Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.07.1962, Blaðsíða 17

Ljósmæðrablaðið - 01.07.1962, Blaðsíða 17
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ 51 hans voru konur er áttu 2—3 börn og aldur þeirra var 20—30 ár. Tafla 3. Tilfelli með eggjahvítu í þvagi, hækkðan blóð- þrýsting, bjúg og krampa meðal 131 barnshafandi kvenna í Maraco. Tala kvenna Hækkaður blóðþrýstingur ........ 6 Eggjahvíta í þvagi _________ 2 Bjúgur ......................... 2 Krampi ......................... 1 Aðeins var hægt að sanna að ein kona af þessum 131 hefði haft krampa eða um 0.7%. Franskir sveitalæknar í Maroco hafa sagt mér að eitrunarsjúkdómar séu sjald- gæfir hjá konum í Maroco, og áætla að þeir séu ekki tíðari en 0.2%. Hækkaður blóðþrýstingur, eggjahvíta í þvagi og bjúgur geta bent til þess að eitrun sé í uppsiglingu, en ekki gat ég athugað hvort um annað gæti verið að ræða t. d. nýrnabólgu. Dánartala kornabarna. Hún er mjög há þarna eins og í öðrum vanþróuðum löndum. I þessum tölum frá Marocko hafa 11 nýfædd börn dáið. Af þeim 673 sem lifðu dóu 66 á fyrsta aldursári eða samtals 77 börn eða um 9.8% dánar- tala smábarna (í Svíþjóð um 1.6%). Ekki hefur verið hægt að fá upplýsingar sem byggjandi er á frá Marocko eða öðrum löndum, þar sem fólk býr við svipaðar aðstæður, um hve margar mæður deyja af barns- förum. Þar sem slíkt hefur verið athugað er talið að 25% mæðranna deyji af völdum eitrana. I Israel t. d. virðast slíkar eitranir vera helmingi algengari hjá evrópskum konum, er þar búa, heldur en konum frá Marocko, Irak eða Tunis, sem búsettar eru þar einnig. Einnig virðist greinilegt að eitranir þessar séu nokkuð árstíðabundnar, og eru þessa einnig dæmi í Svíþjóð, eins og tafla 4 ber vott um. Athuganir þær, er þar eru birtar tók ég saman

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.