Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 20.12.1946, Blaðsíða 22
52
TÍMARIT V.Í.F. 1946
Ýmsar athuganir og fréttir.
Húsnæðissjóður VFÍ.
Þótt húsnæðissjóður VFl sé orðinn allgamall, er hann ekki
að sama skapi gildur, enda hafa verkf'ræðingar lengst af
hvorki verið fjölmennir né aflögufærir um fjármuni, flestir
hverjir. Hafa þeir þó ævinlega verið mjög áhugasamir um
þenna sjóð sinn. En á síðustu árum hefur verkfræðingum
fjölgað mjög, og jafnframt hefur afkoma þeirra batnað til
mikilla muna. Er þess að vænta, að áhugi þeirra fyrir hús-
næðismálum sínum sé nú hinn sami og fyrr, með þeim mis-
mun þó, að nú er getan meiri og þeir fleiri, sem lagt geta
hönd á plóginn.
Á aðalfundi VFl 1946 var kosin nefnd til að athuga mögu-
leikana fyrir eflingu húsnæðissjóðsins, og átti hún jafnframt
að leita fyrir sér um það, hvort áhugi myndi vera fyrir hendi
hjá öðrum akademískum félögum hér í bæ um einhvers kon-
ar samvinnu í þessu efni. Skyldi formaður félagsins taka sæti
í nefndinni, en auk hans voru kosnir Geir Zoéga, vegamála-
stjóri, og sá, er þetta ritar.
Nefndin hefur lítillega spurzt fyrir um það hjá nokkrum
akademískum félögum hér í bæ, hvort þau kynnu að hafa
áhuga fyrir samvinnu við VFl í þessu máli, og virðist áhugi
vera fyrir hendi í þrem þessara félaga, önnur félög hafa þegar
hentugt húsnæði til umráða eða fá það mjög bráðlega. Verður
viðræðum því haldið áfraní við þessi þrjú félög, og væri ósk-
andi, að þær beri góðan árangur. Væntanlega gefst tækifæri
síðar til áð skýra nánar frá þessum viðræðum.
En lítið verður aðhafzt með þeim hússjóði, sem VFl á nú.
Er því brýn nauðsyn að efla hann sem mest, svo að hentugt
tækifæri, sem kann að bjóðast, þurfi ekki að ganga úr greip-
um félagsins í annað sinn. Ætti mönnum að vera það enn í
fersku minni, að ekki vantaði nema fáar þúsundir króna í
sjóði félagsins til þess að hægt væri að festa kaup á hús-
eign á einkar hentugum stað við mjög vægu verði í stríðs-
byrjun. Væri eignum félagsins nú öðruvisi háttað, ef svo hefði
ekki verið ástatt þá.
Hin árlegu skyldugjöld félagsmanna til húsnæðissjóðsins
eru svo lág, að seint mun hann aukast verulega af þeim ein-
um saman. En nokkrum sinnum hafa honum borizt stærri fjár-
upphæðir frá einstökum félagsmönnum, og er það nú ætlun
nefndar þeirrar, er áður getur, að leita til félagsmanna og
annarra velunnara félagsins með tilmælum um það, að þeir
láti eitthvað af hendi rakna. Var örlítið þreifað fyrir sér
hjá einstaka fyrirtæki hér í bæ og málaleituninni hvarvetna
tekið mjög vel. Sömuleiðis hafa félagsmenn þeir, sem um
þetta hafa verið spurðir, heitið stuðningi sínum, og vonandi
skerst enginn úr leik.
J. E. V.
The Britisli Engineers’ Association
hefur beðið Tímarit V. F. I. að koma eftirfarandi upplýsing-
um á framfæri yið verkfræðinga hér á landi og aðra, sem
kynnu að vilja komast í samband við brezka verkfræðinga og
ýmiss konar brezk framleiðslufyrirtæki.
1. Á komandi sumri, dagana 28. ágúst til 13. september,
verður haldin mikil sýning í London, The Engineering and
Marine Exhibition, þar sem sýnd verða framför verkfræði-
iðnaðar Breta undangengin 10 ár, og segir svo m. a. um
sýninguna:
,,The Exhibition will provide an opportunity of seeing, under
one roof, all that is of importance in technieal deveiopment
over the past decade.
Britain’s welcome to overseas visitors in 1947 will be with
that same cordiality and warmth which characterised the
reception of her friends in those days before the experiences
of war had implantéd their scars.“
2. Til að auðvelda mönnum að komast i samband við verk-
fræðinga og margvíslegan iðnað Breta, hefur félagið látið
gera svonefnt BEA-Register, og gefur félagið þeim, er þess
óska, upplýsingar um þau fyrirtæki, sem í skránni eru, gegn
£ 10 árgjaldi.
„Subscribers are able to call on the British Engineers’
Association for advice and information conceming matters
relating to engineering, and we afford to subscribers that
personal assistance which so many visitors to Great Britain
value."
3. Verið er að ljúka útgáfu BEA-Handbook, sem gefur upp-
lýsingar um nöfn, heimilisfang og helztu framleiðsluvörur
þeirra sem eru félagar.
Kaupendum verkfræðilegra tækja og véla mun fúslega
verða látið ókeypis í té eintak af bókinni, gegn umsóknum,
sem stílaðar eru til The British Engineers-Association, 32
Victoria street, London, G. W. 1.
J. E. V.
Félagsmál.
Ögmundur Jónsson var tekinn í félagið á stjórnarfundi 23.
maí 1946. Hann er fæddur í
Reykjavík 18. desember 1910 og'
eru foreldrar hans Jón Guð-
mundsson og kona hans Helga
Einarsdóttir. Tók hann stúd-
entspróf frá Menntaskólanum í
Reykjavík 1929. Hann stund-
aði nám í byggingaverkfræði
við verkf ræðiháskólann í Darm-
stadt til haustsins 1932 og síð-
an við verkfræðiháskólann í
Berlín, unz hann lauk próíi
sem Dipl. Ing. í janúar 1937.
Réðst hann þá til Ingenieur-
biiro Johannes Schuster, Berlín,
og starfaði þar, þangað til
hann fluttist til Sviss 1942.
Dvaldi í Sviss til ársloka 1945. — Starfar nú hjá Almenna
Byggingafélaginu í Reykjavík.
B. G.
Steindórsprent h.f.