í hjóna- bandi mínu. Maðurinn minn segir svo oft að konur séu miklu fljótari að fatta, miklu skýrari í hugsun! Mér flnnst jafnrétti þvi alveg sjálfsagt. Samt valdi ég hefð- bundið kvennastarf og fór í hús- mæðrakennaranám. Ég var i Kvennaskólanum og þar var landspróf, en þessi ár lögðust einhvern veginn ekki nógu vel í mig og ég hætti við að fara í landspróf en tók gagnfræðapróf. Þá var orðið of seint að fara í stúdentspróf. Ég vissi þvi ekki almennilega hvað ég átti að læra en ég hafði alltaf verið svo óskap- lega „myndarleg“. Ég segi mynd- arleg innan gæsalappa þvi ég hataði það! Systkini mömmu og pabba voru alltaf að segja: Sjáiði hana Guðrúnu Láru, hún er svo myndarleg, svona ættir þú að vera. Ég var mjög dugleg að baka fyrir mömmu og gera allt mögu- legt á heimilinu. Hún saumaði mikið og þá gat ég, sem elsta barn, frekar séð um ýmislegt ann- að á heimilinu. Það var reyndar stúlka heima þangað til ég var tólf, þrettán ára. Þannig að það lá einhvern veginn beint íyrir að fara í Húsmæðrakennaraskólann. Það tók heldur ekki svo langan tíma en ég mátti alls ekki vera að þvi að fara í langt nám þvi ég átti eftir að skoða heiminn. Mér lá svo á að 29

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.