Freyr - 01.09.1926, Page 14
82
FRE YR
Fréttabr. úr sveitunum.
Frá ísaíj arðardjúpi.
Veturinn frá nýári góður og gjafaspar.
Heyfyrningar miklar viða, í sumum hrepp-
um 30—40 kýrfóður og það mest taða.
Búpeningur gekk óvenju vel undan.
Bráðapest gerði vart við sig víða í sýsl-
unni, þrátt fyrir það þó bólusett væri.
Vorið var fremur kalt og þurkasamt;
með Jónsmessu brá til vætu og hlýju, og
fór þá fyrst að spretta fyrir alvöru, og nú
með slætti eru tún víða vel sprottin. —
Engjar sömuleiðis og garðar gefa von um
góða uppskeru.
Mikill áhugi er nú vaknaður meðal bænda
fyrir allskonar búnaðar-framkvæmdum.
Fyrirmyndarbýlum og byggingum fjölgar
og túnin stækka og batna. Búnaðarfélag
Nauteyrarhrepps keypli Fordson dráttar-
vél í vor og gefst hún vel. Siðar mun birt
skýrsla um vinnumagn hennar o. fl.
Á þessu vori hefir verið unnið mikið
að girðingum í Inndjúpinu. Girtir bæði
búfjárhagar og nýrækt. Girðingar þessar
munu vera um 20 km. á lengd samanlagt.
Miklum óhug sló yfir bændur er sú
fregn barst að sljórn Búnaðarfél. íslands
hefði svift búnaðarmálastjóra stöðu sinni.
Bændum finst búnaðarmálastjóri Sig. Sig-
urðsson svo nátengdur þeim margvíslegu
framförum og umbótum í landbúnaði vor-
um, og að hann beint og óbeint, með
sinni öflugu trú og góðu áhrifum sé þeirra
faðir og vendari, svo ekki geti komið til
mála að hann sleppi hendi sinni af þeim
nýgræðing að sinni.
Bændur hljóta því að krefjast þess af
næsta Búnaðarþingi, að Sigurður Sigurðs-
son taki við embætti sínu aftur.
Frá Eyjaiirði er skriíað:
Sauðfjárbúið á Leifsstöðum hefir notið
styrks frá Búnaðarfélagi íslands og sýslu-
sjóði Eyjafjarðarsýslu næstliðin 15 ár, og
er því elst þeirra sauðfjárræktarbúa á
landinu, er styrks njóta af opinberu fé.
Skilyrði fyrir þessari styrkveitingu er, að
það sauðfé sem búið hefir, og þarf ekki
til viðhalds eða aukningar á búinu, sé
selt við opinbert uppboð, svo að allir hafi
jafnan aðgang að kaupa það. Hafa þannig
á þessum 15 árum verið seldar 195 kind-
ur, eða 13 kindur að meðaltali á ári. Þar
af eru 50 hrútar veturgamlir og eldri og
48 lambbrútar. Hafa þessar kindur farið
allvíða, þar á meðal vestur á Arnarfjörð
og Önundarfjörð og austur á Norðfjörð,
auk þess sem þær hafa farið víðsvegar
um Eyjafjarðar- og Suður-Þingeyjarsýslu.
Eins og eðlilegt er hafa ekki allar þess-
ar kindur reynst jafn vel, alveg eins og
kaupendurnir hafa verið misjafnir og skil-
yrðin, sem kindurnar hafa hlotið, hafa
verið mismunandi. Óhætt mun þó að full-
yrða, að mikill meiri hluti þessara kinda
hafa reynst sérlega vel, og þá einkum þær,
sem hafa hlotið betrí skilyrði, sérstaklega
betri landkosti, þvi á Leifsstöðum er land-
létt og lítil vetrarbeit fyrir sauðfé.
Nú í haust verða boðnar upp nokkrar
kindur frá búinu, þar á meðal 3—4 hrút-
ar veturgamlir. H. E.
Hey og heyverslun.
Þrátt fyrir fremur óhagstæða tíð í sum-
ar, munu hey vera óvenjulega mikil á
þessu hausti. Grasspretta hefir verið mikil
um land alt og heyfyrningar mjög miklar
á næstliðnu vori. Jafnvel þótt talsvert af
heyjum séu meira og minna hrakin, hafa
bændur þó nú góða aðstöðu til að fóðra