Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 15.12.1998, Blaðsíða 19

Ljósmæðrablaðið - 15.12.1998, Blaðsíða 19
veitt allan þennan stuðning í fyrstu komu heldur er þetta ferli sem þróast á meðgöngunni. Þegar konan finnur fyrir trausti og lærir að þekkja ljósmóðurina þá kemur að því að hún opnar sig, kemur með sín vandamál, ef einhver eru, upp á yfirborðið (Flint 1986; Malnroy, 1996; Tritten, 1997 ). Traust Sú hugmyndafræði að engin meðganga né fæðing séu „eðlilegar“ fyrr en eftir á hefur verið allsráðandi hér á landi undanfarna áratugi. Við meðhöndlum meðgönguna jafnvel sem sjúkdóm eða a.m.k. yfir- vofandi sjúkdóm! Þessi hugmyndafræði hefur einnig náð bólfestu úti í þjóðfélaginu. Staðreyndin er hins vegar sú að 80-85% þeirra barna sem fæðast eiga algjörlega eðlilega meðgöngu og fæðingu að baki (Gilbert og Harmon, 1993). Það er því mikið starf framundan fyrir okkur ljósmæður að byggja upp traust kvenna á eigin líkama og trú á sjálfa sig. Einnig þarf að byggja upp traust hins verðandi föður og fjölskyldu konunnar á móðurina. Jan Tritten ljósmóðir og ritstjóri Midwifery Today kemst mjög skemmtilega að orði í tölublaði númer 44 sem út kom veturinn '91. Þar fjallar hún um traust og segir m.a. „ljósmæður verða fyrst og fremst að hafa góða og djúpa þekkingu á ljósmóður- fræði. Við vitum öll að óvæntir hlutir gerast á með- göngu og í fæðingu en að hræðast þá og forðast má ekki vera partur af þínum ljósmóðurstörfum“. Ég vil taka undir þessi mikilvægu orð Jan því að eitt af að- alverkefnum ljósmóðurinnar er að byggja upp traust konunnar. Traust konunnar beinist að; 1) líkama sínum, hún öðlast þá vissu að hún getur fætt barnið, 2) ljósmóðurinni, sem styður hana og fræðir, 3) fjölskyldunni þangað sem hún sækir ást og stuðn- ing og 4) barninu. Traust hefur áhrif á upplifun konunnar af meðgöng- unni, fæðingunni, samband foreldranna og uppeldi barnsins seinna meir. Ljósmóðirin byggir upp traust konunnar með því að nýta þekkingu sína, starf- reynslu, skilning, innsæi og ást til lífsins (Flint 1986; Malnroy, 1996; Tritten, 1997). l'rceðsla Mikil áhersla hefur lengi verið á fræðslu til verðandi foreldra og er það vel en um hvað fræðum við? For- eldrafræðslunámskeið bæði fyrir frumbyrjur og tjöl- byrjur eru víða í boði. En hvernig metum við þörf verðandi foreldra fyrir fræðslu? Miðast fræðsla okkar að fyrirfram ákveðnum stöðlum eða einstaklings- bundinni fræðslu? þörfum? Höfum við tíma til að sinna einstaklingsbundinni fræðslu? Hvað vita hinir verðandi foreldrar, hvað vilja þau vita? (Walker, 1992). Samhæfíng þjónustunnar Ljósmóðirin þarf að sjá til þess að hinir verðandi for- eldrar fái upplýsingar um hvað stendur þeim til boða á meðgöngunni, t.d. foreldrafræðslunámskeið, hvort sem þau eru haldin á vegum ljósmóðurinnar eða ann- arra ljósmæðra. Einnig að hún geti bent þeim á aðra fræðslu, svo sem bækur og annað fræðsluefni um meðgönguna. Einn þáttur í samhæfingu þjónustunnar getur t.d. verið bæklingur sem kynnir starfsemi deildarinnar eða ljósmóðurinnar. Samhæfing þjónustunnar er ekki síður mikilvæg milli ljósmæðra á öðrum deildum sem konan þarf að sækja til og milli ljósmæðra og lækna, og á milli meðgönguverndarinnar og stoðdeilda. Samkvæmt lögum um réttindi sjúklinga (nr. 74, 1997) verðum við að samhæfa þjónustuna því að „sjúklingurinn á rétt á samfelldri þjónustu og að samstarf ríki á milli allra heilbrigðisstarfsmanna og stofnana sem hana veita“. (3.gr). Sem dæmi má t.d nefna þegar verð- andi móðir fer í sónar og í ljós kemur nýrnagalli hjá fóstri. Þá ber heilbrigðisstarfsmanni sem annast kon- una á sónardeildinni skylda til að láta ljósmóður konunnar í meðgönguvemdinni vita um gang mála. Næst þegar konan kemur í skoðun þá veit ljósmóðir- in þá þegar hvað hefur komið fyrir, hvaða greining hefur verið gerð. Þannig byggist upp traust konunn- ar á ljósmóðurinni og heilbrigðiskerfinu í heild. Ljósmóðir konunnar getur þannig sýnt og veitt við- hlítandi stuðning. Ef konan þarf að segja ljósmóður- inni sinni að barnið sé með nýrnagalla, þá er eitthvað að í samskiptum milli fagaðila. Við styðjum við sam- skipti heilbrigðisstarfsmanna með því að t.d. að hringja og ræða vandamálið og í framhaldi af því skrifa ljósmæðrabréf, senda tölvupóst, en í framtíð- inni höfum við sjálfsagt eitt og sama tölvuforritið og getum öll komið upplýsingum beint inn í meðgöngu- skrár. FTeðgöngumat/áhæHumat í hverri einustu skoðun fer fram mat á meðgöngunni. Mjög mikilvægt er að halda athyglinni á hvað er heilbrigt hjá konunni, eðlilegt en jafnframt erum við að gera svo kallað áhættumat. Hins vegar verður vandamálið oft að skilgreina hvað er áhætta? Fræði- menn hafa nú gefist upp á að finna „hið eina sanna“ áhættumat því aðeins 20-30% kvenna upplifa það UÓSMÆÐRABLAÐIÐ 19

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.