Ljósmæðrablaðið

Årgang

Ljósmæðrablaðið - 01.03.1975, Side 5

Ljósmæðrablaðið - 01.03.1975, Side 5
L JÓSMÆÐRABL AÐIÐ 37 fram opnar og mikilvægar umræður, þar sem hin ýmsu sjónarmið komu fram og mismunandi aðstaða til starfs og viðhorf til kjaramála. Þetta var mjög mikilvægur grundvöllur til viðmiðunar fyrir samninganefndina. Kröfugerðin tók svo á sig skýrari mynd á fundinum á Hallveigarstöðum, sem áður er frá sagt og hún lögð fram fullunnin á tilsettum tíma og vottað af ráðuneytisstjór- anum. Þann 20. nóvember 1973 skrifaði heilbrigðis og trygg- inganefnd neðri deildar Alþingis formanni félagsins og fór þess á leit, að formaðurinn gæfi þinginu umsögn um frumvarp, er fyrir þinginu lá um ráðgjöf og fræðslu varð- andi kynlíf og barneignir og um fóstureyðingar og ófrjó- semiaðgerðir. Hér var um svo mikilvægt mál að ræða, að hvorki formaðurinn né stjórnin í heild vildi taka ein- hliða afstöðu og því tilnefndi stjórnin nefnd, er fjalla skyldi um frumvarpið nákvæmlega í einstökum atriðum og skila sínu áliti til stjórnarinnar. I þessari nefndu voru: Guðbjörg Jóhannsdóttir, sem var formaður hennar, svo og Unnur Kristjánsdóttir, Fríða Einarsdóttir, Steinunn Guðmundsdóttir, og Halldóra Ásgrímsdóttir. Stjórnin var sammála áliti nefndarinnar og greinargerð skv. því send af formanni félagsins. Þá vill stjórnin þakka öllum þeim, er unnið hafa félag- inu gagn og sóma með hinu margvíslega framlagi í félags- störfunum og nefnir sérstaklega formann bazarnefndar Hallfríði Alfreðsdóttur fyrir dugnað og góða frammi- stöðu og öllum þeim, er sendu muni á bazarana. Sú sem var í forsvari fyrir kökubazarnum var Unnur Kristjáns- dóttir. Henni og þeim öðrum í nefndinni færum við þakkir fyrir störfin. Einnig viljum við þakka samninganefndinni allri, en Auðbjörgu Hannesdóttur sérstaklega fyrir þá vinnu, er hún lagði fram í samninganefnd BSRB. Allt félagsstarf byggist á vinnu og trú á mátt félags- hyggjunnar og árangurinn er að sjálfsogðu í samræmi

x

Ljósmæðrablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.