Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 15.11.1945, Blaðsíða 12

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 15.11.1945, Blaðsíða 12
58 TlMARIT V.F.I. 1945 ina til þess. En ef svo er, hlýtur skepnan í fullri inni- stöðu að vera kvalin af þorsta, svo að full misþyrm- ing verður úr, ef innistaðan er löng. Og ég vil ganga lengra í þessu efni, ég álít að það sé alls ekki hægt að fóðra skepnuna með snjógjöf í stað vatns, þó að hún aldrei nema fengi 18 lítra af snjó, sem hún alls ekki fær, því að hún mundi þrátt fyrir þorstann alls ekki torga þessum 18 lítrum vegna kuldans. Þetta væri sannanlegt eða afsannanlegt með því að fóðra kindur í húsi nokkra daga, láta þær fá vigtaðan, nægilega mikinn snjó og mæla það, sem bráðnar og borið er út aftur. Ætti þannig að vera hægt að sjá, hve mikið þær hefðu étið. Þó kemur hér margt til greina, sem engum er treystandi til þess að gera nema þeim einum, sem kunna að gera fýsisk experi- ment og eru slíku vanir. Ekki veit ég um marga menn hér á landi, sem það mundu gera tryggilega, en þeir eru þó til. En ef það sannast, sem ég er viss um, að skepnan étur ekki 18 lítra af snjó né neitt nálægt því, þá þýðir það, að hún mundi kveljast af þorsta, þó aö hún vœri úti, ef hún næði ekki til nægilegs vatns, og það meina ég að hún geri, ég get kveðið fastar að orði nú heldur en í fyrri grein minni, vegna þessara tveggja upplýsinga, sem ég hef fengið um rúmtak snjóarins og um vatnsþörf sauðkindarinnar, en þar sem nýjar upplýsingar styrkja málstaðinn, er sann- leikurinn á ferðinni. Almenningur er víst alveg ruglaður í þessu snjó- spursmáli, heldur kannske að úr einum lítra af snjó verði álíka mikið af vatni, eða hugsar kannske alls ekki málið, en úr einum snjólítra verður aðeins deci- lítri af vatni. Reykvíkingar vita hvað decilítri er síð- an mjólkurskömmtunin hófst í haust —- ætli hún sé annars ekki fyrir bí þessi mjólkurskömmtun, ég fæ alltaf nóg útálát á hræringinn minn — en þá ættu menntamennirnir að leiðbeina, ég er nú að bera mig að því, en allt of seint, þetta er svo langt fyrir utan minn verkahring, að öðrum hefði verið það miklu nær. Ég get þess að lokum, að ég svara helzt engum skætingi eða slettum um þetta mál, ég gæti það kann- ske eins og hver annar, ef það þykir fínna, en ég er hér alls ekki að skemmta skrattanum, síður en svo, ég hef ekki veitzt að nokkrum maiini að fyrra bragði og á engan skæting skilið, heldur heíur mér hér gengið gott eitt til. Fyrri grein mín var meira að segja skrifuð fyrir tilmæli annars manns, herra Sig- urðar Þórðarsonar alþingismanns, við höfðum átt tal um þetta mál — og reyndar mörg fleiri. Mœling á vatnsrennsli við Gvendarbrunna. Eftir Steinþór Sigurðsson og Jón E. Vestdal. 1. Inngangur. Undanfarin ár hefur mjög borið á vatnsskorti í Reykjavík. Var lengi búizt við, að hans mundi síður gæta eftir að Hitaveita Reykjavíkur tæki til starfa, en sú varð þó ekki raunin. Hefur verið talið nauð- synlegt að auka vatnsrennslið til Reykjavíkur um 290 1/sek. Allmikill vafi lék á því, hvort afgangsvatnsmagn í Gvendarbrunnum eða nágrenni þeirra mundi verða nægilegt til þessarar aukningar. Ágizkanir manna um þetta atriði voru svo frábrugðnar hver annarri, að sumir töldu það vera innan við 100 1/sek., en aðrir um eða yfir 500 1/sek. Var að sjálfsögðu ekki hægt að byggja neinar ákveðnar áætlanir, fyrr en mæling hefði fengizt á vatnsmagni því, sem fyrir hendi væri á þessum stað, en staðhættir allir í ná- grenni Gvendarbrunna eru með þeim hætti, að erfitt er að koma við venjulegum mælingaraðferðum. Var því leitað til Atvinnudeildar Háskólans um fram- kvæmd mælinganna. Gvendarbrunnar eru allmargar uppsprettur, sem koma undan hraunrönd skammt ofan við Elliðavatn. Vatnið í vatnsveitu Reykjavíkur er tekið úr efstu uppsprettunum, og er vatninu úr þeim safnað saman í smálón, en úr því rennur vatnið sjálfkrafa í vatns- veitupípurnar og alla leið til Reykjavíkur. Land er mjög flatt fyrsta spölinn, og hefur því lítil breyting á hæð vatnsborðsins í lóninu mikil áhrif á vatns- rennslið í pípunum. Var því fyrir allmörgum árum reynt að hækka vatnsborðið með þvi að hlaða stíflu- garða fyrir frárennsli lónsins til Elliðavatns, en er vatnsrennslið til bæjarins jókst ekki nægilega fyrir þessar aðgerðir, var fyrir nokkrum árum gerður all- vandaður stíflugarður um 150 m neðar, og var búizt við. betri árangri af honum, þar sem botn þar virtist vera þéttari. Ofan við garð þennan, við hraunjaðar-

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.