Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.07.1962, Blaðsíða 22

Ljósmæðrablaðið - 01.07.1962, Blaðsíða 22
56 L JÓSMÆÐR ABL AÐIÐ Varnir gegn krabbameini Aldrei verður það ofbrýnt fyrir fólki hve mikils virði það er að leita læknis tímanlega, og á það ekki hvað síst við þegar um sjúkdóm eins og krabbamein er að ræða. Það eru margar ástæður fyrir tregðu þeirri, sem fólk sýnir er það á að leita læknis, og má þar m. a. nefna vanþekk- ingu, hræðslu, kæruleysi. Mikið hefur verið rætt um ýms einkenni krabbameins, og stöðugt er unnið að því að út- breiða þekkingu meðal almennings á sjúkdómnum. Enda þótt ekki þurfi að búast við að leikmenn greini slíkan sjúkdóm á byrjunarstigi hefur aukin þekking orðið að ómetanlegu gagni. Hræðslan er verri viðureignar. Kjarklítið fólk veigrar sér við að leita læknis, vill ekki fá vondan grun staðfestan, en oft er þessi grunur byggður á hreinum misskilningi. Margir hallast því að þeirri varúðarráðstöfrm að leita læknis og láta rannsaka sig vandlega a. m. k. einu sinni á ári, þótt menn kenni sér hvergi meins, þar sem æfður læknir getur séð ýmsa kvilla á algjöru byrjunarstigi. Brýnt hefur verið fyrir konum að athuga brjóst sín reglulega, því það er til þess að gera auðvelt að sjá ber eða æxli í brjósti. Konan á að standa fyrir framan spegil og athuga eftirfarandi: Eru brjóstin jafn stór og hafa þau sömu lögun, slapir annað brjóstið meira niður en hitt, eru geirvörturnar í sömu hæð, eru þær dregnar innávið, eru nokkur útbrot í kring um geirvörturnar, blæðingar eða vessar. Athugið hvort bollar, hrukkur eða klumpar eru í húðinni. Þuklið brjóstin og athugið hvort nokkur fyrirferðaraukning eða ber séu þar. Fjöldarannsóknir eru m. a. byggðar á eftirfarandi stað- reyndum. Við vitum öll að líkami vor er byggður úr ótelj- andi frumum. Frumur þær, sem klæða hol líkama okkar

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.