Ljósmæðrablaðið - 15.12.1998, Blaðsíða 8
Störf Ijósmæðra í brennidcpli
Á því ári sem er að Iíða hafa ljósmæður og störf
þeirra fengið mikla athygli fjölmiðla og almennings.
í upphafi ársins útskrifuðust fyrstu ljósmóðurnem-
arnir frá Háskóla íslands og var af því tilefni mikil
umjöllun í hinum ýmsu fjölmiðlum um nám, störf og
hugmyndafræði ljósmæðra. Ekki var sú umræða fyrr
hjöðnuð en ljósmæður efndu til veglegrar ráðstefnu
og buðu til sín tveim þekktum, erlendum fyrirlesur-
um sem veittu viðtöl í sjónvarpsfréttatímum, dag-
blöðum og tímaritum og beindu aftur athygli þjóðar-
innar að því mikilvæga hlutverki sem Ijósmæður
hafa í samfélaginu og hvernig þeirra hugmyndafræði
endurspeglar trúna á hið eðlilega og náttúrulega í
barneignaferlinu. I sumar birtist síðan viðtal í einu
dagblaðanna við konu sem fæddi barn sitt heima í
vor og ljósmóðurina sem aðstoðaði við fæðinguna.
Þar með hélst umræðan um fæðingar og ljósmæður
enn gangandi. Vinnudeilur ljósmæðra á Landspítal-
anum um mitt sumarið minntu á mikilvægi stéttar-
innar. Nú nýverið birtist svo grein í Veru eftir aðra
konu sem fæddi heima og í kjölfarið voru stofnuð
samtök áhugafólks um heimafæðingar, svo enn á ný
eru störf ljósmæðra í brennidepli. Um þessar mundir
beinist einnig athygli almennings erlendis að störfum
ljósmæðra því á metsölubókalistum er nú skáldsaga
um ljósmóður sem lendir í því að vera kærð fyrir
manndráp eftir að heimafæðing fór úrskeiðis (Mid-
wives - a novel, eftir Chris Bohjalians). Neikvæð
umræða, svo sannarlega, en engu að síður nauðsyn-
leg og vel til þess fallin að gefa ljósmæðrum færi á
að ræða störf sín og viðhorf. Höldum áfram svona og
fáum konur í lið með okkur til að styrkja stöðu ljós-
mæðra í samfélaginu.
Dagný Zoega
Ljósmóðir, IBCLC
Bankastjórar
í fædingu
3
#
Nýtt líf!
Sú góða tilfinning sem fylgir því að geta sinnt
bankaviðskiptum sínum í næði þegar manni
hentar best, óháð afgreiðslutíma og erli
hefðbundinna bankaútibúa er eins og að hefja
nýtt líf. Enda fjölgar bankastjórum í
Ileimabankanum stöðugt. Heimabankastjórar •
geta sinnt sínum bankaviðskiptum heima eða í
vinnunni, hérlendis eða erlendis þar sem
netaðgang er að finna, á öllum tímum
sólarhringsins. Þeir spara sér ótal ferðir til og
frá banka, eru alltaf með bókhaldið á hreinu
og geta treyst á fullkomið öryggi og leynd
upplýsinga í Heimabankanum.
Það kostar aðeins 80 krónur
á mánuði að reka sitt eigið
útibú í Heimabankanum!
Bvrjaðu nýtt líf strax
- en prófaðu samt fyrst!
Kynntu þér sýnishorn af Ileimabankanum á
www.isbank.is. bar getur þú prófað hvernig
það er að stjórna eigin útibúi áður en þú
ákveður þig. Ileimabanki íslandsbanka er svo
aðgengilegur að bankaviðskipti verða hreinn
barnaleikur.
/SLANDSBANK/
3
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ