Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.07.1962, Blaðsíða 21

Ljósmæðrablaðið - 01.07.1962, Blaðsíða 21
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ 55 Ef heyrnin er mjög lítil frá fæðingu er þó án efa heppi- legast að börnin geti gengið í sérskóla, með fáum nemend- um í hverjum bekk. Það er engum vafa undirorpið að heppilegast er að hafa slíka bekki í venjulegum skólum, svo bömin þurfi ekki að flytja að heiman og skipta um umhverfi. I mörgum löndum, svo sem Danmörku og Eng- landi fer nú fram kerfisbundin leit að heyrnarsljóum börn- um áður en þau verða 6 mánaða gömul, og sérfræðingar hjálpa foreldrum þessara barna með ráðum og dáð. Talið er að næmleiki bams til að læra, sé einna mestur 3—4 fyrstu árin, sem bamið lifir. Síðan dregur smám saman úr næmleikanum, og þegar barn er orðið 7 ára verður það að beita viljaafli til þes sað læra eða venja sig af óvana, sem það kann að hafa lært — t.d. röngum framburði. Það er án efa rétt að láta kornabörn fá heymartæki. Með því móti eru því skapaðir möguleikar á þróun máls, sem nálgast það eðlilega. Það verður að leiðbeina foreldrum. Mikið reynir á foreldra heyrnarsljórra barna, og þeir verða að standa í stöðugu sambandi við sérmenntað fólk, sem veitt getur ráð og uppörfun. Heyrnartæki hafa verið dýr. Það þarf oft að líta eftir þeim og gera við þau og ef allir eiga að standa jafnt að vígi verða þau — ásamt sérfræðingaaðstoð að vera fólki að kostnaðarlausu. Foreldrarnir verða, hvað sem öðru líður að fórna mikl- um tíma til að leiðbeina þessum börnum sínum, enda gera flestir það með glöðu geði. Venjulega hafa þessi böm fulla greind. En jafnvel mjög gáfað bam þarf á aðstoð að halda í fyrstu ef það á að geta lifað eðlilegu lífi. Þýtt og stytt úr norska ljósmæðrablaðinu. Grein eftir Astrid Meen, talkennara. J. J.

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.