Ljósmæðrablaðið - 01.04.1965, Síða 3
Um orsakir andlegs vanþroska
Frú Ragnhildur Ingibergsdóttir yfirlæknir Kópavogshælis hefir
sýnt blaðinu þá vinsemd að semja fyrir það eftirfarandi grein og er
blaðinu mikill akkur í að geta flutt lesendum sínum svo ágætt efni.
Frú Ragnhildur er fædd að Reykjahvoli í Mosfellssveit
15. apríl 1923. Foreldrar Ingibergnr Runólfsson bifreiðastjóri og
kona hans Sigríður Olga Kristjánsdóttir. Lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykjavik vorið 1942. Kandidatsprófi frá lækna-
deild Háskóla Islands vorið 1950. Að loknu kandidatsári við fram-
haldsnám í Sviss og Danmörku. Eitt ár á Psychiatrische Poliklinik
fiir Kinder und Jugendliche í Ziirich, eitt ár á geðveikrahælinu í
Middelfart á Fjóni, hálft annað ár á fávitahælinu í Brejning á Jót-
landi. Frá 1. janúar 1956 hælislæknir á fávitahælinu í Kópavogp.
Hún er gift Birni Gestssyni forstöðumanni og eiga þau tvö börn.
Ritstj.
Gáfnatregða, andlegur vanþroski eða á fræðimáli
oligophreni. Þetta voru lengi orðin yfir þessa algengu
ólíku sjúkdóma og hjálpin var aðallega fólgin í gæzlu.
Ef talað er um framfarir í læknisfræði á þessu sviði, þá
verður að byrja á því að tala um uppgötvanir þær, sem
fram hafa komið í þessum efnum á síðustu árum.
Nú vinna margar rannsóknarstöðvar saman að rann-
sóknum á andlegum vanþroska. Barnalæknar og geðlækn-
ar, taugalæknar og taugaskurðlæknar, fæðingarlæknar og
ónæmifræðingar, erfðafræðingar og efnafræðingar.
í stuttu máli má segja, að í öllum greinum læknisfræð-
innar sé unnið að rannsóknum á andlegum vanþroska.
Fyrir samvinnu erfðafræðinga og efnaskiftafræðinga
hefur fengizt þekking um arfgenga efnaskiftasjúkdóma.
Þessir efnaskiftasjúkdómar erfast víkjandi og lýsa sér
sem truflun eða vöntun á hvataáhrifum. Hún getur náð