Freyr

Årgang

Freyr - 01.12.1911, Side 13

Freyr - 01.12.1911, Side 13
FRE YR. verður eftir, sem skiljanlegt er, þar sem hvert strá sem ljárinn klippir, færist aftur'af greiðunni, á strigavoðina. Má búast við að langt verði þess að bíða að sérstakar rakstrarvélar komi, sem raka svo vel, jafnóslétta jörð og Deeringsláttuvélin slær. Þessi Ijárakstrarvél rakar í stóra flekki og strjála, sem flýtir mikið fyrir samantekningu þurheys, einkum ef þá er hafður hestur fyrir heyýtu. 30. sept. 1911. Guðm. Sigurðsson plægingam. Hellnahól. Gaddavírsherfið, Sjá Búnaðarrit 23. ár, bls. 269—271. Kafli úr bréfi til E. H. frá Daniel Jónssyni á Eiði. . . . Þessi dráttur á að skrifa yður kemur af því, að mér reyndist herfið svo illa í fyrra, að eg gat ekki annað en kvartað um vonbrygði ef eg segði nokkuð og kom mór til hugar að þér munduð hafa orðið helzt til fljótur að mæla með því. Nú get eg, sem betur fer, minst á það við yður og alla án þess að kvarta. I vor hefi eg herfað með því alt tún initt, nema þar sem enn er ósléttað og er vel ánægður með hvernig það vinnur, jafn einfalt og ódýrt verkfæri. Það bæði flýtir fyrir ávinslunni og áburðurinn hverfur því nær allur ofan í rótina. í fyrra var það að herfinu hjá mér, að gadd- arnir í vírnum voru of gisnir — 6 þuml. bil á milli — og annað það, að torfan ofan á var ekki í einu lagi, heldur í þremur lengjum sem eg lagði hverja við aðra. í vor fékk eg mér vir með þéttari göddum, 3 þuml. millibili og hafði torfuna i einu lagi. Öðru breytti eg ekki. Vonandi verður þetta verkfæri að góðum not- um framvegis við túnræktina. Ætti að útbreið- 13£ ast sem fyrst. Ef þér finnið Stefán B. Jóns- son bið eg yður að færa honum þakklæti mitt. fyrir uppfundninguna.11 . . . Í5 Fallega af sér vikið. Skinfaxi, mánaðarrit Ungmennafélags ís- lands, skýrir frá því, að fyrv. bankastjóri Tryggvi Guunarsson hafi gefið ungmennafélag- mu landspildu í Öndverðarneslandi í Arnessýslu. Landspilda þessi er 140‘/2 vallardagslátta að' stærð, ágætlega fallin til skógræktar, og er hún að miklum mun vaxin skógarkjarri. Meðal birkisins eiu 2 falleg reyniviðartré. Land þetta liggur að Álftavatni og Soginu við brúna. Staðurinn hinn fallegasti. Ætlast gefandinn til, að ungmennafélagið rækti og prýði land þetta einkum með trjá- gróðri, svo það geti orðið félaginu til ánægjn og öðrum til fyrirmyndar. Það er tekið fram í gjafabréfinu að Ung- mennafélagið megi ekki selja né veðsetja land- spildu þessa. En skyldi svo fara að félagið upphefjist eða þreytist á að rækta blettinn, á- skilur gefandinn, að hann verði landssjóðseign og notaður til skógræktar. Svona rausnarleg hugulsemi er sjaldgæf og því gleðilegri. Vonandi verður þessi fallega gjöf landinu til hamingju á margan hátt. Um búnaðarástandið hér á landi skrifar Alfred Kristensen í Einarsnesi grein í danska timaritið „Atlanten". Hann byrjar með því að tala um strjál- bygðina og erfiðar saragöngur, vondar vetrar- ferðir o. s. frv., er valdi þeim hvikulleika i fyrirætlunum og framkvæmdum, er ekki þekk- ist í öðrum löndum. Að þetta tálmi reglubundn-

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.