Freyr

Volume

Freyr - 01.09.1938, Page 10

Freyr - 01.09.1938, Page 10
136 F R E Y R Nemendur voru oftast 12 í Ólafsdal og alls voru þeir 160, sem nutu þar kennslu alla tíð skólans. Af nemendum þaðan, sem þjóðkunnir urðu má nefna Sæmund Eyjólfsson síðar guðfræði- kandidat -—- einn af fyrstu nem- endum þar — Jónas Ara Sigurðsson, er síðar varð prestur í Ameríku — orð- lagaður gáfumaður, og taldi Torfi hann mestan námsmann sinna lærisveina —, Ólaf Jónsson, lögregluþjón, er skóla- stjóri varð á Hvanneyri eftir Svein Sveinsson, Magnús Friðriksson frá Stað- arfelli, Hjört Snorrason skólastjóra, tengdason Torfa, Sigurð Þórólfsson, Guð- jón Guðmundsson ráðunaut.Margir fleiri af nemendum Torfa urðu merkir menn og mikils metnir, og enn er á lííi einn af fyrstu nemendunum, Júlíus Ólafsson bóndi í Miðjanesi, nú 75 ára og þó ,,ung- ur“ og fjörugur. Það mun óhætt að fullyrða, að Ólafs- dalsskólinn hafi staðið hinum búnaðar- skólunum framar um verklega kennslu og ætíð var næg eftirspurn eftir búfræð- ingum þaðan til jarðabótastarfa, hjá sýslufjelögum (fyrstframan af), hreppa- búnaðarfélögum og einstökum mönnum. Einkum voruþað plægingarnar ogsmíðar, sem stund var lögð á að kenna nemend- um í Ólafsdal, meira en annars staðar, og þaðan komu líka plógarnir, sem mest voru notaðir fram yfir aldamót, svo og herfi, hestarekur, ristispaðar, kerrur og aktýgi, því að allt þetta smíðaði Torfi, og reyndi að laga það sem bezt eftir ís- lenzkum þörfum og staðháttum. Ólafs- dalsverkfærin mundu ekki þykja góð nú, enda er nú við allt annað að miða, um allt verkfæraval, en á sínum tíma voru þau það bezta, sem menn áttu almennt kost á að fá. Og sjónarmið Torfa var það, gagnslítið væri að kenna jarðabótastörf- in, ef engin nýtileg verkfæri væru til handa búfræðingunum að vinna með, þegar þeir kæmu til bænda. Og það varð líka venjulegast, að bændur, eða búnað- arfjelög pöntuðu frá Torfa bæði menn- ina og verkfærin til jarðabótastarfanna. Með þessu móti komu búfræðingarnir frá Ólafsdal betur að liði en aðrir búfræð- ingar og sambönd Ólafsdalsskólans við bændur urðu meiri og ávaxtaríkari, en hinna skólanna. Af jarðyrkjuverkfær- um smíðaði Torfi alls 77 kerrur, 115 plóga úr járni og stáli, 28 hestarekur, 97 herfi, 109 hemla, 281 aktýgi og nokk- ur hundruð ristuspaða. Allt var þetta smíðað á vetrum, jafnhliða mikilli bók- legri kennslu, og er það ekkert smáræði, enda þótt piltarnir hjálpuðu til við smíð- arnar. Af þessu leiddi það, að Torfi varð langsamlega mestur frömuður jarða- bóta og jarðyrkjumenningar hér á landi, um sína daga,og óumdeiltöflugastibraut- ryðjandi þeirra stórstígari jarðabóta- framkvæmda, sem síðar hafa orðið hjá oss. Og hann gerði manna mest að því, að kenna mönnum að nota hestaflið við jarðabótastörfin og kveða niður þá heimsku, að það væri ómannúðlegt að beita hestum fyrir jarðabótaverkfærin. Enn er þó ótalið það verk Torfa, sem hverjum einasta bónda landsins kom að fullu liði og ómetanlegu gagni í meira en 60 ár og gerir enn að nokkru, en það eru skozku ljáirnir eða Torfaljáirnir, sem hann fekk gerða í Skotlandi eftir sinni fyrirsögn, er hann var þar á ungum aldri. Og hefðu þeir ekki komið til sög- unnar, og menn þurft að hita ljáina, eins og áður, þá hefðu nú áreiðanlega verið hjer miklum mun minni skógarleifar en eru, og óvíst hvort enn hefði nokkur haft trú á því, að hér megi enn ala upp skóg. Þessi þýðing skozku ljáanna hefir Torfa eflaust verið ljós, því oft bar hann sér í munn orð Jónasar:

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.