Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.06.1916, Blaðsíða 4

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.06.1916, Blaðsíða 4
22 hús nr. 84, þriðja við Kveldúlf á Vatnsstíg, fjórða í jaðri Vesturgötu milli Duus og Björns Kristjánssonar verslana, íimta niður við sjó hjá Slippnum, sjötta niður við sjó hjá Seli, sjöunda á Melunum milli Tjarnargötu og Suðurgötu, áttunda á Laufásvegi fyrir ofan Barnaskólann, níunda við Kennaraskólann og tíunda á horninu milli Skólavörðustígs og Bergstaða- strætis. Alls eru það þá 22 punklar, sem jeg hef merkt á þenna hátt. Hornin í þríhyrninganetinu verða mæld 3 sinnum með hornmæli, sem gefur xh'. Lengsta hliðin er rúm- ir 2,5 km. Nokkrar byggingar (turna) hef jeg sett í samband við netið: Dómkirkjuna, Fríkirkjuna, Landakotskirkjuna, Skólavörðuna og Völund. Alít jeg, að allir þessir punktar sjeu nægilegir til þess að setja nýjar mælingar í samband við þessar án mik- illa erfiðleika. Ut frá þríhyrninganetinu hef jeg ákveðið punkta sem lóðamælingarnar eru tengdar við, á þrjá vegu: ýmist með afturskurði (Tilbageskæring), framskurði (Fremskæring) eða pólýgónum. Pólýgónpunktana hef jeg merkt með trjehælum, sem víðasthvar má reka niður í götuna með hamri; liliðarnar eru þetta frá 50 m og upp í 200 m; horn- in í pólj'gónunum mæli jeg 2 sinnum með litlum hornmæli; hliðarnar mæli jeg 2 sinnum með stál- bandi; sumar þeirra nívellera jeg. Frá þessum línnm mæli jeg svo öll mannvirki: hús, girðingar, götur, gangstjettir, ofanjarðar skolp- ræsi, skurði, brunna, vatnsstoppara, brunahana, götuljósker, símastaura o. fl.; þar að auki mæli jeg takmörk, þar sem jarðvegur breytist. Mælingarnar eru gerðar með stálbandi (20 m), mælibandi (20 m) og þrístrendu prisma. Mælingarn- ar skrifa jeg inn á blöð með millimetrastrikum (rúðupappír); eru þau að stærð 19X32 cm; mæli- kvarðinn er 1 : 250; þær lengstu þverlínur, sem jeg get komið fyrir á þenna pappír, eru þá 47,5 m og er það hjer um bil sú lengd, sem mjer hefur fundist heppilegust. Þessi aðferð við bókun mælinganna er hentug, þar sem mikið þjettbýli er, en heldur er hún leiðinleg í útjöðrum kaupstaðarlóðarinnar. Þar myndi hentugra að brúka vasabókaraðferðina. Uppdrátturinn skal gerður í mælikvarðanum 1 : 500. Þegar hann er fullger eiga lóðareigendur að fá, ef óskað er, afrit af einstökum lóðum. Þegar uppdrátturinn er fullgerður, er lilætlunin, að skipaður verði 3 manna gerðardómur til að útkljá lóðaþrætur, að fullkomin lóðaskrásetning fari fram- og að sett verði á stofn lóðamælingaskrifstofa. Survey of the Town of Reykjavik. A summary of a lecture given in the Association of Civil-Engineers in Iceland December 2nd 1915, by Olafur Thorsteinsson C. E. The first survey of Reykjavik for registering purposes was commenced by the present mayor of Reykjavik K. Z i m s e n, who in the years 1902—1907 surveyed and mapped in the scale of 1 :500 the central part of the town. The present survey was commenced in May 1915 and has been carried on since then. As a basis for the survey a chain of triangles has been drawn around and through the town; it consists of a four- sided star and several triangles appended to it. The base line runs along a road’s side and measures about 710 m; it has been extended in the direction re- quired by the triangulation, by means of some smaller triangles, in a commonly used manner. The base line was measured four times by a steel band of 20 m length, and afterwards levelled. The chain of triangulation lias been connected with a triangulation line of the Survey of the Topographical Section of the Danish General’s Stall', both for verificatory purposes and for the sake of orientation. The apices of the triangulation liave been marked by pillars of concrete, formed as pyramidal stubs, of 75 cm. length. Into the pillar galvanized iron pipes of a pole’s width have been founded. Upon the pillar there has been screwed a cast iron case closed by a cast iron cover, that is screwed down by brass screws. The pillars are dug down with their top on a level with the earth’s surface*. 22 points have been marked in this manner. The angles have been measured by three pairs of read- ings by an ordinary transit theodolite, that gives '/»’• The longest side is about 2,5 km. Points for filling in details have been fixed either by minor triangulation or by traversing. The polygonal apices have been marked by wooden pickets, that have been knocked down into the strcct pavement by a hammer; the sides have been measured two times by a steel band and the angles by two pairs of readings by a smaller theodolite. In the survey are included all visible works as build- ings, endosures, streets, &c. The measurement is being made by a steel band, a linen tape (20 m), and a rect- angular isosceles glass-prism. The map is to be performed in the scale of 1:500. When the survey has been completed, and the map finished, a court of arbitration filled by three persons is intended to be established in order to decide between litigants, and a universal cadastral registration will take place.

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.