Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 15.11.1945, Blaðsíða 11

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 15.11.1945, Blaðsíða 11
TÍMARIT V.F.Í. 1945 57 að kaloríutali s(80 + g), þar sem s þýðir vatns- þörf kindar í kílógrömmum, auk þess sem hún fær í fóðrinu á sólarhring**). 1 fjórða og síðasta lagi set ég fram þá skoðun mína, að sauðkindin þoli ekki svo mikið hitatap sem af snjóátinu leiðir og éti því miklu minna af snjónum heldur en hún þarf til þess að fullhægja vatnsþörfinni og líði því af vatnsskorti, þorsta. Ég vil biðja háttvirta lesendur að hafa þessi 4 höfuðatriði föst í huga, og þá sem ekki treysta sér til þess, vil ég biðja að leggja aftur heftið og hætta lestrinum, því að þeir hafa þá hvorki gagn né gaman af að lesa þessa grein. Væri þeim betra að taka sér kvæðabók í hönd eða fara í kirkju, og svo hefði herra Bjami Jósefsson átt að gera, ég held að hann minnist ekki á neitt þessara aðalatriða. Um fyrsta atriðið, vatnið, sem verður úr snjónum, hef ég fengið nýjar upplýsingar síðan ég skrifaði mína fyrri grein, mér er sagt (eftir norskum verkfræðinga- töblum), að nýfallinn snjór sé 12 sinnum meiri að fyr- irferð en vatn það, sem úr honum verður þegar hann bráðnar. Snjór hefur náttúrlega ýmsan consistenz eft- ir því hve gamall hann er, hvernig viðrað hefur und- anfarið o. s. frv., en almennt mun vera talið, að ótroð- inn snjór sé 10 sinnum meiri að fyrirferð heldur en vatn það, sem úr honum verður þegar hann bráðnar, og verður þessu fylgt hér. Ég gat þess áðan, að sam- kvæmt reikningnum í grein herra Bjarna Jósefssonar er vatnsþörf kindar 1,8 kg á sólarhring, eða 1,8 lítr- ar, sem er það sama. Til þess að fullnægja þessari þörf með því að éta snjó þarf hún að éta 18 lítra! Fer nú lesandann ekki að ráma í, á hverju skoðun mín i þessu máli er byggð? Herra Bjarni Jósefsson aatti að spæna upp í sig einn lítra af snjó og vita, hvort hann langar í aðra sautján. Vill hann ekki hka gefa kúnum snjó? Þá held ég að þær græddu sig nú! Ég kem þá að uppbótarreikningi herra Bjarna Jósefssonar, ég hef reyndar sterka tilhneigingu til þess að fullyrða, að hann sé alls ekki eftir herra Bjarna Jósefsson, ég hef farið yfir of marga reikn- ioga um dagana til þess að finna ekki, hvað feitt er a stykkinu í því efni, þó að slíkt sé erfitt að sanna, eg er viss um að það dettur ekki meteórsteinn niður a Landakotskirkjuturn klukkan 7 í fyrramálið, en ég treysti mér ekki til þess að sanna það. Það skyldi þá helst vera til sönnunar þessu, sem ég nefndi, að herra Ujarni Jósefsson heldur sjálfur, að reikningurinn sé skakkur, um það hef ég pósitífa vitneskju, sem hon- um er sjálfum kunnug og mörgum fleirum. Ennfrem- or virðist hann vera bara prunkinn yfir því, að energi- *) Þetta er — eins og reyndar er sjálfsagt -— alveg sama 'Sern önnur reikningslínan í grein B. J., að öðru en því, að Þar er temperatúr snjóarins talinn -=-8°, en 0° í minni grein, en Þetta getur hvorttveggja, verið og er svo að segja sama, hvort talið er. Þar sem hann fær 165 kal. mundi ég fá 155 ltah með þvi að telja s=l,8 og g=6 eins og þar er gert. tap skepnunnar sé nær því helmingi meira eftir hans reikningi heldur en mínum. Reikningurinn stang- ast við definition Bjarna á öskusprócentunni. Bjarni segir öskuna 8% af heyinu, en þar sem engin aska verður úr vatni því, sem í heyinu er, virðist eðlilegra að definera öskuprócentuna af þurefninu og svo hef- ur reiknandinn tekið það (sbr. fyrstu reikningslínu í grein Bjarna), mér sýnist því að Bjarni sjálfur hafi ekki skilið reikninginn meira en svo, aumingja Bjarni, það má segja um hann það sem einu sinni var sagt í blöðunum um alheiminn, að hann væri ,,á miskunnarlausri för um blaðsíður grísks harmleiks,“ ég fer rétt með orðin. „It takes all sorts to make a world,“ segja þeir ensku, ég hef séð það í bók. Um uppbótarreikninginn sjálfan er það að segja, að hann kemur mér lítið við nema um vatnsþörf sauð- kindarinnar, sem áður hefur verið minnzt á. Ég kemst víst ekki hjá að cítera fyrri grein mína um síðasta atriði hennar. Þar stendur svo: „Ég er reyndar viss um, að Surtla (sú kindin, sem snjóinn étur) torgar ekki 1 kg af snjó (hvað þá heldur 1,8 kg eins og nú er komið á daginn), en þá hlýtur hún bara að líða af vatnsskorti. Ég gæti trúað, að hún torgaði ekki nema litlum hluta þess sem hún þarf.“ En ef svo er, sem mig þá grunaði, en nú er viss um, að kindin fái ekki nema lítinn hluta þess vatns, sem hún þarf, þá þarf að bæta henni vatnsskortinn, en það verður ekki gert með lýsisgjöf. Að vísu er lýsisgjöfin að sjálf- sögðu ekki nema góð, vegna þess að kindin étur þó alltaf eitthvað af snjónum og tapar þá energi sem því svarar, og þá energi getur lýsið bætt upp, en vatnsþörfinni er ekki þar með fullnægt. Annars veit ég ekki til þess að þetta sé gert, og er þetta því alveg utan við allt, sem í minni grein segir. Ég hef sjálfur varla séð sauðkind að vetri til síðan ég var 12 ára og þekki því ekki til fjárhirðingar á vetrum. En ég hef spurt gamlan vin minn, sem í æsku sinni hirti 40 kindur í húsi og bar þeim oft snjó eins og tíðkaðist, hve mikið hann hefði borið í húsið. Hann taldist heldur undan að svara, sagði að slíkt hefði nú ekki verið mælt, tók þó til svona 4—5 var- rekur stórar. Þetta getur nú naumast orðið meira en svona hátt í tunnu, fari það. Ég ímynda mér, að það sé ekkert fjarri lagi að gera ráð fyrir, að kindurnar fái svona 80 lítra, 2 lítra hver, því að eitthvað bráðn- ar, en lítið verður úr þessum 2 lítrum, ef kindin þarf 18 lítra á sólarhring (þ. e.: 1,8 kg af vatni). 1 hús með 40 kindum þyrfti að bera ca. 800 lítra af snjó á sólarhring, því að nokkuð bráðnar niður, reikmð þið bara og sjáið, ef Vio af snjónum bráðnar, þá eru eftir 720 lítrar af snjó, en það er einmitt 720:40 = 18 lítr. á hverja kind, en úr því verður 1,8 lítrar af vatni eða 1,8 kg, sem er það sama, þegar það er bráðnað innan í skepnunni. Þetta mundi vera um 50 varrekur af snjó með sama reikningi og áðan, ég held að þetta komi ekki til mála, hvorki 50 varrekur né neitt í átt-

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.