Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 15.11.1945, Blaðsíða 15

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 15.11.1945, Blaðsíða 15
TÍMARIT V.F.I. 1945 61 Edy Velander, verkstállande direktör i sænska Ingenjörveten- skapsakademiinu, fram á það, að ég mætti sem fulltrúi Is- lands á árshátið Akademísins hinn 23. og 24. október, en það var fyrsta hátíðin eftir stríðið og svo til ætlazt, að þar yrðu fulltrúar frá öllum Norðurlöndunum. Tjáði ég honum, að það mundi ég ekki geta, með því m. a. að ég gerði ráð fyrir að halda heim til Islands kringum 20. október, en benti hon- um hins vegar á, að snúa sér til dr. Jóns Vestdal, formanns v- P. I., og mun hann hafa gjört svo. Siðar atvikaðist það svo, að ákveðið var, að flugvélin, sem ég ætlaði með heim, færi ekki frá Stokkhólmi fyrr en 25. október, eða daginn eftir úátiðina. Fór þá formaðurinn, dr. J. V., fram á það við mig, að ég yrði fulltrúi V. F. 1. á hátíðinni. Eftir að hafa farið til Danmerkur og Noregs, kom ég aftur til Stokkhólms mánudaginn 22. október, en hátíðahöld- m hófust daginn eftir með hádegisverði í salarkynnum verk- fræði-vísindafélagsins, og síðar þann dag voru haldnir fyrir- lestrar í Nobelsstofnuninni. Næsta dag, 24. okt., kl. 14, hófst svo hin eiginlega hátíð, þar sem fulltrúar Norðurlandanna fluttu erindi og gerðu hver um sig grein fyrir teknískri vís- indastarfsemi lands síns á stríðsárunum. Fyrir hönd Dan- merkur talaði próf. Anker Engelund, forseti tekníska vísinda- félagsins i Danmörku og rektor Danmarks tekniske Höjskole, fyrir hönd Finnlands próf. Martti Levóri, aðalforstjóri fyrir teknísku rannsóknarstofnunum ríkisins og framkvæmdastjóri fyrir iðnaðarsambandi Finnlands, fyrir hönd Noregs próf. Fredrik Vogt, rektor Norges tekniske högskole, og ég fyrir hönd Islands. Þá flutti próf. Edy. Velander skýrslu um starfsemi sænska visindafélagsins og um þróun teknisk-vísindalegra rannsókna almennt, og var það langt, ítarlegt og mjög fróðlegt erindi, enda víða komið við, og fylgdu því skuggamyndasýningar. var þar meðal annars gerð nokkur grein fyrir atóm-rannsókn- unum. Síðan var nokkurt hlé, en kl. 19.15 hófst hátíðin aftur með ávarpi, er Preses IV-Akademísins, fil. doktorn Sigurd Nauck- h°ff, flutti, Því næst flutti símamálastjórinn sænski, general- direktörinn próf. Hákon Sterky, ítarlegt og framúrskarandi fróðlegt erindi ura „radiotekniken under och efter kriget“. Þá var úthlutað heiðurs-medalíum vísindafélagsins til nokk- urra manna, er skarað hafa fram úr í teknískum efnum eða teknískri starfsemi. Fyrstui’ meðal þeirra var gufutúrbinu- konstruktörinn Birger Bjungström. Medalíurnar afhenti krón- Prinsinn sænski, en hann og elzti sonur hans sátú fundina. A-ð síðustu var veizla í hátiðasölunum í Grand Hotel. Forseti vísindafélagsins og framkvæmdastjóri þess fólu mér a<5 flytja formanni Verkfræðingafélags Islands og félaginu beztu kveðjur. Mikill fjöldi vísindamanna og verkfræðinga tóku þátt í Þessum hátíðahöldum, sennilega 3—400. 30. 10. 1945. Guðmundur Hlíðdal. Tímarit V. F. I. Það munu aðeins vera til 2 íslenzk timarit, sem ekki eru Vlð alþýðu hæfi, ekki „populár," eins og það er kallað. Eru það Læknablaðið og Tímarit V. F. í. Það er erfitt að gefa ut sérfræðileg tímarit á íslenzku og eru erfiðleikarnir við Það fyrst og fremst fjárhagslegs eðlis. Askrifendur að slíkum timai'itum eru alltaf miklu færri en að þeim tímaritum, sem allir geta Iesið og haft gagn eða gaman af. Þessi alþýðlegu timarit virðast samt eiga allerfitt uppdráttar og lifa oft shammt, þó að fjái'hagur þeirra ætti að geta verið mun betri en þeirra sérfræðilegu. En hér kemur líka fleira til greina. Prentun sérfræðilegra rita er oft mjög vandasöm og lítt eftirsótt af prentsmiðjunum nú sem stendur. 1 slíkum ritum er oft mikið af alls konar óvanalegum táknum og formúlum, auk þess margs konar leturbreytingar, sérfræðileg heiti, myndir og töflur, sem geta verið erfiðar viðfangs. Svo koma prófarkirnar útlits eins og berjaskyr frá höfundinum. Setjararnir svitna og prentsmiðju- eigandanum þykir afköstin lítil. Það er þá heldur viðkunnan- legra á flatneskju reifaranna. Og það er arðvænlegra að prenta þessar nýtizku útgáfur, þar sem settar eru aðeins 1 eða 2 vísur á hverja síðu, eða þar sem pappírinn er svo mikill að bækurnar verða aðeins trölla meðfæri. Þessar útgáfur eru nú að verða eins og illkynjuð æxli (cancer) í íslenzkum bókmenntum og gera útgáfu nauðsynlegra sérfræðirita mjög erfiða. Tímarit V. F. I. er nú 30 ára gamalt. Hefur það flutt fjölda greina, sem hafa að geyma ómetanlegar heimildir fyrir alla þá, er fást við verklegar framkvæmdir hér á landi. Það má óhikað telja þýðingarmesta verk V. F. í„ að hafa gefið þetta tíma.rit út, og það verður vafalaust eitt höfuðverkefni félags- ins í framtíðinni. Fjárhagur timaritsins hefur oft verið þröngur, enda þótt stjórnir félagsins, ritnefndir og rithöfundar hafi lagt fram við það mikla vinnu endurgjaldslaust. Nýlega var ráðist í það að stækka tímaritið úr 8 örkum upp í 12 arkir. Samtímis var upplag þess stækkað og gerðar ráðstafanir til þess að auka útbreiðsluna. Hefur áskrifendafjöldinn aukizt talsvert. Ber hvort tveggja til, að margir ungir verkfræðingar hafa komið til la.ndsins og fjölda margir einstaklingar og bæjar- félög, sem fást við verklegar framkvæmdir og framleiðslu, hafa komið auga á það, að Timarit V. F. 1. er ómissandi fyrir þá. Þetta er samt ekki nóg. Tímaritið ber sig ekki. Virðist nú vera tvennt til. Annað hvort að gera ritið alþýð- legra og dreifa þvi meira út til fjöldans, eða þá að láta það óbreytt, hirða ekki um að breiða það út til annarra en það á erindi til, en hækka verðið bæði á áskriftum og auglýsingum. Flestum félögum V. F. í. mun koma saman um það, að aðeins síðari leiðin geti komið til greina. Tímaritið á að vera sér- fræðilegt, en það á að seljast því verði, sem það kostar. Til samanburðar skal þess getið hér, að Læknablaðið, sem er að stærð 10—12 arkir á ári, kostar 50 krónur, en Tímarit V. F. 1., sem er 12 arkir að stærð, kostar aðeins 20 krónur. 1 Tímariti V. F. 1. mun vera tiltölulega meira af auglýsingum en i Læknablaðinu. Eru auglýsingar þessar að mínum dómi til lýta eins og er. Ættu að vera miklu fyrirferðarminni og mættu vera dýrari. Það verður að teljast mikils vert fyrir auglýsendur, að geta með auglýsingu í einu blaði náð til allra verkfræðinga í landinu og flestra annara, sem fást hér við meiri háttar framkvæmdir og stjórn fyrirtækja. Auglýsingar í Timariti V. F. 1. ættu því ekki að vera ódýrari en annars staðar, og áskriftargjaldið að því ætti að vera jafnhátt og að Læknablaðinu. S. P. Félagsmál. Á fyrsta fundi vetrarins, sem haldinn var 17. okt„ mættu 17. nýir félagar Verkfræðingafélagsins í fyrsta skipti. Er það stærsti hópur ungra verkfræðinga, sem í einu liafa gengið í félagið, og fjórum fleiri en stofnendurnir voru á sínum tíma. Margir þessara manna hafa teppzt i útlöndum undanfarin ár að námi loknu og sumir verið furðulengi á leiðinni heim. Er það þeim mun meira gleðiefni að hafa heimt þá heila heim, og vona ég, að hver um sig fái hér starf við sitt hæfi, svo að þeir geti allir orðið landi og þjóð að sem mestu gagni. Fara nöfn þeirra hér á eftir, ásamt helztu æviatriðum þeirra.

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.