Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.03.1975, Blaðsíða 25

Ljósmæðrablaðið - 01.03.1975, Blaðsíða 25
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ 57 ur. Margrét Leifsdóttir spurði hvort þessi gjaldskrá gilti aðeins fyrir fæðingar í heimahúsum, og hvernig málum væri háttað með umönnun sængurkvenna á sjúkraskýlum. Formaður svaraði að allar héraðsljósmæður fengu laun sín eftir gjaldskránni, ella væri um sérsamninga að ræða. Elín Sigurðardóttir lýsti ánægju yfir gjaldskránni, en taldi að vatntaði gjaldskrá fyrir önnur störf, eins og brjóstahjálp, ungbarnaeftirlit og ferðir með fæðandi kon- ur á sjúkraskýli eða heilsugæzlustöðvar. Ása Marinós- dóttir gerði athugasemd um að í mörg ár hefði fæðingar- styrkur fyrir konur er fæddu í heimahúsum ekkert hækk- að, og taldi að á meðan svo væri gætu ljósmæður varla hækkað sína þjónustu við þær. Þórhalla Gísladóttir bað um orðið. Sagði að reglugerð um skipan umdæma væri orðin úrelt. Eins og til dæmis það, að ljósmóðir fengi að- eins full laun fyrir hérað sem hún væri skipuð í, en hvað sem hún sinnti mörgum héruðum að auki, væri aldrei greidd þar nema byrjunarlaun. Formaður svaraði, að talað hefði verið fyrir þessu máli frá félagsins hálfu, en ekki væri alltaf auðvelt að koma málum fram. Sagði að umdæmi á landinu væru um 200, en aðeins væri setið í 90, en þessi þáttur mundi koma inn í með lögum um heilsugæzlustöðvar, sem verið væri að vinna að. Einnig svaraði formaður fyrirspurn um greiðslu fyrir aukastörf ljósmæðra; taldi að eðlilegt væri að aukastörf væru metin eftir tímakaupi ljósmæðra, svo og að ljósmæður fengju greiðslu sína fyrir fæðingar í heimahúsum beint frá Tryggingastofnun ríkisins, og væru útbúin þar tilsvarandi eyðublöð. Sigurborg Einarsdóttir spurðist fyrir um hvort ekki væri grundvöllur fyrir því, að ljósmæður fengju mánaðar- laun, því að þær væru jafnbundnar, hvort sem væru 100 eða 2000 manns í héraðinu. Nokkrar fleiri tóku til máls og ræddu fram og aftur um málin, en engar ákvarðanir voru teknar. Formaður lýsti ánægju sinni yfir umræðum

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.