Ljósmæðrablaðið - 15.12.1998, Blaðsíða 2
Efnis^prtit
T'>á ntstjóra
Heiðruðu Ijósmæður.
Hér lítur dagsins ljós þriðja og síðasta Ljósmæðrablað ársins 1998.
Við höfum fengið greinar frá nokkrum þeirra afbragðs fyrirlesara sem
töluðu á ráðstefnu LMFÍ í mars s.l. Þær greinar eru mikill fengur og
vonandi að þær ljósmæður sem ekki komust á títtnefnda ráðstefnu, fái
þar með innsýn í meginumfjöllun ráðstefnunnar. Einnig vil ég benda
öllum ljósmæðrum á að lesa grein Margrétar Jónsdóttur í nýjasta hefti
Veru; „Þegar Snorri fæddist heima“, en Margrét flutti einmitt þann fyrir-
lestur á ráðstefnunni. Við flytjum einnig fréttir frá Selfossi og er stefnan
að halda áfram að flytja fréttir af landsbyggðinni í komandi blöðum.
Það er nauðsynlegt að styðja við bakið á ljósmæðrum á landsbyggðinni
því þær eiga oft erfítt með að komast á fundi og ráðstefnur og eiga því á
hættu að einangrast í starfi eða verða samdauna viðhorfum samstarfs-
fólks, sem ekki samræmast endilega hugmyndafræði ljósmæðra eins og
hún birtist á hverjum tíma. Með öflugu blaði sem flytur fréttir af störf-
um ljósmæðra og greinar sem endurspegla hugmyndafræði stéttarinnar
fá ljósmæður á landsbyggðinni, sem og á höfuðborgarsvæðinu, tækifæri
til að styrkja sig í starfi og miðla öðrum ljósmæðrum af reynslu sinni.
Það væri óskandi að ljósmæður yrðu duglegri að skrifa í blaðið, sérstak-
lega eldri ljósmæður, því reynsluþekking þeirra er mikils virði og slæmt
fyrir stéttina ef sögur þeirra tapast. Skora ég hér með á ljósmæður að
halda til haga sögum sínum, dagbókum og öðru því sem gagnast gæti
komandi kynslóðum ljósmæðra og deila því með okkur hinum.
Ljósmæðrablaðið er blað allra ljósmæðra. Nýtum það.
Frá ritstjóra ................2
Fréttir LMFÍ..................3
Ahugafélag um
heimafæðingar..................4
Fréttir frá Selfossi .........5
Áhugavert lesefni..............6
Áhugaverðar slóðir
á Netinu ......................7
Störf ljósmæðra í
brennidepli ..................8
Fæðingin......................9
Minningarorð ................13
Að læra af reynslunni.........14
Hugrenningar úr lífi
Ijósmóðurnema ...............15
Frétt frá stjórn LMFÍ .......17
Hlutverk ljósmóður á
meðgöngu ....................18
Konur um konur
frá konum til kvenna ........23
Eðlileg fæðing ..............26
Pabbafræðsla ................30
Ljósmœðrablaðið 76. árgangur 3. tölublað 1998
Útgefandi: Ritnefnd: er til allra ljósmæðra og á
Ljósmæðrafélag íslands Anna Eðvaldsdóttir heilbrigðisstofnanir
Hamraborg 1 Sími: 565 2252 Verð í lausasölu: 500 kr.
200 Kópavogur Katrín E. Magnúsdóttir Áskriftarverð: 1.200kráári.
Sími: 564 6099 Sími: 561 1636 Uppsetning og prentun:
Ritstjóri: Sigríður Pálsdóttir Hagprent - Ingólfsprent ehf.
Dagný Zoega Sími: 482 2556 Grensásvegi 8
Melgerði 3 Unnur Egilsdóttir 108 Reykjavík
108 Reykjavík Sími: 552 8576 Sími: 588 1650
Sími: 568 0718 Auglýsingaöflun: Þjóðráð
Netf: dagzo@vortex.is Upplag: 600 eintök sem dreift
2
LJÓSMÆORABLAÐIP