Ljósmæðrablaðið

Årgang

Ljósmæðrablaðið - 01.07.1962, Side 3

Ljósmæðrablaðið - 01.07.1962, Side 3
Ljósmæðrabl, IV.—V. Júlíus Sigurjónsson, prófessor: Meðfætt heyrnarleysi og önnur vanheilindi af völdum rauðra hunda Grein þessi birtist i Læknablaðinu nr. 2 1962, og er hér endur- prentuð með vinsamlegu leyfi höfundar og ritstjórnar Lækna- blaðsins. Rúmlega 20 ár eru liðin síðan ástralskir læknar bentu fyrstir manna á, að rauðir hundar geta valdið ýmis háttar meðfæddum vanheilindum. Mikill faraldur rauðra hunda hafði gengið um allt meg- inland Ástralíu á árunum 1938—1941, en um það leyti, eða þegar líða tók á faraldurinn, fæddust óvenjulega mörg börn með cataractablindu, og mörg þeirra höfðu einkenni hjartabilunar. Eftirgrennslun leiddi í ljós, að mæður fiestra barnanna höfðu fengið rauða hunda snemma á með- göngutímanum, og vakti N. McA. Gregg athygli á þessu í grein, sem birtist 1941. (2) Þetta voru vissulega óvænt tíðindi, en aðrar athuganir frá Ástralíu(12) og víðar að staðfestu von bráðar, að það er miklu algengara en svo, að tilviljun geti verið, að barn alið af móður, sem fengið hefur rauða hunda á öndverðum meðgöngutímanum, fæðist vanskapað eða með einhverja vöntun. Má þar til nefna heyrnarleysi, blindu (aðallega vegna cataracta), missmíð á hjarta og microcephalia, en margt fleira og smávægilegra getur og komið til. Smitun eftir þriðja mánuð, eða a.m.k. eftir fjórða mánuð, virðist þó hættulítil eða hættulaus.

x

Ljósmæðrablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.