Ljósmæðrablaðið - 15.12.1998, Blaðsíða 5
Fréttir frá Sclfossi
Hér á Selfossi eru nú starfandi 8
ljósmæður í tæplega 5 stöðugild-
um. Hér er því stöðug viðvera
ljósmæðra allan sólarhringinn, og
sjáum við um allar konur sem
leggjast inn vegna meðgöngu,
fæðingar og sængurlegu, sinnum
„göngudeildarkomum" auk síma-
þjónustu sem getur verið ótrúlega
fjölbreytt. Okkar svæði er allt
Suðurland frá Selvogi austur að
Skeiðarársandi, þó reyndar sé
misjafnt hvort þær konur sem
lengst eiga að sækja komi til okk-
ar eða bíði hjá ættingjum í Reykja-
vík. En stundum leita til okkar
konur annars staðar frá sem eiga
langt að sækja fæðingaþjónustu
frá sínu heimili, en eiga ættingja
hér nálægt ( eða bíða jafnvel með
fjölskyldunni í sumarbústað).
Fjöldi fæðinga hefur verið
160-180 á ári nú undanfarið, en
hefur verið mjög breytilegur í
gegnum árin og farið eftir ýmsu,
og má þar nefna samgöngur, að-
gengi að ljósmæðrum og læknum
sem þætti sem ætla má að hafi
áhrif á hvar konur kjósa að fæða
og liggja sængurlegu.
Árið 1994 fékk sjúkrahúsið dá-
g ó ð a
upphæð
að gjöf,
og var
h e n n i
varið í að
gera upp
fæðing-
ardeild-
ina. Var
þá sett
h o r n -
b a ð k a r
við fæð-
i n g a r -
stofuna og fóru konur ein og ein
að prófa bað sem verkjameðferð,
og nú fara flestar konur í baðið.
Alltaf er þó ein og ein sem hefur
ekki áhuga eða líkar það illa, og
svo eru auðvitað þær sem fæða of
fljótt til að komast í það. Okkur
finnst mjög gott að hafa baðið
sem valkost í verkjameðferð, og
það nýtist konunum oftast af-
bragðsvel.
Árið 1997 var farið að bjóða
konum að fæða í vatninu, og var
það Áslaug Hauksdóttir ljósmóðir
sem var hvatamaðurinn að því.
Fyrsta bamið fæddist í baðinu
þann 16. febrúar það ár, og síöan
hafa verið 23 vatnsfæðingar.
Ljósmæður sinna nú allri með-
gönguvemd í Árnes- og Rangár-
vallasýslum. Herborg hefur farið í
Þorlákshöfn, en Svanborg hefur
séð um Selfoss og nágrenni um
langt árabil. Matthildur ljósmóðir
er í Laugarási en þar er heilsu-
gæslustöð fyrir uppsveitir Árnes-
sýslu. í Hveragerði leita konur
ýmist til Selfoss eða Reykjavíkur í
meðgönguvernd. í haust tók Sig-
urlinn að sér meðgöngu- og ung-
bamavernd á Hvolsvelli og Hellu.
Á Klaustri er Guðleif Helgadóttir,
en í Vík er ekki ljósmóðir.
Sigurlinn og Herborg sjá um
foreldrafræðslu, sem em fjö|urra
kvölda námskeið. Þau eru haldin
hvenær sem næg þátttaka fæst,
þ.e. fyrir ca. 8 pör, og er mikill
áhugi á þeim.
Nú í októberlok kom Sía Jóns-
dóttir ljósmóðir frá Akureyri og
hélt námskeið um áhættumeð-
göngu. Þetta var tveggja daga
námskeið, vel sótt, og voru þátt-
takendur mjög ánægðir.
F. h. ljósmæðra á Selfossi
Sigríður Pálsdóttir.
UÓSMÆÐRABLAÐIÐ
5