Ljósmæðrablaðið

Årgang

Ljósmæðrablaðið - 01.03.1975, Side 26

Ljósmæðrablaðið - 01.03.1975, Side 26
58 LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ og áhuga á þessum fjölmörgu þáttum sem ljósmæðra- stéttin þyrfti að vinna að, og hvað það vilja sinn og stjórnarinnar að gera sitt ýtrasta til úrbóta. VIII. Lífeyrissjóður Ijósmœðra: Formaður tók til máls, byrjaði á að lesa bréf, sem stjórnin sendi fjármálaráðherra og heilbrigðisráðuneytinu og formanni BSRB, þar sem fjallað er um að lög um líf- eyrissjóð ljósmæðra frá 11. júní 1938 verði felld úr gildi, en í stað þeirra verði felld inn í lög um Lífeyrissjóð starfs- manna ríkisins ákvæði, sem tryggja héraðsljósmæðrum sömu réttindi og öðrum starfsmönnum ríkisins. Guðbjörg Kristinsdóttir spurði hvernig væri með þær ljósmæður, sem hættu starfi fyrr en aldur segði til um, og hvernig þeirra lífeyrisréttindum væri fyrir komið. For- maður sagði, að Lífeyrissjóður héraðsljósmæðra mætti heita því næst sem enginn, því greiðslur úr honum væru svo lágar, að fyrir þær sem hættar væru störfum kæmu þær að litlu sem engu gagni. og laun héraðsljósmæðra hefðu allan tímann verið mjög lág. Ása Marinósdóttir kom með þá uppástungu að fela formanni og stjórn fram- kvæmd þessa máls. Hulda Jensdóttir þakkaði formanni mjög vel unnin störf í þessu máli. Samþykktu síðan fundarkonur að fela stjórninni þetta mál til afgreiðslu. IX. Nám oy endurhæfing Ijósmæ'ðra: Formaður las bréf, sem stjórn félagsins sendi heil- brigðismálaráðherra, dags. 15. apríl 1974. Bréfið er sér- prentað í 1. tbl. Ljósmæðrablaðsins 1974. Svarbréf hefur komið frá heilbrigðisráðuneytinu. Þar kemur fram, að skipuð hefur verið nefnd til að vinna að þessum málum. I nefndina eru skipaðar: Ingibjörg Magn- úsdóttir, deildarstjóri, Kristín Tómasdóttir, yfirljósmóðir, og einn nemandi úr Ljósmæðraskóla Islands. Undrun ljós-

x

Ljósmæðrablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.