Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.02.1925, Qupperneq 6

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.02.1925, Qupperneq 6
2 T I M A R I T V. F. í. 1925. sarat rúmtakið (r), er hlutfallið (k) milli hæðar og þvermáls breytist. Mest verður rúmtakið, er k = Vll2 það er að segja, er '~æðin er nálega 6/7 úr þver- málinu. En þó að hlutfallið verði allmiklu meira eða minna en B/7, er rúmmálsbreytingin tiltölulega litil. Verði t. d. k = 1, það er hæð jöfn þvermáli, þá minkar rúmtakið aðeins um 8,2°/0. Katlamálsskjol- urnar gátu því orðið nokkurn veginn jafn stórar, þótt ekkert væri ákveðið um hlutfallið milli hæðar og þvermáls, ef aðeins línan frá lögg á þröm var jafn löng í þeim öllum. Björn M. Ólsen hefir bent á það, að landnámsmenn sem flestir voru víkingar, hafi flutt með sjer til landsins mikil auðæfi í gulli og silfri, og gull og silfur hafi verið aðalgjaldeyrir landsmanna á fyrstu árum íslandsbygðar. En ýmsar nauðsynjar þurftu menn að kaupa frá útlöndum og þótt gjaldeyririnn hafi í öndverðu verið mikill, þá hefði þar komið, að hörgull yrði á honum, ef eigi hefði verið hægt að flytja út neitt af innlendri framleiðslu. Eins og flest nýbygð lönd var ísland framan af ágætlega vel fallið til kvikfjárræktar, en ekki nema lítið af afurðunum gat á þeim tímum orðið útflutn- ingsvara því skipakosturinn var lítill, og aðeins það, sem var tiltölulega verðmætt í hlutfalli við rúmtak- ið, gat komið til greina sem útflutningvara. þannig atvikaðist það svo, að menn lögðu stund á ullar- iðnað í sambandi við sauðfjárræktina og vaðmálin urðu aðalverslunarvaran, sem íslendingar sendu til útlanda. það gefur að skilja, að nú dugði ekki lengur, að hver mæidi vaðmálin á handlegg sjer, menn urðu að hafa kvarða til þess að mæla vaðmálin. En ef hver bjó sjer til kvarða eftir sínu höfði, þá var það iitiu betra. það varð nauðsynlegt að fá lagaákvæði um kvarða. Menn vita ekki hve nær hin elstu ákvæði um þetta voru sett, en efalaust var það fyrir 1170, því að á því ári eða skömmu þar á eftir stefnir Sveinn Sturlusonþórhalli í Hólmlátri „um það.að hann hefði tvo pundara og hefði á hinn meira keypt en á hinn minna selt og væri hvorttveggi rangur og ljet varða fjörbaugsgarð. Hann stefndi enn um það, að hann hefði álnar rangar og ljet varða fjörbaugsgarð, og jafnan sex merkur". Varla hefði Sveinn getað stefnt þórhalli um ranga pundara og álnir, ef engin laga- ákvæði um það hefðu til verið. En um 1200 mun þessum ákvæðum hafa verið breytt að einhverju leyti, og þau gerð strangari og nákvæmari, og er því lýst í sögu Páls biskups á þessa leið: „Á dögum Páls biskups, þá er Gissur Hallsson hafði lögsögu, þá gekk mest af sjer rang- læti manna um álnir, bæði útlendra og íslenskra manna, að eigi þótti svo lengur vera mega. Gaf það ráð til Páll biskup, að menn skyldi hafa stikur þær, er væri tveggja álna að lengd. Styrkti þá aðrir höfð- ingjar með biskupi, Gissur og synir hans, þorvald- ur og Halldór og Magnús það mál, einnig bróðir hans Sæmundur, er þá var göfgastur maður á öllu Is- landi, og allir höfðingjar, og voru þá lög á lagið eft- ir því sem ávalt hefir haldist síðan“. þau laganýmæli sem hjer segir, að Páll biskup hafi íengið í lög leidd, ætla menn að hafi verið eftirfar- andi lagagreinar, en þó mun sumt í þeim vera eldra: „Menn skulu mæla vaðmál og ljereft og klæði öll með stikum þeim, er jafnlangar sjeu tíu, sem kvarði tvítugur sá er merktur var á kirkjuvegg á þingvelli. Rjett er að draga kvarða við vaðmál og við ljer- eft 10 álna löng eða lengri og skal að hrygg mæla en eigi að jaðri. Eigi skulu álnir ganga aðrar en þess- ar. Ef menn hafa stikur rangar eða kvarða rangan svo að muni öln í 20 álnum eða meir, þeim er þeir mæla og varðar það fjörbaugsgarð. það er mælt, að að graftarkirkju hverri skuli merkja stiku lengd þá, er rjett sje að hafa til álnamáls og megi menn þar til ganga, ef á skilur um álnir“. Af þeim ákvæðum, sem í þessum lagagreinum fel- ast, vil jeg sjerstaklega benda á, að hjer er fyrir- skipað að mæla með stikum, sem sjeu tveggja álna langar. Sumir hafa skilið þetta svo, að hjer sje ver- ið að lögleiða nýja mælieining, sem nefnast skuli stika, en ölnin (alinin) eigi að leggjast niður. Jeg held þó, að ekki eigi að skilja þetta svo, heldur sje með þessu sagt, að hjer eftir skuli notaðar mæli- stengur (stikur) til þess að mæla eða stika vaðmál, klæði og ljereft, en eigi mæla það á handlegg sjer, og það hefir þótt heppilegast, að þessar stikur skyldu vera tveggja álna langar, sennilega meðfram fyrir þá sök, að til hafa verið þá í landinu álnar langar stikur, sem hætt var við að væru rangar. þá var það stórmerkilegt í þessum lagagreinum, að þá var fundin sú leið til viðhalds rjettu lengdar- máli að hafa markaðan 20 álna langan kvarða á þingvöllum, sem allir kvarðar og stikur skyldu mæl- ast við. þessi lögkvarði var geymdur á svo öruggum stað sem þá var hægt að hugsa sjer, því að kirkjan og kirkjuveggirnir voru friðhelgir. það mátti því búast við, að álnamálið hjeldist óbreytt um langan aldur. það er eitt aðalundirstöðuatriði við allan mæli, að hafa lögkvarða, sem ekki raskast ár frá ári. Um eða fyrir 1200 sáu Islendingar þýðingu þess og munu í því hafa verið á undan mörgum nágranna þjóðun- um. það er nokkuð meiri festa í álnamálinu, þegar fyrirmyndin er mörkuð á kirkjuvegginn, en bar sem handleggur konungsins er lögkvarði, svo sem var í sumum löndum. það er hæpið að eiga undir því, að allir konungar hafi jafnlanga handleggi. Einkennilegt er það og eftirtektarvert, að hinum fornu íslendingum hefir eigi þótt ástæða til að búa jafnvel um þyngdarmálið sem lengdarmálið. Um lög-

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.