Freyr - 01.02.1938, Side 11
FRE YR
25
aðferð getur auk þess því aðeins komið
til greina, að skinnaframleiðslan sé bund-
in við 1. liðs blöndun. Þar sem nú ekki
er hægt að sjá skinnið á lambinu, á með-
an það er í móðurkviði, verður það hrein
tilviljun, hvort heppnast að drepa ána á
réttum tíma. Skinnið getur því alveg eins
orðið verðlaust eins og verðhátt. Eg hefi
heldur ekki heyrt þess getið, að þessi að-
ferð sé annasstaðar notuð, enda þykir mér
sennilegt, að þessi tilraun í Rogalandi
gangi aðallega í þá átt, að láta refarækt
og Karakulrækt styðja hvor aðra.
Um síðustu aldamót var Karakulfé
flutt í fyrsta sinn inn í Þýskaland. Var
það dýraræktarstofnun háskólans í Halle,
sem ílutti féð inn og tók þegar að rækta
hað með strangvísindalegri nákvæmni,
og með svo góðum árangri, að nú er
þýska Karakulféð talið taka öllu öðru
Karakulfé fram, enda selzt fé þaðan —
með vaxandi eftirspurnum — út um allan
heim. — Stofnunin í Halle hefir ekki ein-
ungis selt fé til flestra landa í Evrópu,
heldur og til Suður- og Norður-Ameríku,
Afríku og til Java.
I Halle er stofninn ræktaður hreinn, en
auk þess hafa verið gerðar fjölþættar til-
raunir með blendingsrækt, ekki einungis
með þýzkum fjárkynjum, heldur og er-
lendum. Sem dæmi um þá nákvæmni,
sem höfð er við þessar tilraunir, skal þess
getið, að Ijósmynd er tekin af hverju ein-
usta lambi, sem ætlað er til lífs, og auk
þess er skrifuð af því nákvæm lýsing, sér-
staklega af gerð, vexti og legu háranna.
Karakulkindin, þótt fullvaxin sé, er sem
sé fyrst og fremst dæmd með tilliti til
þess, hvernig hún leit út nýborin.
1 fyrstu óttuðust menn að Karakulféð
mundi ganga úr sér við mjög breytt lífs-
skilyrði, endaþótt stofninn yrði ræktaður
hreinn.Sérstaklega var óttast um að hára-
lagið mundi breytast undir mikið breyttu
loftslagi. Menn bjuggust jafnvel við að
fóðurbreytingin mundi hafa áhrif í þessa
átt. í Turkestan lifir féð sem sé aðallega
á saltríkri, hálmkendri jurt, og drykkjar-
vatnið er auk þess salt. En þau 35 ár, sem
búið er að rækta Karakulfé í Þýzkalandi,
hefir ekki orðið vart við nokkra úrkynjun
í þessa átt.
Þýzkt Karakul-lambskinn. Meffal lokkastœrð.
Verð skinnanna fer fyrst og fremst
eftir gæðum — burtséð frá þeim verð-
sveiflum, sem vera kunna á markaðinum
— en auk þess hefir mikið að segja að
skinnin séu vel flokkuð. Eitt eða tvö
skinn, þótt ágæt séu, seljast tiltölulega
lægra verði en 10—20 skinn, sem öll eru
að sömu gerð.
1 fullsíða kvenkápu þarf 22—24 skinn,
sem öll verða að vera nákvæmlega af
sömu gerð. Hafi maður því á boðstólum