Vera - 01.06.1992, Page 26
HREYFA SIG
Þrátt fyrir niðurskurð
ríkisstjórnarinnar á
þeim stöðum sem síst
skyldi og slæmt útlit í
atvinnumálum lands-
manna um þessar mundir er
óhætt að segja að við liíúm í vel-
ferðarþjóðfélagi og að við höfum
það bara gott.
Tækniþróun og vélvæðing síð-
ustu ára og áratuga hefur haft í
för með sér að verulega hefur
dregið úr líkamlegri erfiðisvinnu
og sumir vilja halda þvi fram að
heilbrigðisástand almennings
hafi jafnvel versnað. Sjúkdóm-
arnir hafa breyst í samræmi við
lifnaðarhætti og orsakast nú af:
■ Streitu.
■ Óhollu mataræði.
■ Skorti á hreyfingu.
Heilsugæsla okkar hefur aðal-
lega miðast við að lækna sjúk-
dóma - ekki að koma í veg fyrir
þá. Þess vegna verður HVER OG
EINN að sinna heilsu sinni
sjálfur.
ENGINN HÆTTIR AÐ REYKJA
EÐA FER í LÍKAMSRÆKT FYR-
IR ANNAN EN SJÁLFAN SIG.
Þú ert eins ung og þú lítur út
fyrir að vera - eru orð að sönnu.
Lífaldur einn og sér skiptir ekki
mestu máli fyrir þig, heldur það
hvernig þú ert líkamlega á þig
komin - í hversu góðu „formi"
lungu, hjarta og æðakeríi eru.
Með því að hugsa um heilsuna og
stunda líkamsrækt getur þú
hæglega verið ung í mörg, mörg
ár!!!
Nokkra líkamlega eiginleika er
nauðsynlegt að bæta eða halda
þeim í góðri þjálfun þegar um
heilsuna er að ræða. Gott ÞOL er
þó það mikilvægasta og er
grunnurinn að góðu likamsformi.
Einfaldasta og ódýrasta leiðin
til þess að halda góðu þoli eða
auka við það er að SKOKKA.
Aðrir möguleikar eru:
■ skiðaganga
■ skautahlaup
■ hjólreiðar
■ leikfimi/eróbikk
■ sund
■ ýmsir boltaleikir
m.a. knattspyrna.
Ég ætla í lokin að gefa ykkur góða
þjálfunaráætlun fyrir byrjendur í
skokki. Hún er mjög einföld, <
maður verður bara sjálfur að
26