Vera - 01.06.1992, Page 22
• •
UM FJOLL & FIRNINDI
Liggjandi upp í afdölum að
kvöldlagi i svefnpoka, drekkandi
heitt súkkulaði og virða fyrir sér
hrikalega íslenska náttúru í
sumarbirtunni er nokkuð sem
margar konur dreymir um. Fáar
láta hinsvegar drauminn rætast
heldur láta sér nægja að fara inn
í Þórsmörk eða Landmannalaug-
ar. Þaðan er þó stutt í ótrúlega
fallega staði sem fáir vita af, þvi
að þangað verður að ganga og
bera allan farangur.
Hingað til hafa fáar konur litið
fegurstu staði landsins augum
vegna þess að þær hafa hvorki þá
þekkingu sem þarf né eiga
nauðsynlegan útbúnað. En nú
geta konur ráðið bót á þessu, því
að í júlí og ágúst mun Vilborg
Hannesdóttir vera með helgar-
ferðir um hálendið fyrir konur.
Tilgangurinn með sérstökum
kvennaferðum er að gera konur
sjálfbjarga á hálendinu með því
að miðla ákveðinni þekkingu til
þeirra. „Það eru alltof fáar konur
á fjöllum og of margar halda að
þetta sé svo erfitt," segir Vilborg
og bætir við „að auðvitað er þetta
ekkert erfitt þegar maður hefur
nauðsynlega þekkingu." Ævin-
týrið byrjar á þvi að hópurinn
hittist viku fyrir brottför og
Vilborg útskýrir hvernig á að
útbúa sig fyrir þriggjadaga bak-
pokaferð, hvaða fatnaður er
nauðsynlegur, hvernig matur er
hentugastur og hvernig á að
pakka niður í bakpoka svo hann
verði ekki of þungur. Hópurinn
ákveður ferðaleiðir en sú ferð sem
hefur verið hvað vinsælust byrjar
í Landmannalaugum. Þar er gist
eina nótt og svo er haldið af stað
næsta morgun upp í Hrafn-
tinnusker og tjaldað á fallegum
bala skammt frá rótum Torfa-
jökuls. Næsta dag er gengið yfir
jökulinn og niður í Strútslaug þar
sem konur geta baðað sig í heitri
laug. Seinasta daginn er svo
gengið meðfram Svartahnúks-
íjöllum um Ófærudal inn í Álfta-
vatnskróka og áfram að Eldgjá. „Á