Vera - 01.06.1992, Síða 19

Vera - 01.06.1992, Síða 19
ÞJÁIST ÞÚ AF KARLMANNSLEYSI? Um leiö og þú lest eftirfarandi spurningar skaltu merkja viö þœr sem eiga viö um þig. Aö því loknu skaltu telja þœr saman, margfalda meö tveimur og leggja aldur þinn saman viö. Þannig sést hversu þurfandi þú ert. 0-60 stig: Þúlýgur. 61-70 Athugaðu púlsinn. 71-80 Kannaðu hormónastigið. M 81-90 Farðu til kynlífsfræðings. fH 91-100 Karlmannsleysi i meðallagi. 101-110 Heittblóð... 111-120 Þú er kvenkyninu til sóma. ^gsOSjiijJjrasSS 121-130 Karlmannsleysið þjakar þig mjög. 131-140 Þú ert ógn við umhverfið. 141-150 Þú ert kynlífsfikill. ^ HVE LANGT ER SÍÐAN SÍDAST? □ Nægir að tala um kynlíf til að hiti breiðist um líkamann? □ Roðnar þú þegar þjónar spyrja þig hvað þú vilt? □ Gengur þú alltaf með sólgleraugu til að geta tékkað á karlmönnum? □ Sólbrennur í þér tungan þegar þú ert í nektarnýlendu? □ Kernur móða innan á bílrúðuna þegar kynþokkafullur karl fer fram hjá? □ Ferðu á fótboltaleiki og balletsýningar einungis til að horfa á kroppana? □ Dreymir þig Hallgrímskirkju á nóttunni? LEGGUR ÞÚ HARÐAR AÐ ÞÉR NÚ EN ÁÐUR? □ Ertu áskrifandi að erlendum myndalistum? □ Auglýsir þú í einkamáladálki DV? □ Hringir þú óeðlilega oft í skakkt númer í von um að hitta á karlmann? □ Svarar þú símanum við fyrstu hringingu? □ Ertu fastagestur í heita pottinum milli sjö og átta á morgnana? □ Ertu kornin í Rotaiyklúbb? HVERSU ÖRVÆNTINGARFULL ERTU? □ Ertu að hugsa um að fara út með skíthælnum í vinnunni? □ Ertu að velta því fyrir þér hvort sá fyrrverandi var kannski ekki svo slæmur þrátt fyrir allt? □ Sækir þú jarðafarir eingöngu til að lita á ekkjumenn? □ Ertu farin að ímynda þér hvernig yfirmaður þinn litur út nakinn? □ Fellur þú í staíi þegar þú sérð huggulegan karlmann borða ís í brauðformi? □ Æsir það þig að ydda blýanta? □ Káfar þú á styttum af körlum á listsýningum? □ Ertu að íhuga innbrot í von um að kynnast lögregluþjónum? □ Hlakkar þú til að fara til kvensjúkdómalæknis? □ Ertu reiðubúin að borga fyrir það? ER „ÞETTA" LAGST Á SÁLINA? □ Eru alltaf bananar í ávaxtaskálinni? □ Trúir þú á losta við fyrstu sýn? □ Finnur þú alls staðar fyrir erótiskum straumum? □ Gefur þú karlmönnum einkunnir frá einum upp í tiu? □ Ertu með reglustiku á þér? □ Sleikir þú mikið á þér fingurna eftir máltiðir? □ Þegar þú ert með manni ertu þá að hugsa um aðra á meðan? □ Getur þú sagt: Heima hjá mér eða þér? á meira en fimm tungumálum? □ Lestu allar bækur sem hafa orðið ástríður í titlinum? ERTU AÐ VERÐA SJÁLFRI ÞÉR OF NÓG? □ Rennir þú þér niður handriðið í stað þess að fara niður stigann? □ Ertu komin með vöðva á fingurna? □ Notar þú sturtuhaus með nuddi? □ Þurrkar þú skaparhárin með hárblásara? □ Finnst þér gott að sitja á hælnum á skónum þínum? □ Er nöglin á einum fingri styttri en á hinum? □ Notar þú nuddpottana í sundlaugunum í ósiðsamlegum tilgangi? □ Hallar þú þér upp að þvottavélinnl á meðan hún vindur? LEGGUR ÞÚ OF HART AÐ ÞÉR? □ Titlar þú þig kynlífsráðgjafa í simaskránni? □ Ertu hætt að mæta í nærfötum í vinnuna? □ Ertu með silkiáklæði á stofusófanum? □ Skrifar þú símanúmerið þitt á veggi á karlaklósettum? □ Ertu með símboða til að missa aldrei af símtali? □ Stendur i auglýsingunni þinni í einka- máladálkinum að þú sért til í allt, hvar sem er, hvenær sem er? ERU KRÖFURNAR AÐ MINNKA? □ íhugar þú að flytja inn karlmann frá útlöndum? □ Samþykkir þú að mæta á stefnumót með mönnum sem þú veist ekkert um? □ Heyrir þú sjálfa þig segja um sífellt fleiri karla: Ég myndi ekki sparka honum framm úr rúminu mínu...? □ Er stærð ekki lengur aðalatriðið svo lengi sem það hreyfist? □ Ef öfuguggi hringdi í þig, værir þú til i að fara með honum út? □ Ertu að hugsa um að bæta kvæntum körlum á listann hjá þér? HEFUR ÞÚ TILEINKAÐ ÞÉR UNDARLEGA SIÐI? Setur þú þig í stellingar nakin fyrir frarnan spegil? Dregur þú gluggatjöldin frá á meðan þú háttar? Hefur bókmenntasmekkurinn færst frá ljóðum yfir í erótík? Ferðu í læknisleik við sjálfa þig? Ertu hætt að nota tyggjó og farin að nota snuð? Horfir þú eingöngu á klámspólur? Nýtur þú þess að fá þér vfndil? Gælir þú við gúrkur í verslunum? HVAÐ SEGJA AÐRIR UM ÞIG? Neita karlmenn að fara með þér í lyftu? Forðast graðir karlmenn þig? Neita vinir þínir að kynna þig fyrir einhleypum körlum? Hefur þú verið ákærð fyrir kynferðislega áreitni á vinnustað? Biðja eigendur myndbandaleiga þig að mæla með spólum fyrir fullorðna? Er þér ekki hleypt inn á vissa skemmtistaði? Benti einhver þér á þetta krossapróf? RV stal, stœldi og staðfœrði upp úr The Horny Woman's Quiz Book. 19

x

Vera

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.