Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 20.12.1946, Qupperneq 11

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 20.12.1946, Qupperneq 11
TÍMARIT V.F.Í. 1946 41 nokkrum árum áður en síðari heimsstyrjöldin skall á, var reynt að framleiða nóg af sjóklæðum hér á landi til að fullnægja þörf landsmanna. Var það ekki hægt með öðru móti en því að starfa að framleiðslunni árið um kring, svo að nóg væri til, þegar þörfin var mest, í vertíðarbyrjun. Mikið af sjóklæðunum var því orðið margra mánaða gamalt, er farið var að nota þau. Ágerðust þá skemmdirnar í sjóklæðunum til mikilla muna og var orðinn verulegur bagi að þeim, ekki einasta fyrir sjómennina, er sjóklæðin notuðu, heldur einnig, og ekki síður, fyrir framleiðendurna. Voru sum sjóklæðin orðin svo haldlítil og meyr, að ekki þurfti nema lítið átak til að rífa heila og ónotaða flíkina í sundur, og skipti það yfirleitt ekki miklu, hvort notaður var þykkur eða þunnur vefnaður til framleiðslunnar. Þeir menn, ,sem að framleiðslunni stóðu, höfðu af þessu hinar mestu áhyggjur. Tjáðu þeir innlendri og erlendri rannsóknarstofnun vandræði sín, en án árangurs. Einnig leituðu þeir fyrir sér um upplýsing- ar, hvernig á þessum skemmdum kynni að standa, hjá verksmiðjum þeim, er framleiddu baðmullarvefnað- inn, en ekki gátu þær heldur ráðið í það, hverjar væru orsakir þessara skemmda. Reynt var enn frem- ur að fá upplýsingar frá verksmiðjum, er hefðu sams konar framleiðslu með höndum, og var sú málaleit- un einnig árangurslaus, enda sízt við því að búast, að þær létu nokkrar upplýsingar í té, er að gagni mættu koma. Þegar mér var skýrt frá skemmdum þessum í hin- um olíuborna baðmullarvefnaði og mér sagt frá því, hvernig þær lýstu sér, minntist ég fyrirlesturs eins, er kennari minn í teknískri organískri kemíu, prófes- sor Theodor Steinkopf, hélt eitt sinn fyrir okkur nemendum sínum. Kom hann með rifna kvenregn- kápu með sér og sýndi okkur hana. Sagðist hann næstum hafa komizt í vandræði við rannsókn á orsök- unum fyrir skemmdum þeim, sem fram komu í þess- ari kápu og mörgum öðrum. Lýstu skemmdirnar í kápunni sér í því, að vefurinn var orðinn mjög hald- lítill og rifnaði í sundur, þótt ekki væri tekið nema lítið í hann. Skýrði prófessorinn svo frá, að kápan væri úr bembergsilki, sem gert hefði verið vatnshelt með gúmmíi. En bembergsilkið er framleitt úr upp- lausn af sellulósa í koparoxydammóníaki, og kvaðst prófessorinn hafa fundið vott af kopar í gervisilk- inu. Þótt ekki væri mikið um koparinn, hefði hann svo gagngerð áhrif á gervisilkið á löngum tíma, að styrkleiki þess minnkaði til mikilla muna, og væri þar orsakanna að leita fyrir skemmdunum í kápu þeirri, er hann hefði meðferðis. 2. mynd. Ekki var hægt að búast við, að baðmullarvefnaður sá, sem sjóklæðin voru framleidd úr, innihéldi kopar- sambönd. En það er alkunnugt, að mestallur baðm- ullarvefnaður inniheldur steiningarefni, og eru þau ýmiss konar og misjafnlega mikið af þeim. Fannst mér ekki ósennilegt, að einhver þessara steiningar-

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.