Einherji - 12.05.1970, Page 12
12
EINHERJI
Þriðjudagnr 12. maí 1970
Frambodslisti Framsóknarflokksins á Sauðárkróki
6. Sveinn Friðvinsson 7. Sæmundur Hermannsson
8. Dóra Magnúsdóttir
9. Magnús Sigurjónsson
10. Ingimar Antonsson
Tryggjum áframhaldandi sókn í framfaramálum Sauöárkróks
Pjögur ár eru nú liðin síð-
an framsóknarmenn tóku við
forystuhlutverki í bæjarmál-
um Sauðárkróks.
Á átta ára tímabili, sem
þá var á undan gengið,
höfðu sjálfstæðismenn haft
breinan meirihluta í bæjar-
stjórn Sauðárkróks og gátu
því einbeitt sér að þeim
málum, sem þeir töldu sér-
stök hagsmunamál bæjarfé-
lagsins og bæjarbúa.
Ekki skal hér rifjaður
upp né rakinn gangur mála
á þessu tímabili. Á hitt skal
þó minnt, að flest hafði far-
ið úrskeiðis, atvinnumál
í kalda koli, vantrú ríkjandi
á sjávarútvegi, framkvæmd-
ir mjög litlar á vegum bæj-
arins, tekjur fólks í algeru
lágmarki, fólksfjölgun í bæn-
um sáralítil og almenn deyfð
um framfaramál og fram-
tíðarmöguleika.
Algerlega skorti nauðsyn-
legan undirbúning framtíð-
arverkefna og framkvæmda.
Skipulagsmál bæjarins full-
komlega vanrækt. Fjárhags-
grundvöllur mjög veikur og
í algjöru lágmarki og láns-
traust bæjarins út á við eft-
!ir því.
Á þessum tímamótum leit-
uðu framsóknarmenn stuðn-
ings bæjarbúa í kosningum
til bæjarstjórnar, til þess að
þeir mættu taka að sér for-
ystu í bæjarmálum, til hags-
bóta fyrir bæjarbúa í at-
vinnulegu og menningarlegu
tilliti.
Kjósendur urðu við þessu,
og veittu framsóknarmönn-
um umbeðinn stuðning og
forystuaðstöðu í bænum.
Þegar nú enn á ný er
gengið til bæjarstjómar-
kosninga er því eðlilegt, að
litið sé til baka um farinn
veg, bæði til fyrri tíma og
einnig 'til hinna síðustu f jög-
urra ára, og af þeirri yfir-
sýn mörkuð stefna til fram-
jtíðar. Af þessu má vissu-
I lega fá mi'kilsverðan lær-
dóm.
Við Framsóknarmenn ósk-
um beinlínis eftir því, að
bæjarbúar geri þetta á hlut-
lægan hátt og erum þá viss-
j ir um, að matið verður okk-
ur tvímælalaust í hag.
Ekki er hugmyndin að
gera yíirlit yfir þá mála-
flokka, sem hér er um að
jræða, heldur er gert ráð
jfyrir að bæjarbúar hafi með
þessu fylgzt og kunni að
meta þá. Hinu er ekki að
leyna, að oft vilja staðreynd-
ir brenglast í meðförum
manna á milli og telja sum-
ir sér hag að, og er þá um
að gera að kjósendur geti
kynnt sér málin til hlítar
og mótað skoðanir sínar
þar af.
Rétt þykir þó að benda á
nokkur veigamikil atriði í
þessu sambandi.
Atvinnumálin skulu þá
fyrst nefnd. Stofnim Útgerð-
arfélags Skagfirðinga og
kaup á m. s. Drangey hafa
reynzt til stórmikilla hags-
bóta og heilla fyrir alla að-
ila. Útgerð skipsins hefur
reynzt sjómönnum, verka-
fólki í landi og frystihúsim-
um happadrjúg í hvívetna.
Útgerð skipsins hefur vakið
á ný trú manna á útgerð frá
Sauðárkróki.
Þjónustuiðnaðurinn og ann-
ar iðnaður í bænrnn hefur
vaxið og aukizt að þrótti
vegna hinna nýju umsvifa
og nýjar iðngreinar tekið
hér bólfestu fyrir aðgerðir
bæjarstjórnar. Þessar iðn-
greinar, sokkabuxnaverk-
smiðjan, sem þegar veitir
stórum hópi kvenna atvinnu
og sútunarverksmiðjan, sem
verið er að byggja upp sem
öflugt og stórt fyrirtæki,
lofa góðu í atvinnumálum
í framtíðinni.
Um iðnaðar- og önnur at-
vinnumál mætti margt fleira
segja, og benda á nýja þætti,
sem þegar eru í undirbún-
ingi og veita stóraukna
möguleika til atvinnu í bæn-
um.
1 hafnarmálum hafa verið
unnir merkir áfangar. Dælt
var sandi úr höfninni og
hann jafnframt notaður til
landmyndunar. Þetta sýnir
nýja stenfnu í þeim málum.
Aðgerðir til varnar stöðugu
landbroti hafa séð dagsins
ljós á eftirminnilegan hátt.
i Framkvæmdir, sem í munni
sumra hafa fengið nafnið
„Gullströnd“.
Verulegur hluti aðalæðar
hitaveitunnar 1 bænum var
endurnýjaður, þó að þar sé
enn þörf stórra átaka. Gagn-
fræðaskóli byggður á stutt-
um tíma og hann tekinn í
notkun, unnið við bókhlöðu
og hún tekin í notkun, byggð
ur læknisbústaður, verulega
Framhald á 11. síðu