Freyr

Volume

Freyr - 01.06.1936, Page 7

Freyr - 01.06.1936, Page 7
FEEYR 109 verklegt nám á skólabúinu í hans tíð ■— flestir í 6 vikur. 1 þessum jarðabótum eru um 24 ha. (= 75 dagsl.) í túnasléttum og nýrækt. 1 búfjárræktinni lagði Halldór mesta al- úð við nautgriparæktina, — enda er jörð- in bezt til nautgriparæktar fallin — og lagði mikla stund á að bæta kúakynið, og varð vel ágengt framan af, t. d. frá 1913 —1923 hækkaði meðalkýrnytin úr 2163 kg. upp í 3251 kg. eða um 1088 kg. En á síð- ari árum virðist kenna úrkynjunar — sennilega vegna of mikillar skyldleikarækt- unar — í kúastofninum. Árið 1929—1930 var meðalnyt 40 fullmjólkandi kúa 2891 kg. mjólkur með 4.05% feiti, og ársfóðrið (sumar og vetur) er talið 2435 fóðurein- ingar. í Hvanneyrarfjósi hafa verið til kýr, sem mjólkað hafa yfir 5000 kg. yfir árið. Framleiðsla mjólkur og mjólkurafurða hefir löngum verið meiri en markaður var fyrir á skólanum. Fyrir því hafði Hall- dór fullkomið mjólkurbú heima, og fram- leiddi þar mjólk og skyr, sem hvorttveggja — og þó einkum „Hvanneyrarskyr“ var orðlagt fyrir gæði. Þessar vörur og rjóma seldi Halldór aðallega í Reykjavík og hafði lengi sína eigin búð hér í bænum, enda komu búhyggindi hans ekki síður fram í verzlun með búsafurðirnar, en í framleiðsl- unni sjálfri og bústjórn allri heima fyrir. Mér er ekki kunnugt um, hversu stórt búið var, sem Halldór tók við á Hvanneyri, er hann kom þangað, en áreiðanlega hefir það vaxið í höndum hans eins og annað, og 1935 var bústofninn: 76 nautgripir, þar af 56 mjólkandi kýr. 447 fjár, þar af 350 ær. 28 hross. 4 svín, og 36 fuglar (hæns, gæsir og endur). Þótt Halldór stjórnaði sjálfur búi sínu með þeim skörungsskap, sem honum var laginn, þá hafði hann jafnan ráðsmann sér til aðstoðar, valdi til þess nemendur sína og var jafnan heppinn í valinu, enda lagði hann áherzlu á, að hafa „valinn mann í hverju rúmi“, eins og hraustir og drengi- legir víkingar forðum daga. Lengst (1907—1923) var ráðsmaður hjá honum einn af nemendum hans frá Eið- um, Einar Jónsson af Fljótsdalshéraði. — Hann var jafnframt leikfimi- og smíða- kennari. Síðan hafa verið á Hvanneyri 3 ráðsmenn, er einnig hafa kennt leikfimi og smíðar (annað eða hvorttveggja). Það orð lék á, að skólastjórinn á Hvann- eyri væri vinnuharður, og víst er um það, að það kom illa við skap hans, að sjá lin- lega eða sviksamlega unnið, en þó var hann hjúasæll, svo að margt fólk var hjá honum mörg ár samfleytt, og að minnsta kosti er enn á Hvanneyri þrennt af því fólki, sem réðist til hans 1907, •— ráðs- kona, mjólkurbússtýra og fjósamaður, — enda var hann ætíð raungóður hjúum sín- um, ef þau þurftu einhvers sérstaklega við. Og vegna fullkomnustu verkfæra- og véla- notkunar varð ýms vinna léttari og á- nægjulegri þar en annars staðar. Það er t. d. gaman að vinna að heyskap þar, sem hirtir eru á dag 650 hestar, heyinu öllu ekið heim óbundnu, vagnhlössin tekin í heilu lagi við hlöðudyr með rafkrafti, lyft upp undir hlöðumæni, flutt á rennibraut inn eftir hlöðunni og sprett niður hvar sem vera vill í hlöðunni. Eða þar, sem hafa mátti í gangi samtímis „Fordson“-dráttar- vél, með tilheyrandi jarðyrkjuverkfærum, 4 plóga, 12 herfi, hestareku, slóða („Orm Stórólfsson“), 2 valta, 2 sáðvélar; 3 sláttu- vélar, 4 rakstrarvélar, 2 snúningsvélar, heybindingsvél o. s. frv. — Og 140 vænir laxar veiðast á einum degi. Við jarðræktina (jarðabæturnar) eins

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.