Ljósmæðrablaðið - 01.03.1975, Qupperneq 7
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
39
legar og villandi, svo einstaklingsbundin sem slík mál
hljóta ævinlega að vera. Við viljum leggja höfuðáherzlu
á það, sem reyndar kemur fram í greinargerðinni, að auk-
in verði fræðsla og ráðgjöf og fyrirbyggja á þann veg
ótímabæra þungun, sem leiðir til þess, að farið sé fram á
fósureyðingu og teljum við fóstureyðingu. alltaf neyðar-
úrræði.
I greinargerðinni eru mikilvæg nýmæli varðandi þessa
þætti, en framkvæmdin sker að sjálfsögðu úr um það,
hvort þeir ná þeim undirtökum í málinu, sem til er ætlazt,
eða verða aðeins dauður lagabókstafur. En í ljósi þess,
hvað við teljum þennan þátt mikilvægan, álítum við að
tilgreina þurfi nánar en gert er í frumvarpinu, á hverjum
hvíli skyldan um undirbúning og framkvæmd ráðgjafar-
þjónustu skv. 3. gr. Þar og einnig í 7. gr. segir, að til-
tekin þjónusta og fræðsla skuli veitt, en ekki er okkur
ijóst, hverjum frumkvæðið er ætlað. Staðreyndin er sú,
að við erum nú og í náinni framtíð lítt undir það búin
að veita þá fræðslu og ráðgjöf, sem frumvarpið gerir ráð
fyrir, enda beinlínis orðað svo í greinargerð frumvarpsins,
að fóstureyðing skuli heimil að undangenginni félagslegri
ráðgjöf, þar sem henni verður við komið, svo semjendum
frumvarpsins er því greinilega ljóst, að þar muni eyður
verða í. En einn þátt fræðslunnar viljum við undirstrika
alveg sérstaklega, þ.e. fræðsla um ábyrgð foreldrahlut-
verksins og að bætt verði félagsleg aðstoð við barnshaf-
andi konur. Stjórn félagsins vill vekja athygli á, að hún
telur fyllilega tímabært og sérstaka ástæðu til þess nú
við gerð þessara laga, að athugað verði gildi þess og hag-
kvæmni, að nckkrum fjármunum sé varið í mæðralaun
fyrsta æviár barnsins í stað einhliða fyrirgreiðslu til
handa mæðrum með tilkomu ýmissa opinberra stofnana.
Eins og fram hefur komið, teljum við allt, er þessi mál
varðar svo einstaklingsbundið, að vart sé hægt að taka
svo afgerandi afgreiðslu á öllum málum sem einu, sem