Ljósmæðrablaðið

Ukioqatigiit

Ljósmæðrablaðið - 01.03.1975, Qupperneq 27

Ljósmæðrablaðið - 01.03.1975, Qupperneq 27
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ 59 mæðra vakti, að engin er skipuð í þessa nefnd frá Ljós- mæðrafélagi Islands, og urðu um það nokkrar umræður. X. Réttarstaða Ijósmœðra. Formaður kynnti bréf dagsett 5. marz 1974, er stjórnin sendi heilbrigðismálaráðherra fyrir hönd félagsins, sem fjallar um réttarstöðu ljósmæðra. Bréfið er sérprentað í 1. tbl. Liósmæðrablaðsins, 1974. XI. Launakjör Ijósmæðra: Formaður sagði frá því, að nú í fyrsta skipi hefði LMFl verið samningsaðili við síðustu kjarasamninga, sem undir- ritaðir voru 13. maí s.l. Gerði hún í stórum dráttum grein fyrir kröfugerðinni, las síðan kröfugerðina eins og félagið lagði hana fram til samninga við ríkisvaldið. Skýri síðan samningana og las helztu atriði úr þeim, eins og röðun ljósmæðra í launaflokka. Einnig greinar um hérfaðsljós- mæður, sem nú í fyrsta sinn komu inn í samninga. Fundarstjóri þakkaði formanni og öllum þeim sem unn- ið höfðu að þessum samningum. Orðið laust. Áslaug Hauksdóttir gerði fyrirspurn um hvaða ljós- mæður féllu undir starfsheitið deildarljósmæður, og gat þess, að á Fæðingardeild Sjúkrahúss Akureyrar væru engar deildarljósmæður. Formaður svaraði að aðeins væru deildarljósmæður starfandi á fæðingargangi Fæðingar- deildar Landspítalans, og mál hverrar stofnunar væri að skipuleggja og meta störf þeirra og starfsheiti. Dóra Sig- fúsdóttir sagði að á Sólvangi í Hafnarfirði væri aðeins ein ljósmóðir á vakt í einu, og þar væru engar deildarljós- móðurstöður. XII. Ljósmœðrablaðið: Formaður gat þess að frú Jóhanna Jóhannsdóttir hefði sagt upp starfi sem ritstjóri Ljósmæðrablaðsins frá 1. jan.

x

Ljósmæðrablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.