Freyr

Årgang

Freyr - 01.09.1938, Side 18

Freyr - 01.09.1938, Side 18
144 F R E Y R Utanfarir. Ríkisstjóminni hér var boðið að senda nokkra menn á landbúnaðarsýninguna miklu á Bellahöj í Kaupmannaböfn, sem áður er getið hér í blaðinu. Skrifstofustjóranum í atvinnumálaráðuneytinu, Yigfúsi Einarssyni, var boðið sérstaklega, en auk hans fóm formaður BúnaSarfélags Islands, Magn- ús Þorláksson, skólastjórar bændaskólanna og Sig- urður Sigurðsson fyrv. búnaSarmálastjóri. Eftir sýninguna fór Magnús til Noregs og tók þar þátt í sumarnámskeiði búfræðikandidata á Norðurlöndum, er aSallega fór fram á búnaðarhá- skólanum í Ási undir stjóm háskólarektors Lars Loe. Félagið „Norden“ gengst fyrir þessum nám- skeiðum og flytur þau landa á milli ár frá ári. Kemur þá sennilegt einhverntíma að því, aS slíkt námskeiS verði haldið hér á landi. H. J. Hólmjárn ríkisráðunautur í loSdýrarækt var einnig á þessu námskeiði. Hann mætti einnig á þingi norrænna búvísinda- manna, sem háð var í Uppsölum 4.—7. júlí, en aðalerindi hans til útlanda voru í sambandi við loð- dýraræktina. Þar var einnig Ámi G. Eylands for- maöur Íslandsdeildar norræna húfræðifjelagsins og flutti hann þar fyrrilestur um Island og sam- vinnu þess við önnur Norðurlönd í búnaSarmálum. Kristján Karlsson skólastjóri og dr. Halldór Páls- son, sauðfjárrktarráðunautur vom einnig á þing- inu og e. t. v. fleiri Islendingar. Hólmjám hefir nú verið kosinn í stjóm einnar fagdeildar búfræði- fjelagsins, þeirrar er hefir með höndum jarðvinzl- una og er það í fyrsta sinn, sem Islendingur er kosinn í stjórn fagdeildar (Sektion) í fjelaginu. Runólfur skólastjóri fór frá Danmörku víða um SvíþjóS og heim þaðan um Noreg, og mun síðar skýra frá ferð sinni hér í blaðinu. Ásgeir Einarsson dýralæknir, var í vor erlendis, til þess að kynna sér sjúkdóma í loð- dýmm og Ásgeir Þ. Ólafsson dýralæknir í Borgamesi fór utan í sömu erindagjörSum. Þá fór og SigurSur Ein. Hlíöar utan í sum- ar til Noregs og Danmerkur. Hafði hann með sér smásjársneiSar (Preparater) af lungum úr mæSi- veikum kindum o. fl. og bar sig saman við vísinda- menn á sviði húsdýrasjúkdóma í nefndum löndum. Telur hann sig hafa fengiS við þetta staöfesta sína skoðun um það, að lungnaormarnir valdi mæði- veikinni, eða séu a.m.k. fmmorsök hennar, þótt aðr- ir sjúkdómar kunni að fylgja, þegar ormamir hafa lamaS mótstöSuna. Hinsvegar hefir prófessor Dungal líka verið ut- anlands, til þess að halda áfram athugunum sínum viSvíkjandi mæðiveikinni og hafa tal af fræSi- mönnum um þau efni er hana varða. Hefir hann í þessari ferk styrkst í sinni skoðun að mæði- veikin sé sama veikin og sú er kallast Jaagziekte í Áfríku og John M. Fadyean, fyrverandi forstöðu- mann dýralæknaháskólans í Lundúnum telur hann nú vera orðinn sömu skoSunar. Fadyean hafði áöur haldið því fram, aS Jaagziekte stafaði af ormum, en er nú fallinn frá því. Einnig hefir Dungal stjrrkst í þeirri skoSun, að mæðiveikin sé til í Þýzkalandi — og víðar í Efrópu — þótt hún sé þar ekki skæð, og einkenni hennar segir hann að ekki hafi fundist í sauðfé þar í landi nema nálægt Leipzig, en þar nærri er Halle, sem karakulkind- urnar komu frá hingað. Eftir skoSun Dungals ber- ast þá höndin meira en áður að karakulhrútnum í Deildartungu, en Hlíðar telur veikina „gamlan hús- gang“ hér heima, e. t. v. í nýjum ham. Gátan um „mæðiveikina“ virðist því jafn óleyst enn. Frystihús í Borgarnesi, Kaupfélag Borgfirðinga hefir í sumar látið reisa frystihús í Brákarey viS höfnina í Borgamesi. Að meðtöldum vélasal, er húsið 360 m2 að grunnmáli og frysthúsiS sjálft 3 hæSir. Á þessu ári verða ekki frystileiðslur lagðar nema á 2 hæðimar, en að öðru leyti verður húsið fullgert fyrir sláturtíS í haust. Á þeim tveim hæðum, sem frystileiðslur verða lagðar í strax eru 7 frystikkfar, er geyma má í um 15 þús. kroppa. RáSgert er aS stækka húsið síðar, og sennilega áður langt líðvr. Einnig hefir félagiS í sumar byggt ketilhús við mjólkursamlagið yfir nýjan gufuketil, og í sam- bandi við það nýjan reykháf, 24 m. háan. Leiðréttingar. Missagt var það í 6. tölubl., að öll smárit Áburð- areinkasölunnar væm skrifuð af Á. G. Eylands. Ritið „Um sáSsléttur“, sern kom út 1930 — og er nú uppgengið — er eftir Ólaf Jónsson framkvæmd- arstjóra á Akureyri. Ekki er það heldur rétt, sem ætlað var í sama blaSi, aS Stefán Þorsteinsson hafi fyrstur íslendinga lokiS nárni við smábændakenn- araskólann í Sem. Það mun vera Jóhann Þorsteins- son frá UrSum í Svarfaðardal, nú héraðsráðunaut- ur Búnaðarsambands SuSurlands, sem fyrstur Is- lendinga lauk þar námi, og er all-langt síðan. ííafoldarprentsmiBJa h.í.

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.