Vera - 01.06.1992, Side 34

Vera - 01.06.1992, Side 34
Þ i n g m á I HERT AÐ HAGSMUNUM KVENNA „Allir vetur enda taka“, segir í kvæðinu, og sama má segja um þingannir. Samkvæmt nýjum þingsköpum situr reyndar þing nú allt árið, svo að auðvelt er að kalla til þingfunda og nefndafunda, ef þörf krefur. Svo verður einmitt nú að þessu sinni vegna EES-samningsins, sem reyndar er búið að ræða oft og mikið í þingsölum á nýliðnum vetri. Fjallað verður um samninginn og frumvörp honum tengd í þingnefndum í sumar, en því næst verður nýtt þing sett 17. ágúst eða rúmlega sex vikum fyrr en lög mæla fyrir um. 115. löggjafarþingið hefur verið ólíkt öllum öðrum þingum, sem Kvennalista- konur hafa setið. Það hefur einkennst af slæmum vinnubrögðum, yfirgangi stjórnar- þingmanna og kröftugu andófi stjórnarand- stöðu. Dijúgur tími hefur farið í umræður utan dagskrár um margvísleg málefni, en ekki síður um þingsköp, þar sem skort hefur á eðlilegt samráð þingflokka um þingstörfin. Sótt að velferðinni Mikill ágreiningur hefur verið um ýms frumvörp rikisstjórnarinnar. Má þar sér- staklega minna á fjár 1 agafrumvarpið og bandorminn illræmda, þ.e. ráðstafanir í ríkisfjármálum, sem höfðu í för með sér margskonar þrengingar og auknar álögur á almenning. Velferðarkerfið hefur mátt sæta stöðugum árásum núverandi ríkisstjórnar, sem Kvennalistakonur hafa af öllum mætti reynt að vinna gegn, enda hafa ilestar þær breytingar mun meiri áhrif á líf kvenna en karla. Því minni þjónustu sem velferðar- kerfið veitir, þeim mun meira verða konur að leggja af mörkum. Hinu má svo ekki gleyma, að velferðarkerfið þjónar ekki síður atvinnu- lífinu vel og dyggilega og því eðlilegt að atvinnurekendur greiði verulegan hluta af rekstri þess, en kostnaðinum sé ekki að stærstum hluta velt yfir á "neytendur”, eins og núverandi ríkisstjórn vill gera. Breiðu bökin barnafólksins Kvennalistakonur beittu sér ákaft gegn niðurskurði barnabóta og bentu m.a. á þá kaldhæðnislegu staðreynd, að nú vildi ríkisstjórnin lækka heildargreiðslur barna- bóta um samsvarandi upphæð og notuð var til hækkunar bóta í tengslum við álagningu matarskattsins illræmda árið 1988 og átti þá að sanna, hversu réttlátlega byrðunum skyldi dreift. Engin rök hrinu á stjórnar- sinna í þessu efni, og þvi miður var ekki um veruleg mótmæli að ræða utan þings, eins og raunin var hins vegar með sjómanna- afsláttinn. Ekkl vant.aði hins vegar hörð viðbrögð kennara og foreldra við niðurskurði í skóla- kerfinu, sem þýðir m.a. færri kennslu- stundir og ótímasetta frestun á nýsettum lagaákvæðum um einsetinn skóla og skóla- máltíðir. Menntamálaráðherra lét sem hér væri bara um skammtíma ráðstafanir að ræða, en ljóst er, að ekki sér fyrir endann á því ástandi, þrátt fyrir harða andstöðu, þar sem Kvennalistakonur létu ekki sitt eftir liggja. Lítil merki um raunverulegan sparnað Sama er að segja um niðurskurðinn í heil- brigðiskerfinu, sem ber lítil merki um fagleg sjónarmið né raunverulegan sparnað til lengri tíma, og eru breytingarnar á rekstri Landakotsspítala og Fæðingarheimilisins hrópandi dæmi þar um. Kvennalistakonur beittu sér af fremsta megni gegn þeim aðgerðum og efndu m.a. tvívegis til umræðu utan dagskrár um þessi efni. Það hafði vissulega sín áhrif, þó enn skorti verulega á skilning ráðamanna á því, hvað hér er um að ræða, ekki síst að því er varðar Fæðingar- heimilið. Baráttunni fyrir tilveru heimilisins og þeim hugmyndum, sem búa að baki starfsemi þess, er þó hreint ekki lokið. Þjarmað að námsmönnum Þá var ekki síður harður slagur um Lánasjóð íslenskra námsmanna. Hann hefur gegnt mikilvægu hlutverki til jöfnunar réttar til náms og m.a. tryggt mörgum konum möguleika til menntunar við sitt hæfi án þess að reisa sér fjárhagslegan hurðarás um öxl. Nokkrar lagfæringar fengust á frumvarpi ríkisstjórnarinnar um breytingar á lögunum um L.Í.N., en illu heilli tókst ekki að koma í veg fyrír lögfestingu heimildar um allt að 3% vexti á námslán, auk þess sem reglur um endurgreiðslur lánanna eru hertar verulega. Þá var lögfest sú breyting, að námslán verða aldrei veitt fyrr en skilað hefur verið vottorði um tilskylda skólasókn og námsárangur. Um þetta atriði urðu mikil átök, og það voru ekki aðeins námsmenn og þingmenn stjórnarandstöðu, sem vöruðu eindregið við aíleiðingum þessa, heldur fjölrnargir aðrir og m.a. pistlaog leiðarahöfundar DV og Morgunblaðsins. En allt kom fyrir ekki, og ekki er vafamál, að þetta ákvæði leggur stein í götu kvenna, sem hyggja á langskólanám. Mólefni fatlaðra og fullorðinsfræðsla Sem betur fer hafa þó ekki öll þingmál ríkisstjórnarinnar verið jafn hábölvuð, og reyndar komu fram óvenju mörg mál, sem höfðuðu sérstaklega til Kvennalistakvenna. Má þar nefna frumvarp um málefni fatlaðra, þar sem horfið er frá áherslu á stofnana- þjónustu og meira mið tekið af einstaklings- þörfum fatlaðra. Kvennalistakonur studdu í öllum meginatriðum þetta frumvarp, sem var lögfest á síðasta degi þingsins. Þá fögnum við sérstaklega langþráðri löggjöf um fullorðinsfræðslu, en Guðrún J. Halldórsdóttir átti einmitt stóran þátt í undirbúningi hennar og hafði margsinnis ýtt á eftir framkvæmd málsins á þingi og annars staðar. Má raunar furðulegt heita, að það hafi ekki fyrr náð fram að ganga, þrátt fyrir margar tilraunir í meira en tvo áratugi. Markmið laganna er að stuðla að jafnrétti fullorðinna til að afla sér menntunar án tillits til búsetu, aldurs, kyns, starfs eða fyrri náms, og áhersla er lögð á að bæta aðstöðu þeirra, sem minnsta menntun hafa fengið og lakasta námsaðstöðu. Hjón verði jafn rétthó Þá kom fram frumvarp um breytingar á hjúskaparlöggjöfinni, sem horfa til bóta í mörgu. Þar er t.d. að finna ákvæði um, að hjón séu í hvívetna jafn rétthá og að þau skuli í sameiningu annast uppeldi og velferð barna sinna. Ennfremur að vinna á heimili feli í sér framlög til framfærslu Ijölskyld- unnar. Mörgum kann að finnast slík ákvæði óþörf, en svo er því miður ekki, eins og sannast hefur af viðbrögðum margra karla, 34

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.