Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 20.12.1946, Side 14
44
TÍMARIT V.P.Í. 1946
aukist til verulegra muna við lengri geymslu og tog-
þolið minnki þá að sama skapi. Má því gera ráð fyrir,
að skemmdirnar komi fram, hversu lítið sem vefn-
aðurinn kann að innihalda af þessum efnum, ef lang-
ur tími líður frá því, að borið var fyrst í vefnaðinn,
unz sjóklæðin eru notuð.
Þegar litið er til hvors tveggja, niðurstöðu þeirra
rannsókna, er hér var greint frá, og þess, að baðm-
7. mynd.
ullarvefnaður sá, er notaður var til framleiðslu á olíu-
bomum sjóklæðum, er mest bar á skemmdum í þeim,
innihélt vott af hvoru tveggja í senn, súlfati og
klórídi, virtist enginn vafi geta leikið á því, hverjar
orsakir skemmdanna væru, enda efaðist enginn um
það, sem hér á landi átti hlut að máli. Var því hafizt
handa um að haga innkaupum á baðmullarvefnaði í
samræmi.við það, og leitað að vefnaði, sem innihéldi
hvorki súlfat né klóríd. Það reyndist þó ekki eins
auðvelt og við hefði mátt búast. Eftir allmikla leit
tókst þó að fá súlfat- og klórídfrían óbleiktan baðm-
ullarvefnað, en kaupendurnir þurftu sérstaklega að
greiða fyrir þvott á vefnaðinum.
Þegar þessum rannsóknum var lokið, fylgdist ég
með vefnaði þeim, sem notaður var til framleiðslu sjó-
klæðanna, rannsakaði nákvæmlega, hvort hann inni-
héldi efni þau, sem reynzt höfðu skaðleg fyrir hann,
og aldrei varð vart hinna minnstu skemmda í þeim
sjóklæðum, sem gerð voru úr súlfat- og klórídfríum
baðmullarvefnaði. í eitt skipti vildi svo til, að fram-
leitt var af illri nauðsyn dálítið af sjóklæðum úr
baðmullarvefnaði, er innihélt aðeins vott af klórídi.
Var reynt að láta þessi sjóklæði liggja sem stytzt, en
samt leið ekki á löngu, unz fóru að berast kvartanir
um skemmdir í sjóklæðum, er lýstu sér sem hinn
kemíski fúi í vefnaðinum.
Summary:
Deterioration in cotton cloth imprcgnat<;d with linsccd oil.
Certain mineral compounds in cotton cloth impregnated
with drying oil cause deterioration as shown by the graphs
(1.—8. mynd), where tensile strengh in kg/cm is plotted
verus concentration of the solutions or suspensions delt with.
A piece of unbleached cotton cloth was found to contain these
compounds: ZnCl2, A12(S04)3, A1C13, MgCl2, CaCl2, Al2Oa, MgO
and CaO.
Pieces of the same cloth were washed thoroughly and then
dropped into solutions or suspensions of these compounds. Six
variations in concentration were tested for each compound.
After drying the pieces of cloth and determining the amount
they eontained, they were coated with boiled linseed oil and
stored at about 20°C for 2months. Strips of 40X2,5 cm were
then tested for tensile strength. Four strips of each piece of
cloth were tested the average values of which are shown on
the graphs in kg/cm of width.
Graphs No. 1 and No. 2 show effect of increased content of
CaO and MgO respectively and these compounds are not
objectionable. Graph No. 3 shows effect of Al2Os which are
slightly deteriorative. Graphs No. 4, (CaCl2), No. 6 (A1C13)
and No. 8 (ZnCl2) show similar effects which are highly
deteriorative. Graphs No. 5 (MgCl2) and No. 7 (A12(S04)3)
show the same objectionable effects even more pronounced.