Ljósmæðrablaðið - 01.04.1966, Qupperneq 19
L J ÓSMÆÐR ABLAÐIÐ
43
Sitjanda og fætur bar að:
Sitjanda ..................... 3,0 —
Fót .......................... 0,5 — 3,5 —
Þverlega .................................. 0,2 —
62 af 4735 börnum telja ljósmæður fædd andvana, þ. e.
1,3% — Reykjavík 27 af 2250 (1,2%) — en hálfdauð við
fæðingu 32 (0,7%). Öfullburða telja þær 242 af 4716
(5,1%). 32 börn voru vansköpuð, þ. e. 6,8%c.
I skýrslum lækna um fæðingaraðgerðir eru taldir þess-
ir fæðingarerfiðleikar helztir: Fyrirsæt fylgja 14, fæð-
ingarkrampi 3, yfirvofandi fæðingarkrampi 50, fylgjulos
17, föst fylgja 27, grindarþrengsli 17, æxli í fæðingarvegi
4, blæðing 13, yfirvofandi legbrestur 2, þverlega 1.
Á árinu fóru fram 49 fóstureyðingar samkvæmt lögum
nr. 38/1935.
FÉLAGSMERKI.
Ljósmæðrafélagið hefir látið smíða smekklega silfur-
nælu með merki félagsins, því sama og er framan á Ljós-
mæðrablaðinu. Nælan kostar 250 krónur og er til sölu á
Fæðingardeildinni hjá Kristínu Tómasdóttur og á Fæð-
ingarheimili Reykjavíkurborgar.
Aðalfundur
Ljósmæðrafélagsins verður haldinn laugardaginn
1. október 1 Tjarnarkaffi kl. 1,30 e. h.
Stjórnin