Ljósmæðrablaðið - 01.03.1975, Blaðsíða 20
52
LJÓSMÆÐRABL AÐIÐ
falið er um stundarsakir að gegna nágrannaumdæmi, beri
að greiða fyrir það byrjunarlaun þess umdæmis. Við nán-
ari athugun ætti að vera ljóst, að óeðlilegt er að greiða
viðbótarstarfið lægra verði en aðalstarfið enda mun það
ekki tíðkast.
Eðlilegast er, að félagsins mati, að sú ljósmóðir er sýnir
þann þegnskap að taka að sér annað umdæmi — oft við
erfiðar aðstæður — fái þau laun er henni ber samkvæmt
eigin starfsaldri í sínu umdæmi.
Um leið og Ljósmæðrafélag fslands vill á ný þakka fram
konrið frumvarp, vill það láta í ljós óskir sínar um að senn
komi ný ljósmæðralög, ný löggjöf um Ljósmæðraskóla fs-
lands og breytingar á lífeyrisréttindum ljósmæðra.
Virðingarfyllst,
f.h. stjórnar Ljósmæðrafél. íslands,
Steinunn Finnbogadóttir, formaður.
Gömul munnmœli
Það hefur aldrei verið álitið númer núll að verða móðir,
og hafa því ýmsar sagnir myndast viðvikjandi því ástandi
konunnar og um fæðinguna og barnið, þó flest af því hafi
við lítið að styðjast. Hér eru nokkur munnmæli, tekin
úr IV. árg. Ljósmæðrablaðsins 1. tbl. 1926.
Ef konan drekkur heita drykki, verður barnið hárlaust.
Hafi hún brjóstsviða um meðgöngutímann, gengur hún
með langhærðan dreng.
Ef hún klippir hár sitt um meðgöngutímann, á barnið
að verða sólgið í að borða rusl, t.d. ösku, kol, mold.
Ef hún borðar ýsuroð, á barnið að fá óslétta húð.
Ef hún gengur undir stag (þvottasnúru), eða inn í ný-