Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.05.1947, Síða 3
Tím. V. F. I. 1947.
2. hefti.
THORVALD KRABBE
fyrrv. vitamálastjóri
kjörinn heiðursfélagi Verkfrœðingafélags íslands.
Stjórn Verkfræðingafélags Islands kaus Thorvald
Krabbe, fyrrv. vitamálastjóra, heiðursmeðlim félags-
ins á fundi 1. apríl 1947,
og var kjöri hans lýst á
hátíðafundi félagsins, er
haldinn var 18. apríl 1947
í tilefni af 35 ára afmæli
þess.
Th. Krabbe er fæddur
í Kaupmannahöfn þ. 21.
júní 1876 og lauk verk-
fræðinámi árið 1900 frá
Polyteknisk Læreanstalt
1 Kaupmannahöfn. Var
hann kallaður hingað til
Islands og skipaður
landsverkfræðingur frá 1.
janúar 1906, vitaumsjón-
armaður frá 1. janúar
1910 og síðan vitamála-
stjóri, og gegndi hann því
embætti, þar til hann
hætti störfum fyrir aldurs
sakir, þ. 1. maí 1937.
Hafði hann þá starfað
sem verkfræðingur og
vitamálastjóri í rúm 31
ár hjá íslenzka ríkinu.
Þegar Th. Krabbe kom
hingað til lands, var hér
lítið • um verkfræðilegar
framkvæmdir, en miklir
breytinga- og framfara-
tímar voru í nánd. Varð Th. Krabbe því einn þeirra
manna, sem tóku þátt í hinu mikla uppbygginga-
starfi, sem átti sér stað, á þessu tímabili. Störf Th.
Krabbe í þágu vitamála og hafnarmála landsins voru
brautryðjendastörf, og lagði hann grundvöllinn að
og byggði upp þær stofn-
anir, sem með þessi mál
fóru, og sem nú eru orðn-
ar þýðingarmikill liður í
ríkisrekstrinum. — Th.
Krabbe var alþekktur
fyrir samvizkusemi og al-
úð við störf þau, sem hon-
um voru falin og leysti
þau þannig úr hendi, að
verkf ræðingastéttinni var
sómi að.
Th. Krabbe hafði hinn
mesta áhuga á öllu því,
er varðaði verkfræði og
verkfræðilega framþró-
un, og leiddi það til þess,
að hann varð hvatamað-
ur að stofnun ýmissa
þarflegra og nauðsyn-
legra iðnfyrirtækja.
Þennan áhuga fyrir
verkfræðinni hefur hann,
nú á síðustu árum, stað-
fest með því að semja
veigamikið rit um tækni-
lega þróun á íslandi, Is-
land og dets tekniske
Udvikling gennem Tid-
erne (Köbenhavn 1946).
Th. Krabbe, var ásamt
Jóni heitnum Þorlákssyni, aðalhvatamaður að stofnun
Verkfræðingafél. Isl., og var hann mörg ár formaður
þess félags og í stjórn þess. Ben. Gröndal.