Vera - 01.06.1992, Blaðsíða 35

Vera - 01.06.1992, Blaðsíða 35
Þ i n g m á I sem augljóslega flnnst vegið að frelsi sínu. Þetta frumvarp var ekki afgreitt á þessu þingi í heild sinni, heldur aðeins hluti af því, sem þurfti að lögfesta vegna breytinga á dómstólakerfinu, svo og ákveðnar réttar- bætur vegna skilnaðar, sem allir voru sammála um. Ágreiningsatriðin bíða betri tíma, þ.á m. ákvæðið um rétthæð hjóna. Þörff ffyrir öffluga fjölskylduráðgjöf Ný barnalög voru afgreidd, og eru þar mörg ákvæði til hagsbóta fyrir börn. Kvenna- listakonur studdu frumvarpið, en skiluðu þó séráliti, einkum vegna ákvæðis um heimild til sameiginlegrar forsjár eftir skilnað for- eldra. í álitinu segir m.a.: „Sameiginleg forsjá foreldra krefst náins samstarfs þeirra, og því er mikilvægt fyrir foreldra og börn, að kostur sé á vandaðri ráðgjöf, áður en slík ákvörðun er tekin. Því miður er slík ráðgjöf ekki í boði ennþá hér á landi nema í mjög takmörk- uðum mæli.“ Margir umsagnaraðilar lögðu einnig áherslu á þetta atriði, svo sem Barnaheill, Foreldrasamtökin, Félagsmála- stofnun Reykjavíkur, Dómarafélagið o.fl. í samræmi við þetta lagði Kvennalistinn til breytingatillögu um þriggja ára frestun á gildistöku ákvæðisins um sameiginlega forsjá, svo að ráðrúm gæfist til að koma öflugri íjölskylduráðgjöf á laggirnar. Tillagan var felld og einnig tillaga um afnám dagsekta fyrir að nota ekki umgengnisrétt. Meira um börn Þá samþykkti Alþingi fullgildingu samn- ings um réttindi barna, sem Sameinuðu þjóðirnar samþykktu árið 1989, en í honum eru mörg ákvæði, sem verða munu leiðarljós í umfjöllun um réttindi barna hér á landi sem annars staðar. Einnig voru samþykkt ný lög um vernd barna og ungmenna, og eru þar ýms nýrnæli. Yfirstjórn barnaverndarmála ílyst til félagsmálaráðuneytis, sem fer hér eftir með ráðgjöf og eftirlit með störfum barnaverndar- nefnda. Það verkefni var áður á könnu barnaverndarráðs, sem nú verður aðeins niálskotsaðili og nálgast með því eðli dóm- stóls. Kvennalistakonur telja hins vegar, að stefna beri að því, að foreldri, sem svipt er forsjá barns síns, eigi kost á úrskurði dómstóls rétt eins og foreldrar, sem deila um forræði barna sinna. Þá var í frumvarpinu kveðið á um stækkun barnaverndarum- dæma, en barnaverndarstarf hefur oft strandað á smæð sveitarfélaga, bæði vegna skorts á íjármagni og sérþekkingu. Átti að fela héraðsnefndum barnaverndarmál, en Þegar til átti að taka strandaði það á and- stöðu Sambands íslenskra sveitarfélaga. Þessu ákvæði var |jví breytt til fyrra horfs í nteðförum þingsins, en þó þannig að oiinnstu sveitarfélögin skulu sameinast um Þennan málaflokk. Kvennalistakonur voru ekki sáttar við þessa niðurstöðu, en studdu Tiálið að öðru leyti í meginatriðum. Sérálit um kynferðisafbrot Þá voru lögfestar breytingar á hegninga- lögunum með ýmsum mikilvægum réttar- bótum fyrir þolendur kynferðisbrota. Kvenna- listakonur skiluðu þó séráliti og breytinga- tillögum, sem voru allar felldar af meirihluta Alþingis. Þær lutu m.a. að því að nota orðið „manneskja" í stað „maður" um fólk af báð- um kynjum, þar sem síðarnefnda orðið hefur í raun merkinguna karlmaður í huga fólks. Þá vildu Kvennalistakonur fella brott refsi- ákvæði fyrir mök milli systkina, þar eð í því fælist sú hætta, að fórnarlambi sifjaspella yrði refsað jafnt og þeim, sem misnotar það. Loks vildu þær fella brott ákvæði um refs- ingu fyrir vændi og telja, að almennt siðgæði sé varið með öðrum ákvæðum laga. Þær telja rangt að refsa fyrir vændi á þeirri forsendu, að þær sem stunda vændi séu oftar en ekki fórnarlömb félagslegra aðstæðna, kynferðis- legs ofbeldis í æsku eða fíkniefnaneytendur. Þeir sem kaupa vændi eru því að notfæra sér neyð jíeirra, sem selja það, en kaupin teljast hins vegar ekki refsivert athæfi. Þingmál Kvennalistans Þingkonur Kvennalistans eru þær Anna Ólafsdóttir Björnsson, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Jóna Valgerður Kristjánsdóttir, Kristin Ástgeirsdóttir og Kristín Einarsdóttir. Þá sátu fjórar varakonur þingið í 2-3 vikur hver, þær Guðný Guðbjörnsdóttir, Guðrún J. Halldórsdóttir, Kristín Sigurðardóttir og Ragnhildur Eggertsdóttir. Kvennalistakonur lögðu fram 5 frum- vörp, 1 1 tillögur til þingsályktunar, beindu 60 formlegum fyrirspurnum til ráðherra og áttu nokkrum sinnum frumkvæði að um- ræðum utan dagskrár um skólamál, um sjúkrahúsin í Reykjavík, Fæðingarheimilið og málefni Menntamálaráðs og Menningar- sjóðs. Þær lögðu fram eftirtalin frumvörp: ■ urn breytingar á lögum urn fæðingarorlof þess efnis að óheimilt verði að segja foreldri upp starfí eða færa það til í starfi að orlofí loknu án þess samþykkis, ■ um breytingar á skattalögum þess efnis, að afnumin verði tvísköttun á lifeyris- greiðslur, ■ um grundvöll lánsviðskipta, sem felur það í sér, að linað verði á kröfunni um ábyrgðarmenn, sem alltof oft lenda í fjárhagserfiðleikum, þegar lántakandi getur ekki staðið í skilum, ■ um lögfræðiráðgjöf og aðstoð í hjú- skapar-, sambúðarog siíjaréttarmálum, ■ urn stofnun barnalífeyrisnefndar, sem rneti kostnað við framfærslu barns og geri tillögu til ráðherra um árlegan barnalífeyri og þá um leið nteðlag á grundvelli þess mats. Þingsályktimartillögurnar eru ■ um rannsóknir og undirbúning að framleiðslu vetnis, ■ um átak í atvinnumálum á Suðurnesjum og aðgerðir vegna mikils atvinnuleysis kvenna þar, ■ um eflingu íþróttaiðkunar kvenna, tillagan var samþykkt, ■ um afnám misréttis gagnvart samkyn- hneigðu fólki, tillagan var samþykkt, ■ um samningu frumvarps til laga um sveigjanlegan vinnutíma, ■ um einföldun á endurgreiðslu virðis- aukaskatts til erlendra ferðamanna, til- lagan var samþykkt, ■ um athugun á líklegum áhrifum aðildar íslands að EES á efnahagslega og félagslega stöðu kvenna, ■ um miðlun upplýsinga um réttarstöðu fólks í vigðri og óvigðri sambúð, ■ unr nefnd til þess að athuga, hvernig nýta megi sögu þjóðarinnar. sögustaði, þjóðhætti, verkmenningu og bókmenntir til að efla og bæta ferðaþjónustu hér á landi, ■ um sérstakar aðgerðir til að draga úr kynjamisrétti og bæta stöðu Qölskyldu- fólks á vinnumarkaðnum, ■ um auðlindakönnun í öllum lands- hlutum. Stuttaraleg upptalning af þessu tagi segir að sjálfsögðu alltof lítið, en bent skal á, að ijallað er reglulega um þingmál Kvenna- listans í mánaðarlegu Fréttabréfi. Einnig má leita nánari upplýsinga hjá þingflokknum og fá þingmálin send, ef óskað er. □ Kristín Halldórsdóttir TILKYNNING TIL ÁSKRIFENDA Munið að tilkynna ný og breytt heimilisföng. Greiðið heimsenda giróseðla hið fyrsta. VERA er rekin ó áskriftum og pað munar um hverja. Hægt er að borga áskriftina með greiðslukorti. Það er bæði ódýrast og þægilegast fyrir VERU. Hér er ein gleðifrétt: A síðustu vikum hafa tæplega þúsund nýir áskrifendur bæst í hópinn! Við bjóðum þá hjartanlega velkomna og vonum að fleiri eigi eftir að bætast við. VERA, Laugavegi 17, s. 91 -2 21 88 35

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.