Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.02.1925, Qupperneq 13
T í M A R I T V. F. í. 1925.
9
kvæmlega aftur, en samt sem áður er það þess vert,
að nákvæmar gætur sjeu á því hafðar, að mál og
vog landsmanna haldist rjett.
Á hinum 6 starfsárum löggildingarstofunnar
1919—1924, námu útfluttar vörur að verði 369 mil-
jónum króna, og af þessari upphæð býst jeg við, að
tæpar 300 milj. kr. hafi fengist fyrir vörumagn sam-
kvæmt íslenskri vog. Til þess þó að vera viss vil jeg
gera þessa upphæð 250 milj. kr. Vogarskekkj a sem
væri 1 o/00 (1 af þúsundi), breytti þessari upphæð
um 250 þús. krónur, sem er meira en helmingi hærri
upphæð, en kostnaðurinn allur var við löggildingar-
stofuna á þeim sama tíma. En það má búast við 4 °/oo
skekkju, ef eftirlitið með vogartækjunum er ljelegt,
og þá verður tapið 1 miljón króna á þessum út-
fluttu vörum.Á hinn bóginn er ekki hætt við, að vjer
græðum til lengdar á vondri vog, því að ef viðskifta-
mennirnir erlendu yrðu varir við, að lakt væri vegið
hjer, hættu þeir alveg að viðurkenna íslenska vog,
og þá er hætt við að stundarhagnaðurinn hyrfi og
meira til. Hjer er um að gera, að hvorki sje of
eða van.
Hjer er óþarfi að meta það, hvers virði það er,
að mælir og vog sjeu rjett til þess að tryggja rjett
viðskifti manna á meðal í landinu; jeg vil þó geta
þess, að reynsla mín undanfarin ár, bendir helst á
það, að rjettlátt eftirlit, sem gengur jafnt yfir háa
sem lága, fáist ekki, nema eftirlitsstofnunin sje ein
í landinu.
Löggildingarstofan hefir orðið fyrir talsverðum
aðfinslum, en jeg hefi leitt þær hjá mjer, án þess
að svara þeim; að gefnu tilefni vil jeg samt geta
þess, að enginn hefir getað sannað, að þau tæki hafi
verið rjett, sem löggildingarstofan taldi röng.
Fjelagsmál.
Fundahöld:
9 3. f u n d u r V. F. I. var haldinn miðvikudaginn
1. okt. 1924 kl. 7 e. h. Fundurinn hófst með venju-
legu borðhaldi og sátu það 14 fjelagsmenn. Formað-
ur setti fund og stýrði. Eftir borðhald flutti Steingr.
Jónsson rafmagsstjóri fróðlegt erindi um rekstur
Rafmagnveitu Reykjvíkur árin 1922 og 1923. Er það
birt á öðrum stað í tímaritinu.
9 4. f u n d u r V. F. í. var haldinn hjá Rosenberg
í Pósthússtræti 7 miðvikudaginn 19. nóv. kl. 7. e. h.
Formaður setti fund og stýrði. Venjulegt borðhald
á undan og bauð þá foimaður nýkominn fjelags-
mann, Árna Pálsson verkfræðing, velkominn á fund.
Formaður skýrði frá að Verkfræðingafjelagið norska
hefði sent hingað tilkynningu um að 50 ára afmæli
þess yrði haldið hátíðlegt 7.-9. des. í ár, og jafnframt
boðið fulltrúa frá oss að mæta við þau hátíðahöld.
Gat formaður þess, að hann mundi sjálfur geta kom-
ið því við að mæta fyrir fjelagsins hönd og að stjórn
fjelagsins hefði ákveðið að senda skrautritað ávarp
til afmælisbarnsins. þá gat hann þess að bókasafn
fjelagsins væri í húsnæðisvandræðum og að litlum
notum, og hefði því verið hreyft að sameina það
bókasöfnum Iðnfræðafjelagsins og Iðnaðarmannafje-
lagsins. Iðaðarmannafjelagið hafði þegar kosið 1
mann í væntanlega sameiginlega nefnd úr öllum fje-
lögum. Lagði hann til að V. F. í. kysi annan mann
í nefndina. Var það samþykt og Steingr. Jónsson
kosinn.
Að lokinni máltíð flutti þorkell þorkelsson cand.
mag. fróðlegt erindi um hið forna tímatal.Var það
kafli úr ritgerð, er hann hefir í smíðum og síðar
mun korna á prenti. Nokkrar umræður urðu á eftir.
14 fjelagsmenn voru á fundi.
9 5. f u n d u r V. F. í. var haldinn miðvikudag-
inn 3. des. 1924 kl. 7 síðdegis hjá Rosenberg. For-
maður fjarverandi, en varaformaður gat ekki mætt
vegna veikinda móður sinnar. Ritari setti fundinn
og stakk upp á Steingr. Jónssyni sem fundarstjóra;
var það samþykt. Fundarstjóri skýrði frá því að
að stjórn fjelagsins hefði í huga að reyna að útvega
fje til þess að láta rannsaka skilyrði fyrir teknisk-
kemiskum iðnaði í sambandi við fiskiveiðar vorar.
Gæti það þá ef til vill orðið til þess að einhver vildi
taka þátt í verðlaunasamkepni þeirri, er fjölvirkja-
skólinn í Kaupmannahöfn hefði efnt til. Voru fje-
lagsmenn þeirri hugmynd fylgjandi. þá flutti Jón
þorláksson fjármálaráðherra eftirtektarvert og fróð-
legt erindi um lággengið og var það útdráttur úr bók,
er hann hefir í smíðum, og sem var að koma út.
Nokkrar umræður urðu á eftir. 14 fjelagsmenn voru
á fundi.
9 6. f u n d u r V. F. I. var haldinn miðvikudaginn
21. jan. 1925 kl. 7 síðdegis hjá Rosenberg. Varafor-
maður setti fund og stýrði. Skýrði hann frá því að
stjórn fjelagsins hefði leitað umsagnai' Efnarann-
sóknarstofu ríkisins um rannsókn á teknisk-kemisk-
urn iðnaði, er getið var um á síðasta fundi, og sent
þá umsögn með brjefi til útgerðarmannafjelagsins.
Einnig skýrði hann frá því að þakkarávarp hefði
komið frá norska verkfræðingafjelaginu fyrir þátt-
töku formanns vors í hátíðahöldunum á 50 ára af-