Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 15.11.1945, Blaðsíða 17

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 15.11.1945, Blaðsíða 17
TÍMARIT V.F.I. 1945 63 Jón Skúlasou er fæddur í Keflavík 22. ágúst 1916, og eru foreldrar han Skúli Högnason, trésmíðameistari þar, og kona hans Guðrún Jónsdóttir. Tók hann stúdentspróf frá Menntaskólanum í Reykjavík 1937 og stundaði síðan nám við verkfræðiháskólann IKaup- mannahöfn, unz hann lauk prófi í janúar 1943 í rafmagns- fræði. Að loknu námi starfaði hann fyrst hjá Laur. Knudsen A/S um háifs árs skeið, hjá Titan A/S í eitt ár, en síðan sem aðstoðarverkfræðingur við verkfræðiháskólann í Stokk- hólmi að akústiskum rannsókn- um, þar til hann hvarf heim að stríði loknu sumarið 1945. Hann var skipaður verkfræð- ’hgur hjá Landsíma íslands 1. ágúst 1945. iYIarteiiiii Björnsson er fædd- ur 28. febr. 1913 að Orrastöð- um í Húnaþingi, og eru foreldr- ar hans Björn Eysteinsson, bóndi, og kona hans Kristbjörg Pétursdóttir. — Tók hann stúdentspróf frá Menntaskól- anum á Akureyri 1936 og stundaði síðan nám í bygginga- verkfræði við verkfræðiháskól- ann í Kaupmannahöfn, unz hann lauk prófi í jan. 1944. Hann er' nú ráðinn aðstoðar- verkfræðingur hjá bæjarverk- fræðingnum í Reykjavík. I’étur Sigur,jónsson er fæddur 30. júlí 1918, og eru foreldr- ar hans Sigurjón Pétursson, framkv.stj., og kona hans Sigur- björg Ásbjörnsdóttir. Tók hann stúdentspróf frá Menntaskól- anum í Reykjavík 1936 og stundaði síðan nám við verk- fræðiháskólann í Dresden, unz hann lauk prófi sem Dipl.Ing. 1940. Að því loknu sótti hann skóla fyrir ullariðnað í Cottbus og lauk prófi frá honum 1943. Réðst hann þá í vefnaðarverk- smiðju Gebriider Fritsch í Grossenhain og starfaði þar í hálft ár. Fór hann þá til Dan- merkur og starfaði í Den Kongelige Militærklædefabrik í Kokkedal frá 1943—-1945. Nú er hann verksmiðjustj. klæða- ' erksmiðjunnar Álafoss. Eftir Pétur hafa birzt ritgerðir um hnímalíseringu á seliulósatrefjum með etylenímíni. Helgi Bergs er fæddur 9. júní 1920, og eru foreldrar hans Helgi Bergs, framkvæmda- stjóri, og kona hans Elin Bergs. Tók hann stúdentspróf frá Menntaskóianum í Reykja- vík 1938 og stundaði síðan nám í efnaverkfræði við verkfræði- háskólann í Kaupmannahöfn, unz hann lauk prófi 1943. Réðst hann þá til Afdeling for teknisk Hygiene við háskól- ann og starfaði þar til 1. júlí 1945. Hann er nú ráðinn verk- fræðingur hjá Sambandi ís- lenzkra samvinnufélaga. — Helgi er kvæntur Lis Eriksen. Er hún ættuð frá Hróarskeldu, fædd 9. okt. 1917. Ingólfur Ágústsson er fæddur í Reykjavik 2. júli 1917, og eru foreldrar hans Ágúst Guðmundsson, yfirvélstjóri í Elliða- árstöðinni, og kona hans Sig- ríður Pálsdóttir. Tók hann stúdentspróf frá Menntaskól- anum í Reykjavík 1936. Vann hann síðan hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur og Almánna Svenska Elektriska A/B í Váster&s, unz hann hóf nám í rafmagnsfræði við verkfræði1 háskólann i Stokkhólmi haust- ið 1938, Lauk hann prófi frá þeim skóla i febrúar 1945. Á þeim árum, sem hann var við nám, vann hann oft hjá ASEA um stundar sakir, m. a. mest- allt skólaárið 1941—1942 og 1944 - 45. Hann var ráðinn til Rafmagnsveitu Reykjavíkur frá 15. júlí 1945. Páll Sigurðsson er fæddur á Vifilsstöðum 24. okt. 1917, og eru foreldrar hans Sigurður Magnússon, yfirlæknir, og kona hans Sigríður Jónsdóttir. Tók hann próf frá Menntaskólan- um í Reykjavík 1935 og stund- aði nám í rafmagnsverkfræði við verkfræðiháskólann iKaup- mannahöfn frá haustinu 1936, unz hann lauk prófi í janúar 1943. Hann var ráðinn verk- fræðingur hjá Rafmagnseftir- liti ríkisins 10. sept 1945. Ragnar Thorarensen er fæddur á Siglufirði 5. febr, 1921, og eru foreldrar hans Hinrik Thorarensen, læknir, og kona hans Svanlaug Thorarensen. Tók hann stúdentspróf frá Menntaskólanum á Akureyri 1940 og stundaði síðan nám við University of Califomia, Berkeley, unz hann lauk baclierlors- prófi i okt. 1943. Að því búnu stundaði hann nám við Stan- ford University, California, og lauk masters-prófi frá þeim skóla 12. janúar 1945. Hann réðist til Rafmagnseftirlits ríkisins 15. ágúst 1945. Ragnar kvæntist 9. des. 1942 Con- stance W. Allen, dóttur Hugh Allen, skrifstofustjóra hjá Goodyear-verksmiðjunum í Akron, Ohio.

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.