Vera - 01.06.1992, Blaðsíða 10

Vera - 01.06.1992, Blaðsíða 10
Ljósm.: Þórdís Ágústsdóttir ásamt fæðingardagpeningum, 1052 kr. á dag. Karlar, bæði þeir sem eru fastráðnir hjá ríkinu og á hinum almenna vinnumarkaði, fá yfirleitt aðeins dagpeninga frá Tryggingastofnun. Karlar sem starfandi eru á hinum almennna vinnumarkaði og eiga konur sem starfa hjá hinu opinbera, fá engar peningagreiðslur frá Trygginga- stofnun ef þeir taka sér fæðingar- orlof. Ef lesendum finnst málið ílókið þá eru þeir ekki einir um það. Elsa Þorkelsdóttir, fram- kvæmdastjóri Jafnréttisráðs kall- ar þetta „algjört klúður". Fyrir fáeinum árum var þetta kært til Jafnréttisráðs en þá taldi ráðið ekki að um brot á jafnréttislögum væri að ræða því fæðingarorlof væru sérréttindi kvenna. Nú hef- ur aftur verið lögð fram kæra af karli sem er á hinum almenna vinnumarkaði og á konu sem vinnur hjá hinu opinbera og nú er bara að bíða og sjá hvað hið nýja Jafnréttisráð ályktar. Karlar hafa annars ekki kvartað yfir þessum lögum því langflestir eru ekkert að hugsa um að fara í fæðingar- orlof og láta konurnar einar um þetta. Björninn er ekki unninn þó svo að bæði kynin fengju jafnan rétt til að taka fæðingarorlof með sömu peningagreiðslum. Hugs- unarháttur atvinnumarkaðarins gagnvart körlum sem hafa áhuga á að fara i fæðingarorlof er ekki hvetjandi. Menn sem hafa hugsað sér að vera með nýfæddu barni sínu eru ekki álitnir traustir starfskraftar og starfsbræður þeirra gera gys að þeim. Karlar í Svíþjóð sem geta tekið fæðingar- orlof jafnt og konur taka það oft ekki vegna andstöðu sem þeir mæta á vinnumarkaðnum. Ef karlar hafa áhuga á að breyta þessum hugsunarhætti þá er það þeirra að vinna að því, þetta er hugsunarháttur karla gegn körlum. ICannski hafa kynin fundið hér „sameiginlegan óvin“ sem er vinnumarkaðurinn. Það er jú hann sem er að gera öllum erfitt fyrir með því að gera ekki ráð fyrir að fjölskyldulífið skipti fólk máli. □ ÞB 10

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.