Freyr

Árgangur

Freyr - 01.02.1938, Síða 6

Freyr - 01.02.1938, Síða 6
20 FRE YR Mjólkurbrúsar eru þá skolaðir með þess- um vökva þannig, að þeir eru hristir með lokinu á og þess gætt að einnig lokið skol- ist að innan með vökvanum — og mjalta- fötur upp á barma. Tilraunir rannsóknar- stofunnar hafa sýnt að skola má 5 mjóík- urbrúsa með 5 lítrum af útþynntum stofnvökva. Eftir skolun er ílátunum hvolft og látið drjúpa af þeim klórkalks- skolavatnið. Mjaltamaður skal og taka með sér í fjósið klórkalksskolavatn, er svarar til iy2—2 lítrum fyrir hverja kú og svo klúta, sem hann vindur upp úr skola- vatninu og þvær með júgrið á hverri kú, áður en hún er mjólkuð, og í kringum júgrið. . Að loknum mjöltum skal þvo síur, mjaltafötur og önnur mjólkurílát, sem þá eru tóm með heitu sóda- eða kalk- vatni og skola á eftir, fyrst með hreinu vatni, eins og venja er og síðan með klór- skolavatni. — Og mjólkurbrúsar settir á kaldan stað. Nú er eftir að skýra frá, hvað vinnst við allt þetta „nostur“ við mjaltir og mjólkurílát umfram það venjulega. I því efni leiddu rannsóknirnar m. a. þetta í ljós: 1. Af mj ólkurbrúsunum, sem komu til rannsóknarstofunnar daglega frá einu og sama búinu, var í 5 morgna tekinn einn af handahófi og þveginn vandlega en hinir brúsarnir allir frá sama búinu þvegnir „eins og gengur og gerist“. Síðan var hinn vandlega þvegni brúsi (II) og einn af hinum (I) skolaðir með sínum 2 lítrum hvor af klórskolavatni og hristir í cá. 15 sekúndur, síðan var þeim hvolft, svo dropið gæti úr þeim. Að kvöldi sama dags voru báðir brúsarnir skolaðir með (4 lítir af dauðhreinsuðu vatni og síðan mæld gerlamergðin í þessu skolavatni. Reyndist þá svo að í hverjum ccm. skola- vatnsins úr brúsa I, voru 104000 kím, en úr brúsa II aðeins 350, hvortveggja meðaltal fyrir áðurnefnda 5 daga. Þetta staðfestir það, sem fyr er sagt, að notkun klórkalksins er ekki liður í hrein- gerningu mjólkurílátanna — það er ekki þvottaefni — heldur sótthreinsunarmeð- al. Og tilraunin sýnir líka Ijóslega, hversu ,,óhreinir“ — í þeim skilningi sem hér er um að ræða — „vel þvegnir“ mjólk- urbrúsar eru. Sé gert ráð fyrir hægfara kælingu mjólkurinnar í þessum tveimur brúsum, t. d. að 2—3 stundir líði frá mjöltum, þar til mjólkin er orðin svo kæld, að ,,æxlun“ gerlanna stöðvist, þá hafa gerlarnir auk- ið kyn sitt og margfaldast að tölu nokkr- um sinnum á þeim tíma, og þá er allur munur á hvort það eru einir 350 gerlar eða 104 þúsund gerlar í hverjum ccm. mjólkurinnar, sem hafa aukið kyn sitt og margfaldast að tölu. Ennþá verra er þetta vitanlega ef mjólkin er alls ekki kæld, því að þá heldur æxlunin áfram og þar með fjölgun gerlanna í hærra og hærra veldi. 2. Það sýndi sig að jafngóður árangur náðist með alla mjólkurbrúsana — þann síðasta sem hinn fyrsta — þótt 5 brúsar væru skolaðir með sama klór-skolavatn- inu, og það skiftir heldur ekki máli, hvort notaðir voru 5 eða 10 lítrar til að skola 5 brúsa. Fyrir tvenna 5 mjólkurbrúsa, sína 5 frá hvorum bæ, reyndist gerlamergðin (kímin) í hverjum ccm. af dauðhreins- aða skolavatninu (sjá framar) að meðal- tali: a) 187.000, ef brúsarnir voru ekki skol- aðir með klórskolavatni. b) 148, ef hvorir 5 brúsar voru skolaðir með sömu 10 lítrum af klórskolavatni. c) 145, ef skolað var á sama hátt með 5 lítrum. 3. Það stoðar lítið þótt mjólkurbrúsar séu vandlega þvegnir og sótthreinsaðir,

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.