Freyr - 01.03.1907, Page 3
FEEYR.
27
Útengjar eru víðagóðar í Óspakseyrar- og
Eellshreppum, og hægt til slægna, en vetrar-
ríki allmikið. Tún eru víða girt, og bætt til
muna, þó yfirleitt minna en í Báejarhreppi.
Steingrímsfjörður er stærsti fjörðurinn í
Strandasýslu, 372 míla á lengd. Hann skerst
inn úr Húnaflóa rétt fyrir norðan Kollafjörð,
gengur fyrst i vestur, en beygir svo til norð-
vesturs. Bygðarlögin meðf'ram honum að
sunnan heita Kirkjubólshreppur og Hrófbergs-
hreppur.
Kollaíjarðarnes er syðsta býlið í Kirkju-
bólshreppi, á nesinu vestan við Kollafjörð,
beint á móti Bröddanesi, og er örskamt yfir
fjörðinn. Þar bjó Asgeir Einarsson alþingism.
áður en hanu flutti að Þingeyrum. Túnið er
stórt, alt rennislétt, og vel girt. Dúntekja er
talsverð og selveiði nokkur.
Nú er búið að afráða, að kaupa Kollafjarð-
arnes og gjöra það að prestsetri, og reisa þar
kirkju, en rífa Tröllatungu og EelLskirkjur og
selja jarðirnar. Orskamt frá Kollafjarðarnesi
er Hvalsá, lítið býli. Báðar þær jarðir eru við
Kollafjörð, og ætti að teljast til Eellshrepps.
iÞaðan er löng bæjarleið iun Gálmaströnd, en
úr þvi er hreppurinn þéttbýll. í>ar sem
fjörðurinn beygist til norðvesturs ganga nokkrir
dalir vestur í fjöllin, syðst Heydalur óbygður
en ágætt slægjuland, þar næst Miðdalur stór
og grösugur, og ern 5 býli í honum. Skamt
fyrir innan er Húsavík og Tungugröf, og geng-
ur þar breið lægð upp frá firðinum, og suður
og vestur úr henni tveir dalir. I tungusporð-
inum millum þeirra er Tröllatunga, stór og góð
jörð. £>ar býr Jón Jónsson frá Laugabóli í
Isafjarðarsýslu, atorkumaður og búhöldur mikill.
Hann hefir girt túnið og sléttað það mest alt,
bygt stór timburhús cg öll peuingshús og er
þó leiguliði. Hann hefir hátt í 400 fjár á
fóðrum 6 mjólkandi kýr og marga hesta.
Kirkjubólshreppur er með réttu talinn
bezti hreppur Strandasýslu, enda er þar lands-
kostir góðir, og auk þess oft góður afli á
haustin í firðinum.
Elesttún eru girtíKirkjubólshreppi víðameð
grjóti, og mikið hefir verið unnið að timaslétt-
un. Veðuráttnfarið er líka inikið hagstæðara við
Steingrímsfjörð en norðantil i sýslunni og við
Hrútafjörð, vornæðingarnir mikið minni og
sumarþokurnar sjaldgæfari.
Hrótbergshreppur byrjar fyrir innan Tungu-
gröf og fer þá ströndin að verða hrjóstrngri,
einkurn fyrir innan Kálfanes. Tveir langir
dalir með talsverðu undirlendi, Staðardalur og
Selárdalur, ganga inn úr botni fjarðarins, og
eru nokkrir bæir í hvorum um sig.
Vetrarbeit er mjög góð í útsveitinni, eink-
um í Kálfane3Í. Þar bjó lengi Einnur Jóns-
son, sem nú er fluttur i Innri-Fagradal í Dala-
sýslu. Hann hafði jafnan marga sauði, er
gengu á vetrum i Kálfanesborguin, og þóttu þó
góðir tilfrálags. Finnurgirti túnið, sléttaði í því
allmikið, bygði íbúðarhús úr timbri og fl., og
er þó talinn efnaður vel. A inörgum bæjum
öðrum í sveitinni hafa verið gjörðar all-miklar
jarðabætur. Magnús hreppstjóii Magnússon á
Hróbergi hefir t. d. girt túnið með öflugum
grjótgarði og siéttað talsvert.
I innsveitinni, Staðardal og Selárdal, eru
viða góðar slægjur en vetrarriki mikið. Jarð-
irnar eru litlar nema prestssetrið, Staður. Dað'
er stór og góð jörð, og hefir þar oft verið veL
búið. Jarðabætur eru svo að segja engar,.
túnin lítil, þýfð og ógirt, gefa af sér 45-70-
hesta. Bústofninn er lítill og bændur fara á.
vetrum vestur að Djúpi, og koma eigi aftur
fyr en undir slátt. Og með því fyrirkomulagi
er naumast að vænta að búskapurinn sé
blómlegur, eða mikið sé unnið fýrir eftirkom-
endurna.
Kaldrananeshreppur er næsta bygðarlagið
norður á við. Dað er víðáttumikill hreppur og
vondur yfirferðar. Strandlengjan meðfram
Steingrímsfirði að norðan nefnist Selströnd..
Þar er svo að segja ekkert undirlendi, en býli
allmörg, og standa þau í röð ineðfram firðin-
um og er víðast langt á milli bæja. Selströnd-
in er mjög grýtt en liggur vel við sól. Megn-
ið af engjunum er uppi á hálsi, og því löng
heimreiðsla. Hlunnindi eru þar nokkur á
mörgum jörðum, dúntekja og selveiði. Yzta
býlið á Selströndinni er Bær. Undir hauu
heyrir Gríinsey, all-stór ey í minni Steingríms-
fjarðar og er þar góð sauðfjárganga á vetrnm.
Bjarnarfjörður, lítill fjörður, skerst inn skamt
fyrir norðan Steingrímsfjörð. Uppfrá honum